Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 375. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 933  —  375. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Björns Inga Hrafnssonar um kostnað við íþróttaefni Ríkisútvarpsins.

     1.      Hvert hefur framlag Ríkisútvarpsins til íþróttadeildar RÚV verið árin 2004, 2005 og 2006 og hver er áætlunin í þeim efnum fyrir árið 2007?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu hefur verið varið eftirfarandi fjárhæðum til íþróttadeildar RÚV:

Ár Samtals í millj. kr.
2004 207
2005 174
2006* 199
2007* 207
*Áætlun

     2.      Hvað greiðir Ríkisútvarpið árlega fyrir sýningarrétt frá Formúlu-kappaksturskeppninni?
    Ríkisútvarpið getur ekki veitt upplýsingar um kostnað við árlegan sýningarrétt á Formúlu-kappaksturskeppninni þar sem stofnunin er bundin trúnaði við viðsemjanda um umræddar greiðslur. Vísast um þetta til 5. gr. upplýsingalaga.

     3.      Hver er áætlaður kostnaður Ríkisútvarpsins vegna sýningarréttar frá Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 2008?
    Ríkisútvarpið getur ekki veitt upplýsingar um kostnað við sýningarrétt á Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 2008 þar sem stofnunin er bundin trúnaði við viðsemjanda um umræddar greiðslur. Vísast um þetta til 5. gr. upplýsingalaga.

     4.      Hefur kostnaður við sýningarrétt frá þessum viðburðum verið fjármagnaður með stuðningi kostunaraðila að einhverju eða öllu leyti?
    Sýningarréttur frá þessum viðburðum hefur að hluta til verið fjármagnaður með stuðningi kostunaraðila.
    Minna má á að útsendingar Ríkisútvarpsins á vinsælum íþróttaviðburðum hafa talsvert verið til umræðu í fjölmiðlum og ekki síst á Alþingi. Í þessu sambandi er rétt að minna á umræður utan dagskrár þann 24. janúar 2002 um heimsmeistaramótið í knattspyrnu það sama ár og þjónustu Ríkisútvarpsins. Málshefjandi umræðunnar, þingmaður Samfylkingarinnar, varpaði fram spurningu um hvort tryggja ætti RÚV efnahagslegar forsendur til að geta sýnt frá heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu sem þingmaðurinn taldi vera stærsta og vinsælasta alþjóðlega íþróttaviðburð ársins. Í kjölfarið skapaðist umræða í þinginu með þátttöku þingmanna allra flokka. Þingmaður Framsóknarflokks taldi rétt og eðlilegt að Ríkisútvarpið leitaðist við að tryggja útsendingar á vinsælum íþróttaviðburðum, þar á meðal heimsmeistarakeppni í vinsælum íþróttagreinum sem og Ólympíuleikum. Þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs taldi að allir væru sammála um að nauðsynlegt væri að allir landsmenn gætu fylgst með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu líkt og öðrum heimsviðburðum. Hlutverk Ríkisútvarpsins væri að þjóna landsmönnum með beinum útsendingum af þessu tagi. Umræður sem átt hafa sér stað um hvort það sé í hlutverki Ríkisútvarpsins að sýna vinsælt íþróttaefni hafa m.a. gert það að verkum að Ríkisútvarpið hefur reynt að tryggja sér réttinn að slíku efni. Ástæða þess er sú krafa sem margir þingmenn ásamt almenningi hafa sett fram um þá skyldu Ríkisútvarpsins, sem fjölmiðils í almannaþágu, að sýna vinsælt íþróttaefni í opinni dagskrá fyrir alla landsmenn.
    Forsenda þess að hægt sé að skapa heildstæða dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi er að bjóða fjölbreytt efni. Vinsælt íþróttaefni skipar ávallt stóran sess í fjölbreyttri dagskrá ríkisfjölmiðla sem vilja bjóða blöndu af ólíku efni í opinni dagskrá fyrir alla landsmenn.