Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 629. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 937 — 629. mál.
til dómsmálaráðherra um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins.
1. Hver er heildarkostnaður ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins frá því í ágúst árið 2002 og fram til dagsins í dag eða til þess tíma á árinu 2007 sem upplýsingar liggja fyrir um, og hvernig skiptist hann á eftirfarandi þætti:
a. rekstur efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
b. aðkeypta sérfræðiaðstoð og annan útlagðan kostnað efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra (þ.m.t. ferða- og uppihaldskostnað) við rannsókn og rekstur málsins,
c. störf sérstaks saksóknara í Baugsmálinu, þ.m.t. kostnaður við aðstoðarmenn og aðkeypta sérfræðiþjónustu,
d. kostnað sem íslenska ríkið hefur verið dæmt til þess að greiða vegna málsvarnarkostnaðar ákærðu í Baugsmálinu,
e. annað, áður ótalið, sem eðlilegt er að telja hafa lent á ríkissjóði vegna málsins?
2. Hve stór hluti af starfsemi efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á framangreindu tímabili hefur farið í Baugsmálið?
3. Hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra hafa farið í Baugsmálið frá júlí 2002 til dagsins í dag?
Skriflegt svar óskast.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 937 — 629. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Hjálmari Árnasyni,
Kolbrúnu Halldórsdóttur og Sigurjóni Þórðarsyni.