Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 636. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 944  —  636. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um könnun á samsetningu afla vinnsluskipa úr uppsjávarstofnum.

Flm.: Ólafur Níels Eiríksson.



    Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherrra að láta kanna samsetningu afla vinnsluskipa úr uppsjávarstofnum, annars vegar þeirra sem vinna aflann um borð og hins vegar þeirra sem koma með aflann til vinnslu í land.

Greinargerð.


    Það er umtalað að vinnsluskip, sem veiða úr uppsjávarstofnum og frysta aflann um borð, séu með miklu betri stærðarflokkun, þessi skip frysti stærstu og bestu síldina en smásíld og hrati sé hent í sjóinn.
    Best væri fyrir alla aðila að sett væri af stað rannsókn til að komast til botns í þessu máli og þá væri jafnvel hægt að hreinsa þennan leiðinlega stimpil af þeim sem vinna við þessa grein sjávarútvegs.
    Það er algjörlega fráleitt þegar þessi skip vinna aflann um borð inni í fjörðum að hratinu sé hent í sjóinn en á sama tíma standi fiskimjölsverksmiðjur tómar vegna hráefnisleysis í sömu fjörðum.