Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 554. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 958  —  554. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um nauðasamninga samkvæmt lögum um tekjuskatt.

     1.      Hve margir einstaklingar hafa leitað heimildar til samninga um greiðslu tekjuskatts skv. 3. mgr. 113. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og hversu margir hafa leitað nauðasamninga við skuldheimtumenn skv. 4. mgr. sömu greinar frá því að lögin voru sett, sundurliðað eftir árum?
    Einstaklingar sem leitað hafa samninga skv. 3. og 4. mgr. 113. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt:

Ár Beiðni skv. 3. mgr. Beiðni skv. 4. mgr.
2006 1 6
2005 1 4
2004 1 3
2003 2 6

     2.      Hversu margir slíkir samningar hafa verið gerðir á sama tíma sundurliðað skv. 3. og 4. mgr. 113. gr. laganna?

Ár Samningur skv. 3. mgr. Samningur skv. 4. mgr.
2006 0 3
2005 1 3
2004 1 2
2003 0 1

     3.      Um hve háar fjárhæðir hefur verið samið á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir umsóknum þar sem leitað hefur verið eftir heimild til samninga?
    Á árinu 2005 var gerður einn samningur að fjárhæð kr. 1.896.504 á grundvelli 3. mgr. 113. gr. laga nr. 90/2003 og á árinu 2004 var gerður einn samningur að fjárhæð kr. 7.361.401.
    Tveir nauðasamningar voru samþykktir á árinu 2006. Í öðrum samningnum var um að ræða 20% greiðslu á kr. 423.000 og innheimtust því kr. 91.000. Í hinum samningnum var um að ræða greiðslu á 15% af kr. 8.100.000 og innheimtust þar kr. 1.300.000. Í einu tilviki hefur gjaldandi greitt samkvæmt frumvarpi að nauðasamningi en málið hefur enn ekki farið fyrir héraðsdóm. Á árinu 2005 komust á þrír nauðasamningar. Í fyrsta lagi var um að ræða 10% greiðslu á kr. 7.000.000 og innheimtust því kr. 700.000. Í öðru lagi var um að ræða greiðslu á 15% af skuld að fjárhæð kr. 2.900.000 og innheimtust því rúmar kr. 432.000. Í þriðja lagi var um að ræða 25% greiðslu á kröfu að fjárhæð kr. 7.400.000 og innheimtust því kr. 1.900.000. Nauðasamningur komst á í tveimur tilfellum fyrir árslok 2004. Annars vegar var um að ræða 25% eingreiðslu á kröfu að fjárhæð kr. 12.200.000 og innheimtust því kr. 3.200.000. Í hinu tilfellinu var um að ræða greiðslu á 12% af 25.500.000 sem dreifðist á 15 mánuði. Einn nauðasamningur var samþykktur á árinu 2003 þar sem boðnar voru 35% af kröfu ríkissjóðs en ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um fjárhæð kröfunnar.

     4.      Mun ráðherra beita sér fyrir breytingu á lögunum sem miðar að því að gera úrræðið skilvirkara fyrir fólk í fjárhagsörðugleikum?
    Ástæða þess að heimild til nauðasamninga var sett inn í lögin á sínum tíma var meðal annars sú að nauðasamningaleiðin var nokkuð torsótt fyrir einstaklinga utan rekstrar. Annars vegar áttu einstaklingar í greiðsluvandræðum erfitt með að kaupa sér sérfræðiaðstoð við nauðasamningagerð og hins vegar virtust innheimtumenn ríkissjóðs ekki mæla með nauðasamningum. Afstaða innheimtumanna byggðist á því að þeir töldu sér ekki fært að taka þátt í slíkum samningum þar sem almenn lagaheimild fyrir þá til að mæla með nauðasamningum væri ekki fyrir hendi og einnig væri mikilvægt að virða jafnræðisregluna við skattheimtu.
    Með tilkomu ákvæðanna í 3. og 4. mgr. 113. gr. tekjuskattslaganna hafa einstaklingar í fjárhagsvandræðum úrræði til að ná tökum á fjármálum sínum og komast hjá gjaldþrotaskiptum en það var eitt af markmiðunum með lögfestingu ákvæðisins. Til að auðvelda einstaklingum að ná þessum úrræðum voru sett lög um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga, nr. 65/1996, en í 1. gr. laganna segir að ríkinu sé heimilt að veita réttaraðstoð eftir því sem nánar er ákveðið í lögunum.
    Á undanförnum árum hefur beiðnum um skuldbreytingu opinberra gjalda fækkað og nauðasamningar hafa einnig verið fáir á liðnum árum. Óljóst er hvað veldur. Innheimtumenn þekkja lagaákvæðin og benda einstaklingum á úrræðin þegar ástæða þykir til. Ráðuneytið telur því ekki þörf á lagabreytingum.