Þskj. 970 — 651. mál.
Skýrsla
menntamálaráðherra um framkvæmd skólahalds á framhaldsskólastigi skólaárin 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005.
(Lögð fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
Inngangur.
Samkvæmt 46. gr. laga nr. 80/1996, um framhaldsskóla, skal menntamálaráðherra gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólahalds í framhaldsskólum landsins á þriggja ára fresti. Sú skýrsla sem hér liggur fyrir nær til skólaáranna 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005. Er það í þriðja sinn sem menntamálaráðherra leggur slíka skýrslu fyrir Alþingi. Í skýrslunni er að finna margvíslegar upplýsingar um skólahald á framhaldsskólastigi, svo sem um fjölda skóla, nemenda og kennara, skiptingu nemenda á námsbrautir, brautskráningar, mat á skólastarfi og fjárveitingar til framhaldsskóla. Rétt er að benda á að vegna fyrirliggjandi gagna miðast upplýsingar í skýrslunni í sumum tilvikum við almanaksárin 2002–2005. Tölfræðilegar upplýsingar í skýrslunni eru að mestu fengnar frá Hagstofu Íslands, en menntamálaráðuneytið vann úr upplýsingunum til birtingar í skýrslunni.
1. Skólar.
Fjöldi, stærð og gerð framhaldsskóla.
Framhaldsskólar flokkast í fjölbrautaskóla, iðnskóla, menntaskóla og sérskóla. Þessi flokkun er þó ekki nema að hluta lýsandi fyrir námsframboð skólanna. Í viðauka I með skýrslunni er að finna lista yfir framhaldsskóla eftir landshlutum.
Framhaldsskólar voru 36 skólarárið 2002/2003, en 38 skólaárin 2003/2004 og 2004/2005 (sjá töflu 1.1). Í skýrslu menntamálaráðherra til Alþingis fyrir tímabilið 1999–2002 (988. mál 130. löggjafarþings) voru framhaldsskólar 35 allt tímabilið. Á árunum 2002–2003 hlutu þrír skólar viðurkenningu menntamálaráðuneytisins sem einkaskólar á framhaldsskólastigi á grundvelli 41. gr. laga um framhaldsskóla: Snyrtiskólinn (2002), Menntaskólinn Hraðbraut (2003) og Kvikmyndaskóli Íslands (2003). Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa haustið 2004. Sama ár færðist Bændaskólinn á Hólum á háskólastig. Ekki eru taldir með skólar þar sem mestur hluti námsframboðs var flokkaður á háskólastigi en buðu á tímabili því sem skýrsla þessi nær til nám á framhaldsskólastigi, svo sem Tækniháskóli Íslands (frumgreinadeild) og Háskólinn á Bifröst.
Tafla 1.1. Fjöldi framhaldsskóla eftir landsvæðum
2002/2003–2004/2005.
|
Landsvæði |
Fjöldi skóla | ||
| 2002/2003 | 2003/2004 | 2004/2005 | |
| Reykjavík | 15 | 16 | 17 |
| Höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur | 4 | 5 | 4 |
| Suðurnes | 1 | 1 | 1 |
| Vesturland | 1 | 1 | 2 |
| Vestfirðir | 1 | 1 | 1 |
| Norðurland vestra | 2 | 2 | 1 |
| Norðurland eystra | 4 | 4 | 4 |
| Austurland | 4 | 4 | 4 |
| Suðurland | 4 | 4 | 4 |
| Alls | 36 | 38 | 38 |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | |||
Tafla 1.2 sýnir framhaldsskóla flokkaða eftir stærð, miðað við fjölda dagskólanemenda. Frá skólaárinu 2002/2003 til skólaársins 2004/2005 fjölgaði skólum með fleiri en 1.000 nemendur í dagskóla úr fimm í átta. Nemendafjöldi þessara átta skóla var haustið 2004 samtals 9.193, eða um 47% allra dagskólanemenda. Skólaárið 2004/2005 voru átta skólar með færri en 100 nemendur. Haustið 2004 stunduðu 298 nemendur nám í þessum skólum, eða innan við 2% dagskólanemenda. Á sama tíma voru um 5% nemenda í sjö skólum í flokknum 101– 200 nemendur og svipað hlutfall í fjórum skólum í flokknum 201–400 nemendur.
Tafla 1.2. Fjöldi skóla skipt eftir stærð 2002/03–2004/05.
| Nemendafjöldi* | Fjöldi skóla** | ||
| 2002/2003 | 2003/2004 | 2004/2005 | |
| 50 og færri | 6 | 7 | 7 |
| 51–100 | 2 | 4 | 1 |
| 101–200 | 6 | 5 | 7 |
| 201–400 | 3 | 3 | 4 |
| 401–600 | 5 | 4 | 4 |
| 601–800 | 6 | 5 | 4 |
| 801–1.000 | 3 | 4 | 3 |
| Fleiri en 1.000 | 5 | 6 | 8 |
| Alls | 36 | 38 | 38 |
| *Ekki eru meðtaldir skólar, þar sem nemendur voru að meiri hluta til í námi sem flokkaðist á öðru skólastigi, svo sem Tækniháskóli Íslands. | |||
| **Eingöngu er miðað við fjölda dagskólanemenda. | |||
| Heimild: Menntamálaráðuneyti og Hagstofa Íslands. | |||
Einkaskólum á framhaldsskólastigi fjölgaði á tímabilinu 2002–2005. Haustið 2003 tók Menntafélagið ehf. yfir rekstur Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands. Skólarnir voru árið 2005 sameinaðir undir heitinu Fjöltækniskóli Íslands. Snyrtiskólinn fékk árið 2002 viðurkenningu sem einkaskóli á framhaldsskólastigi og Kvikmyndaskóli Íslands árið 2003. Menntaskólinn Hraðbraut hóf starfsemi haustið 2003. Aðrir einkaskólar á framhaldsskólastigi voru: Verzlunarskóli Íslands, Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað og Hússtjórnarskólinn í Reykjavík.
Kvöldskólar (öldungadeildir, meistaraskólar) voru starfræktir í 13 framhaldsskólum á skólaárinu 2004/2005, þar af voru fimm í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur (sjá töflu 1.3). Þeim framhaldsskólum sem buðu upp á fjarnám fjölgaði frá fyrri skýrslu menntamálaráðherra til Alþingis úr sjö í ellefu skólaárið 2004/2005.
Tafla 1.3. Kvöldskólar og fjarnám við framhaldsskóla,
skipt eftir landsvæðum 2002/2003–2004/2005.
| Landsvæði | 2002/2003 | 2003/2004 | 2004/2005 | |||
| Kvöldskóli | Fjarnám |
Kvöldskóli |
Fjarnám |
Kvöldskóli |
Fjarnám |
|
| Reykjavík | 5 | 3 | 4 | 3 | 4 | 4 |
| Höfuðborgarsvæði utan Reykjavíkur |
1 | 1 | 1 | 2 | 1 | 3 |
| Suðurnes | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 |
| Vesturland | 0 | 0 | 1 | 0 | 1 | 0 |
| Vestfirðir | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 | 0 |
| Norðurland vestra | 0 | 1 | 0 | 1 | 0 | 0 |
| Norðurland eystra | 1 | 1 | 0 | 2 | 0 | 1 |
| Austurland | 3 | 1 | 3 | 2 | 3 | 2 |
| Suðurland | 2 | 1 | 2 | 1 | 2 | 1 |
| Alls | 14 | 9 | 13 | 12 | 13 | 11 |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti og Hagstofa Íslands. | ||||||
Símenntunarmiðstöðvar.
Á tímabili því sem skýrsla þessi nær til voru starfræktar níu símenntunarmiðstöðvar á landinu, þar af átta utan höfuðborgarsvæðisins. Starfsemi miðstöðvanna byggist á ákvæði í framhaldsskólalögunum um heimild til framhaldsskóla til að eiga aðild að stofnun fullorðinsfræðslumiðstöðva í samvinnu við sveitarfélög, faggreinafélög, stéttarfélög, atvinnurekendur eða aðra hagsmuna- og áhugahópa. Símenntunarmiðstöðvarnar eru sjálfseignarstofnanir. Tilgangur þeirra er fyrst og fremst að miðla menntun til íbúa á viðkomandi svæðum, bæði almennu námi, ýmiss konar starfstengdu námi og háskólanámi.
Skólatími.
Hagstofa Íslands kannar árlega fjölda kennslu- og prófadaga í framhaldsskólum en í lögum um framhaldsskóla er ákvæði þess efnis að árlegur skólatími skuli vera níu mánuðir og að kennsludagar skuli ekki vera færri en 145. Í reglugerð nr. 6/2001 um starfstíma framhaldsskóla og leyfisdaga segir jafnframt að kennslu- og prófdagar skuli eigi vera færri en 175. Meðalfjöldi reglulegra kennsludaga í öllum framhaldsskólum skólaárið 2004/2005 var 145. Á sama skólaári var að meðaltali 26 dögum varið sérstaklega til prófahalds og annars námsmats. Í tíu framhaldsskólum var 30 dögum eða fleiri varið til prófahalds og annars námsmats, allt að 39 dögum. Myndir 1.1 og 1.2 sýna fjölda reglulegra kennsludaga og fjölda daga sem varið var til prófahalds eftir fjölda framhaldsskóla á skólaárunum 2002/2003 til 2004/2005.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Nemendur.
Fjöldi nemenda.
Fjöldi nemenda í dagskólum framhaldsskólanna var 18.464 haustið 2002 en var orðinn 19.593 haustið 2004 (sjá töflu 2.1). Fjölgunin nemur um 6%. Meðtaldir eru nemendur í starfsþjálfun sem ekki voru skráðir í skóla. Konur voru nokkru fleiri en karlar í dagskólum haustin 2002 og 2003 en haustið 2004 voru karlar orðnir nokkru fleiri. Séu nemendur í kvöldskólum og fjarnámi framhaldsskólanna taldir með var heildarfjöldi nemenda á framhaldsskólastigi 22.599 haustið 2004. Í þessum heildartölum voru konur nokkru fleiri en karlar öll árin (sjá töflu 2.3).
Skipting nemenda eftir námsbrautum, kyni og aldursflokkum.
Flestir dagskólanemendur voru skráðir á raungreinabrautir, félagsfræðabrautir og iðn- og tæknibrautir á því tímabili sem skýrslan nær til. Fæstir nemendur í dagskóla voru á heilsugæslubrautum og uppeldis- og íþróttabrautum (sjá töflu 2.1).
Tafla 2.1. Fjöldi nemenda í dagskólum eftir námsbrautum
og kyni, að hausti 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | |||||||
| Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | |
| Almennar brautir | 2.247 | 1.144 | 1.103 | 2.355 | 1.265 | 1.090 | 2.510 | 1.284 | 1.226 |
| Málabrautir | 1.351 | 279 | 1.072 | 1.255 | 244 | 1.011 | 1.304 | 262 | 1.042 |
| Listabrautir | 895 | 209 | 686 | 964 | 254 | 710 | 1.009 | 323 | 686 |
| Uppeldis- og íþróttabrautir | 363 | 187 | 176 | 304 | 138 | 166 | 314 | 125 | 189 |
| Félagsfræðabrautir | 3.439 | 1.299 | 2.140 | 3.807 | 1.528 | 2.279 | 3.923 | 1.588 | 2.335 |
| Viðskipta- og hagfræðabrautir | 1.460 | 667 | 793 | 1.254 | 529 | 725 | 1.206 | 524 | 682 |
| Raungreinabrautir | 3.922 | 1.957 | 1.965 | 4.124 | 2.102 | 2.022 | 4.364 | 2.316 | 2.048 |
| Iðn- og tæknibrautir | 3.305 | 2.980 | 325 | 3.310 | 2.920 | 390 | 3.400 | 3.010 | 390 |
| Búsýslubrautir, matvælabrautir, þjónustuiðnir | 1.094 | 424 | 670 | 1.046 | 405 | 641 | 1.066 | 430 | 636 |
| Heilsubrautir | 388 | 15 | 373 | 456 | 23 | 433 | 497 | 17 | 480 |
| Alls | 18.464 | 9.161 | 9.303 | 18.875 | 9.408 | 9.467 | 19.593 | 9.879 | 9.714 |
|
Skýringar: Iðnnemar á samningi eru meðtaldir. Hver nemandi er talinn aðeins einu sinni þannig að stundi nemandi nám í tveimur skólum þá telst hann aðeins í öðrum þeirra. Heimild: Hagstofa Íslands. |
|||||||||
Tafla 2.1 og mynd 2.1 sýna að á tímabilinu 2002–2004 var kynjaskipting ójöfn á mörgum námsbrautum framhaldsskólastigs, t.d. á iðn- og tæknibrautum, þar sem hlutfall kvenna var að meðaltali 11%. Á heilsugæslubrautum var hlutfall karla að meðaltali 4% og 20% á málabrautum. Hlutfall kvenna og karla á raungreinabrautum var jafnt haustið 2002 en haustið 2004 voru 53% skráðra nemenda á raungreinabrautum karlar og 47% konur.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í töflu 2.2 má sjá skiptingu dagskólanemenda eftir námsbrautum og aldursflokkum. Taflan sýnir m.a. hátt hlutfall nemenda 20 ára og eldri á iðn- og tæknibrautum, eða 54% haustið 2004. Á þessum brautum voru að meðaltali 19% nemenda á tímabilinu 2002–2004 25 ára og eldri.
Tafla 2.2. Fjöldi nemenda í dagskólum eftir námsbrautum og aldursflokkum, að hausti 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | |||||||||||||
| Alls |
16 ára og yngri | 17–19 ára |
20–24 ára |
25 ára og eldri |
Alls |
16 ára og yngri | 17–19 ára |
20–24 ára |
25 ára og eldri |
Alls |
16 ára og yngri | 17–19 ára |
20–24 ára |
25 ára og eldri |
|
| Almennar brautir | 2.247 | 964 | 772 | 248 | 263 | 2.355 | 974 | 768 | 281 | 332 | 2.510 | 1.090 | 817 | 273 | 330 |
| Málabrautir | 1.351 | 281 | 832 | 212 | 26 | 1.255 | 265 | 771 | 193 | 26 | 1.304 | 333 | 765 | 171 | 35 |
| Listabrautir | 895 | 54 | 324 | 335 | 182 | 964 | 74 | 295 | 386 | 209 | 1.009 | 69 | 276 | 394 | 270 |
| Uppeldis- og íþróttabrautir | 363 |
50 |
188 |
112 |
13 |
304 |
42 |
162 |
84 |
16 |
314 |
49 |
161 |
66 |
38 |
| Félagsfræðabrautir | 3.439 | 505 | 2.064 | 766 | 104 | 3.807 | 616 | 2.162 | 890 | 139 | 3.923 | 701 | 2.210 | 854 | 158 |
| Viðskipta- og hagfræðabrautir |
1.460 |
350 |
765 |
262 |
83 |
1.254 |
368 |
649 |
161 |
76 |
1.206 |
394 |
645 |
92 |
75 |
| Raungreinabrautir | 3.922 | 984 | 2.484 | 415 | 39 | 4.124 | 1.101 | 2.563 | 385 | 75 | 4.364 | 1.247 | 2.670 | 368 | 79 |
| Iðn- og tæknibrautir | 3.305 | 329 | 1.247 | 1.104 | 625 | 3.310 | 363 | 1.216 | 1.133 | 598 | 3.400 | 417 | 1.153 | 1.163 | 667 |
| Búsýslubrautir, matvælabrautir, þjónustuiðnir | 1.094 |
57 |
291 |
473 |
273 |
1.046 |
61 |
284 |
438 |
263 |
1.066 |
83 |
259 |
463 |
261 |
| Heilsubrautir | 388 | 14 | 81 | 106 | 187 | 456 | 14 | 87 | 116 | 239 | 497 | 9 | 77 | 135 | 276 |
| Alls | 18.464 | 3.588 | 9.048 | 4.033 | 1.795 | 18.875 | 3.878 | 8.957 | 4.067 | 1.973 | 19.593 | 4.392 | 9.033 | 3.979 | 2.189 |
| Sjá skýringar neðanmáls við töflu 2.1. Heimild: Hagstofa Íslands . | |||||||||||||||
Tafla 2.3. Heildarfjöldi nemenda í dagskólum, kvöldskólum og fjarnámi, skipt eftir námsbrautum og kyni, að hausti 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | |||||||
| Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | |
| Almennar brautir | 4.129 | 1.767 | 2.362 | 3.313 | 1.611 | 1.702 | 3.465 | 1.658 | 1.807 |
| Málabrautir | 1.380 | 284 | 1.096 | 1.312 | 253 | 1.059 | 1.375 | 271 | 1.104 |
| Listabrautir | 913 | 211 | 702 | 1.006 | 263 | 743 | 1.065 | 337 | 728 |
| Uppeldis- og íþróttabrautir | 372 | 187 | 185 | 385 | 147 | 238 | 453 | 141 | 312 |
| Félagsfræðabrautir | 3.777 | 1.416 | 2.361 | 4.570 | 1.778 | 2.792 | 4.699 | 1.839 | 2.860 |
| Viðskipta- og hagfræðabrautir | 1.526 | 675 | 851 | 1.363 | 543 | 820 | 1.412 | 550 | 862 |
| Raungreinabrautir | 3.996 | 1.999 | 1.997 | 4.240 | 2.152 | 2.088 | 4.483 | 2.368 | 2.115 |
| Iðn- og tæknibrautir | 3.615 | 3.260 | 355 | 3.862 | 3.385 | 477 | 3.791 | 3.353 | 438 |
| Búsýslubrautir, matvælabrautir, þjónustuiðnir |
1.218 | 453 | 765 | 1.241 | 436 | 805 | 1.151 | 447 | 704 |
| Heilsubrautir | 437 | 22 | 415 | 598 | 33 | 565 | 705 | 32 | 673 |
| Alls | 21.363 | 10.274 | 11.089 | 21.890 | 10.601 | 11.289 | 22.599 | 10.996 | 11.603 |
| Heimild: Hagstofa Íslands. | |||||||||
Skólasókn árganga 16–19 ára.
Á tímabilinu 2002–2004 hófu 91–93% 16 ára ungmenna nám í dagskólum framhaldsskólanna að hausti. Tafla 2.4 sýnir að hlutfall þeirra sem voru við nám í hverjum árgangi 17–19 ára var talsvert lægra en við 16 ára aldur. Í öllum árgöngum 16–19 ára var hlutfall kvenna hærra en karla. Tölurnar í töflu 2.4 gætu bent til töluverðs brottfalls þar sem meiri hluti námsbrauta á framhaldsskólastigi er skipulagður sem fjögurra ára nám. Auk þess er ekki unnt að fullyrða mikið um námsframvindu út frá tölunum, t.d. hve hátt hlutfall 19 ára nemenda var á síðasta námsári.
Tafla 2.4. Hlutfallsleg skólasókn árganga 16–19 ára í dagskóla eftir kyni, að hausti 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | |||||||
| Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | |
| 16 ára | 91 | 88 | 93 | 91 | 90 | 93 | 93 | 92 | 94 |
| 17 ára | 81 | 79 | 83 | 82 | 80 | 85 | 83 | 81 | 85 |
| 18 ára | 72 | 69 | 74 | 74 | 72 | 75 | 74 | 71 | 77 |
| 19 ára | 67 | 63 | 72 | 68 | 64 | 73 | 68 | 65 | 71 |
| Skýringar: Nemendur í reglubundnu námi frá og með fyrsta ári framhaldsskólastigs, innan lands og erlendis. | |||||||||
| Heimild: Hagstofa Íslands. | |||||||||
Tafla 2.5 sýnir hlutfallslega skólasókn nemenda sem hófu nám í framhaldsskóla strax að loknum grunnskóla, skólaárin 2002/03–2004/05 eftir landsvæðum lögheimilis.
Tafla 2.5. Hlutfallsleg skólasókn 16 ára nemenda í dagskólum eftir landsvæðum
lögheimilis 2002/2003–2004/2005.
| Fæðingarár 1986 Skólaár 2002/2003 | Fæðingarár 1987 Skólaár 2003/2004 | Fæðingarár 1988 Skólaár 2004/2005 | |
| Reykjavík | 90 | 91 | 92 |
| Höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur | 92 | 94 | 94 |
| Suðurnes | 83 | 90 | 90 |
| Vesturland | 91 | 86 | 94 |
| Vestfirðir | 93 | 90 | 91 |
| Norðurland vestra | 88 | 89 | 89 |
| Norðurland eystra | 90 | 92 | 93 |
| Austurland | 91 | 89 | 91 |
| Suðurland | 92 | 91 | 93 |
| Alls | 91 | 91 | 93 |
| Skýringar: Nemendur fæddir 1986–1988 með lögheimili á Íslandi samkvæmt nemendaskrá Hagstofu Íslands. Fjöldi nemenda er talinn um miðjan október á hverju skólaári. Lögheimili miðast við þjóðskrá 1. desember ár hvert. Heimild: Hagstofa Íslands. | |||
Nemendur í kvöldskólum og fjarnámi.
Heildarfjöldi nemenda í kvöldskólum og fjarnámi jókst um tæplega 4% frá hausti 2002 til hausts 2004 (sjá töflu 2.6). Ef miðað er við fjölda nemenda í fjarnámi haustið 2001 þá fjölgaði nemendum í fjarnámi um 142% til hausts 2004. Konur voru í meiri hluta þeirra sem stunduðu nám í kvöldskólum og fjarnámi. Hlutfall þeirra var að meðaltali um 62% á tímabilinu.
Tafla 2.6. Fjöldi nemenda í kvöldskólum og fjarnámi eftir námsbrautum og kyni, að hausti 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | ||||||||||||||||
| Kvöldskóli | Fjarnám | Kvöldskóli | Fjarnám | Kvöldskóli | Fjarnám | |||||||||||||
| Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | |
| Almennar brautir | 905 | 358 | 547 | 977 | 265 | 712 | 627 | 223 | 404 | 331 | 123 | 208 | 540 | 228 | 312 | 415 | 146 | 269 |
| Málabrautir | 25 | 5 | 20 | 4 | 0 | 4 | 47 | 6 | 41 | 10 | 3 | 7 | 33 | 6 | 27 | 38 | 3 | 35 |
| Listabrautir | 11 | 2 | 9 | 7 | 0 | 7 | 31 | 6 | 25 | 11 | 3 | 8 | 22 | 5 | 17 | 34 | 9 | 25 |
| Uppeldis- og íþróttabrautir | 5 |
0 |
5 |
4 |
0 |
4 |
73 |
7 |
66 |
8 |
2 |
6 |
124 |
8 |
116 |
15 |
8 | 7 |
| Félagsfræðabrautir | 303 | 112 | 191 | 35 | 5 | 30 | 375 | 149 | 226 | 388 | 101 | 287 | 377 | 122 | 255 | 399 | 129 | 270 |
| Viðskipta- og hagfræðabrautir | 33 | 3 | 30 | 33 | 5 | 28 | 93 | 11 | 82 | 16 | 3 | 13 | 138 | 11 | 127 | 68 | 15 | 53 |
| Raungreinabrautir | 55 | 35 | 20 | 19 | 7 | 12 | 91 | 42 | 49 | 25 | 8 | 17 | 60 | 24 | 36 | 59 | 28 | 31 |
| Iðn- og tæknibrautir | 271 | 242 | 29 | 39 | 38 | 1 | 389 | 359 | 30 | 163 | 106 | 57 | 313 | 301 | 12 | 78 | 42 | 36 |
| Búsýslubrautir, matvælabrautir, þjónustuiðnir | 65 | 7 | 58 | 59 | 22 | 37 | 106 | 8 | 98 | 89 | 23 | 66 | 26 | 1 | 25 | 59 | 16 | 43 |
| Heilsubrautir | 29 | 7 | 22 | 20 | 0 | 20 | 86 | 8 | 78 | 56 | 2 | 54 | 92 | 7 | 85 | 116 | 8 | 108 |
| Alls | 1.702 | 771 | 931 | 1.197 | 342 | 855 | 1.918 | 819 | 1.099 | 1.097 | 374 | 723 | 1.725 | 713 | 1.012 | 1.281 | 404 | 877 |
| Skýringar: Hver nemandi er talinn aðeins einu sinni, þannig að stundi nemendi nám í tveimur skólum þá telst hann aðeins í öðrum þeirra. Heimild: Hagstofa Íslands | ||||||||||||||||||
Sérkennsla í framhaldsskólum er ætluð fötluðum nemendum samkvæmt skilgreiningu á hugtakinu fatlaður í 2. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, sbr. 19. gr. gildandi laga um framhaldsskóla og reglugerð um kennslu fatlaðra nemenda í framhaldsskólum nr. 372/1998. Tafla 2.7 sýnir fjölda nemenda sem nutu sérkennslu eða einstaklingskennslu á skólaárunum 2002/2003–2004/2005.
Tafla 2.7. Fjöldi nemenda í sérkennslu, að hausti 2002–2004.
| 2002 | 2003* | 2004 | ||
| Nemendur í sérdeildum | 248 | 260 | 275 | |
| Nemendur utan sérdeilda | 91 | 85 | 79 | |
| Nemendur í sérkennslu alls | 339 | 345 | 354 | |
| * Tölur fyrir 2003 eru birtar með fyrirvara. | ||||
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | ||||
Brautskráningar.
Brautskráningar úr framhaldsskólum voru að meðaltali 5.237 á skólaárunum 2002/2003 til 2004/2005 (sjá töflu 2.8). Fjölmennasti flokkur prófgráða voru stúdentspróf. Sveinspróf voru á þessu tímabili að meðaltali 557 á skólaári sem er örlítil fækkun frá meðaltali fyrri skýrslu. Hlutfall kvenna af þeim sem luku sveinsprófi var lágt, eða að meðaltali 21%. Önnur framhaldsskólapróf voru t.d. verslunarpróf, lokapróf af heilsugæslubrautum og próf í tækniteiknun.
T afla 2.8. Fjöldi brautskráninga eftir kyni, námsbrautum og prófgráðu, skólaárin 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005.
| 2002/2003 |
2003/2004 |
2004/2005 |
Hlutfall (%) kynja að meðaltali | ||||||||
| Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Karlar | Konur | |
| Alls | 5.179 | 2.582 | 2.597 | 5.251 | 2.499 | 2.752 | 5.281 | 2.532 | 2.749 | 48 | 52 |
| Almennt nám | 222 | 116 | 106 | 296 | 159 | 137 | 272 | 153 | 119 | 54 | 46 |
| Málabrautir | 308 | 56 | 252 | 274 | 46 | 228 | 264 | 51 | 213 | 18 | 82 |
| Listabrautir | 221 | 59 | 162 | 216 | 58 | 158 | 173 | 55 | 118 | 28 | 72 |
| Uppeldis- og íþróttabr. | 77 | 31 | 46 | 66 | 21 | 45 | 88 | 18 | 70 | 30 | 70 |
| Félagsfræðabrautir | 716 | 225 | 491 | 836 | 300 | 536 | 850 | 295 | 555 | 34 | 66 |
| Viðskipta- og hagfræðabr. | 721 | 324 | 397 | 549 | 212 | 337 | 575 | 189 | 386 | 39 | 61 |
| Raungreinabrautir | 971 | 444 | 527 | 1.059 | 437 | 622 | 1.026 | 471 | 555 | 44 | 56 |
| Iðn- og tæknibrautir | 1.264 | 1.136 | 128 | 1.223 | 1.110 | 113 | 1.284 | 1.124 | 160 | 89 | 11 |
| Búsýslu- og matvælabrautir og þjónustuiðnir | 537 |
181 |
356 |
553 |
145 |
408 |
556 |
164 |
392 |
30 |
70 |
| Heilsubrautir | 142 | 10 | 132 | 179 | 11 | 168 | 193 | 12 | 181 | 6 | 94 |
| Prófgráður | |||||||||||
| Burtfararpróf úr iðn | 594 | 462 | 132 | 634 | 453 | 181 | 651 | 475 | 176 | 74 | 26 |
| Sveinspróf | 565 | 452 | 113 | 508 | 402 | 106 | 597 | 463 | 134 | 79 | 21 |
| Stúdentspróf verkgreina | 207 | 105 | 102 | 340 | 159 | 181 | 297 | 144 | 153 | 48 | 52 |
| Stúdentspróf almennt | 2.360 | 881 | 1.479 | 2.195 | 788 | 1.407 | 2.151 | 831 | 1.320 | 37 | 63 |
| Önnur framhaldsskólapróf | 1.451 | 682 | 769 | 1.574 | 697 | 877 | 1.585 | 619 | 966 | 43 | 57 |
| Iðnmeistarapróf | 144 | 76 | 68 | 112 | 89 | 23 | 129 | 88 | 41 | 66 | 34 |
| Skýringar: Gögnum er safnað frá framhaldsskólum um nemendur sem útskrifast úr dagskóla, kvöldskóla eða fjarnámi í lok hvers misseris. Sami nemandi getur útskrifast af fleiri en einni námsbraut á sama ári. Heimildir: Hagstofa Íslands og Landshagir 2004. | |||||||||||
Tafla 2.9. Brautskráðir stúdentar í hlutfalli af tölu tvítugra,
skólaárin 2002/2003–2004/2005.
| Alls % | Karlar % | Konur % | |
| 2002/2003 | 58 | 45 | 71 |
| 2003/2004 | 60 | 44 | 77 |
| 2004/2005 | 61 | 49 | 72 |
| Heimild: Hagstofa Íslands. | |||
Brottfall.
Engin ein alþjóðleg skilgreining á brottfalli er viðurkennd. Til að mæla brottfall hér á landi hefur sú aðferð m.a. verið notuð að skoða breytingar á nemendahópnum milli skólaára. Er þá miðað við skráða framhaldsskólanemendur samkvæmt nemendaskrá Hagstofu Íslands um miðjan október og þeir bornir saman við nemendur í öllum skólum innan lands á sama tíma ári síðar. Nemendur á námssamningi og í annarri starfsþjálfun eru taldir með eftir því sem upplýsingar liggja fyrir um þá. Þeir nemendur sem ekki útskrifuðust á þessu tímabili, voru ekki látnir og voru ekki skráðir í skóla næsta haust á eftir teljast samkvæmt þessari skilgreiningu brottfallnir. Hagstofa Íslands hefur samkvæmt þessari skilgreiningu reiknað út brottfall milli skólaáranna 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005. Skólaárið 2002/2003 var brottfall í dagskólum 15,1%, skólaárið 2003/2004 var það 16,6% og skólaárið 2004/2005 16,4%.
Af þeim sem töldust brottfallnir 2002/2003 höfðu samkvæmt nemendaskrá Hagstofu Íslands samtals 43,8% hafið nám að nýju haustin 2004 og 2005 og af þeim sem töldust brottfallnir 2003/2004 höfðu samkvæmt sömu skrá 29,6% hafið nám að nýju haustið 2005.
3. Starfsfólk.
Framhaldsskólakennarar og leiðbeinendur.
Í nóvember 2004 voru 79,5% kennara í framhaldsskólum landsins með kennsluréttindi en 20,5% án kennsluréttinda (sjá töflu 3.1). Hæst var hlutfall kennara með kennsluréttindi á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, eða 86%, og á Norðurlandi vestra um 84%. Í Reykjavík var hlutfall réttindakennara rúmlega 81%. Lægst var hlutfall réttindakennara á Vestfjörðum, eða um 56%. Sé hins vegar miðað við fjölda stöðugilda á sama tíma voru 86% kennslu í framhaldsskólum landsins í höndum réttindakennara og 14% í höndum leiðbeinenda (sjá töflu 3.2). Konur voru orðnar rúmlega helmingur kennara og leiðbeinenda skólaárið 2004/2005 (sjá töflu 3.3).
Stjórnendur.
Hlutfall kvenna meðal skólameistara á skólaárinu 2004/2005 var um 21% og meðal aðstoðarskólameistara um 18%. Meðal stjórnenda á kennslusviði var hlutfall kvenna 44–47% á því tímabili sem skýrslan nær til (sjá töflu 3.3).
Tafla 3.1. Fjöldi og hlutfall starfsmanna við kennslu eftir aðsetri skóla, mars 2003 til nóvember 2004.
| Mars 2003 | Mars 2004 | Nóvember 2004 | |||||||||||||
| Landshlutar | Kennarar | Leiðbeinendur | Alls við | Kennarar | Leiðbeinendur | Alls við | Kennarar | Leiðbeinendur | Alls við | ||||||
| Fjöldi | % | Fjöldi | % | kennslu | Fjöldi | % | Fjöldi | % | kennslu | Fjöldi | % | Fjöldi | % | kennslu | |
| Reykjavík | 628 | 78,1 | 176 | 21,9 | 804 | 656 | 81,3 | 151 | 18,7 | 807 | 701 | 81,4 | 160 | 18,6 | 861 |
| Höfuðborgarsvæði utan Reykjavíkur | 193 |
78 |
53 |
21 |
246 |
196 |
82 |
41 |
17 |
237 |
209 |
86 |
34 |
14 |
243 |
| Suðurnes | 34 | 54,8 | 28 | 45,2 | 62 | 37 | 60,7 | 24 | 39,3 | 61 | 48 | 68,6 | 22 | 31,4 | 70 |
| Vesturland | 34 | 72,3 | 13 | 27,7 | 47 | 34 | 66,7 | 17 | 33,3 | 51 | 49 | 81,7 | 11 | 18,3 | 60 |
| Vestfirðir | 15 | 45,5 | 18 | 54,5 | 33 | 20 | 55,6 | 16 | 44,4 | 36 | 19 | 55,9 | 15 | 44,1 | 34 |
| Norðurl. vestra | 29 | 53,7 | 25 | 46,3 | 54 | 32 | 62,7 | 19 | 37,3 | 51 | 26 | 83,9 | 5 | 16,1 | 31 |
| Norðul. eystra | 164 | 81,2 | 38 | 18,8 | 202 | 163 | 80,3 | 40 | 19,7 | 203 | 167 | 76,6 | 51 | 23,4 | 218 |
| Austurland | 42 | 57,5 | 31 | 42,5 | 73 | 47 | 62,7 | 28 | 37,3 | 75 | 46 | 65,7 | 24 | 34,3 | 70 |
| Suðurland | 87 | 69 | 39 | 31 | 126 | 81 | 65,3 | 43 | 34,7 | 124 | 91 | 76,5 | 28 | 23,5 | 119 |
| Landið allt | 1.226 | 74,4 | 421 | 25,6 | 1.647 | 1.266 | 77 | 379 | 23 | 1.645 | 1.356 | 79,5 | 350 | 20,5 | 1.706 |
| Heimild: Hagstofa Íslands. | |||||||||||||||
Tafla 3.2. Fjöldi og hlutfall stöðugilda eftir landsvæðum 2003–2004.
| Mars 2003 | Mars 2003 | Nóvember 2004 | |||||||||||||
| Landshlutar |
Kennarar |
Leiðbeinendur |
Stöðu- gildi |
Kennarar |
Leiðbeinendur |
Stöðu- gildi |
Kennarar |
Leiðbeinendur |
Stöðu- gildi |
||||||
| Stöðugildi | % | Stöðugildi | % | alls | Stöðugildi | % | Stöðugildi | % | alls | Stöðugildi | % | Stöðugildi | % | alls | |
| Reykjavík | 724 | 85 | 131 | 15 | 856 | 729 | 90 | 114 | 14 | 807 | 797 | 87 | 114 | 13 | 911 |
| Höfborgarsvæði utan Reykjavíkur | 220 |
86 |
36 |
14 |
256 |
234 |
99 |
28 |
12 |
237 |
248 |
91 |
26 |
9 |
273 |
| Suðurnes | 42 | 61 | 26 | 39 | 68 | 45 | 74 | 27 | 45 | 61 | 58 | 71 | 24 | 29 | 82 |
| Vesturland | 42 | 77 | 12 | 23 | 54 | 43 | 84 | 11 | 22 | 51 | 59 | 85 | 11 | 15 | 69 |
| Vestfirðir | 17 | 58 | 12 | 42 | 30 | 23 | 63 | 11 | 31 | 36 | 23 | 63 | 13 | 37 | 36 |
| Norðurl. vestra | 34 | 64 | 20 | 36 | 54 | 36 | 70 | 19 | 37 | 51 | 32 | 87 | 5 | 13 | 37 |
| Norðurl. eystra | 166 | 84 | 31 | 16 | 197 | 175 | 86 | 26 | 13 | 203 | 190 | 88 | 26 | 12 | 217 |
| Austurland | 44 | 63 | 26 | 37 | 70 | 46 | 61 | 23 | 31 | 75 | 53 | 75 | 18 | 25 | 71 |
| Suðurland | 92 | 74 | 32 | 26 | 124 | 87 | 70 | 32 | 26 | 124 | 101 | 80 | 26 | 20 | 126 |
| Landið allt | 1.381 | 81 | 327 | 19 | 1.708 | 1.418 | 86 | 291 | 18 | 1.645 | 1.560 | 86 | 262 | 14 | 1.822 |
| Skýringar: Fjöldi stöðugilda reiknaður út frá heildarkennslumagni. Inn í þessum tölum eru allir þeir starfsmenn sem koma að kennslu sem og allt vinnuframlag þeirra, einnig það sem ekki snýr að kennslu. Heimild: Hagstofa Íslands. |
|||||||||||||||
Tafla 3.3. Fjöldi og hlutfall starfsfólks eftir starfsheiti og kyni, 2002–2005.
| 2002/2003 | 2003/2004 | 2004/2005 | |||||||||||||
| Karlar | Konur | Karlar | Konur | Karlar | Konur | ||||||||||
| Fjöldi | % | Fjöldi | % | Alls | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Alls | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Alls | |
| Skólameistarar | 29 | 80,6 | 7 | 19,4 | 36 | 29 | 80,6 | 7 | 19,4 | 36 | 30 | 78,9 | 8 | 21,1 | 38 |
| Aðstoðarskólameistarar | 22 | 75,9 | 7 | 24,1 | 29 | 23 | 76,7 | 7 | 23,3 | 30 | 23 | 82,1 | 5 | 17,9 | 28 |
| Stjórnendur á kennslusviði | 179 | 55,6 | 143 | 44,4 | 322 | 167 | 54,9 | 137 | 45,1 | 304 | 151 | 53,0 | 134 | 47,0 | 285 |
| Framhaldsskólakennarar og leiðbeinendur | 658 |
50,3 |
649 |
49,7 |
1.307 |
660 |
49,8 |
665 |
50,2 |
1.325 |
704 |
49,2 |
727 |
50,8 |
1.431 |
| Sérfræðingar og sérhæfðir starfsmenn | 24 | 60,0 | 16 | 40,0 | 40 | 22 | 55,0 | 18 | 45,0 | 40 | 12 | 48,0 | 13 | 52,0 | 25 |
| Ráðgjafar og starfsfólk á bókasafni | 21 | 16,9 | 103 | 83,1 | 124 | 21 | 14,9 | 120 | 85,1 | 141 | 34 | 21,5 | 124 | 78,5 | 158 |
| Skrifstofustörf og tölvuvinna | 39 | 25,8 | 112 | 74,2 | 151 | 41 | 28,3 | 104 | 71,7 | 145 | 46 | 31,1 | 102 | 68,9 | 148 |
| Starfsfólk við rekstur húsnæðis | 88 | 27,1 | 237 | 72,9 | 325 | 99 | 30,3 | 228 | 69,7 | 327 | 75 | 26,8 | 205 | 73,2 | 280 |
| Annað starfsfólk | 4 | 57,1 | 3 | 42,9 | 7 | 7 | 70,0 | 3 | 30,0 | 10 | 2 | 33,3 | 4 | 66,7 | 6 |
|
Skýringar: Tölur fyrir skólaárið 2002/2003 miðast við mars 2003. Tölur fyrir skólaárið 2003/2004 miðast við mars 2004. Tölur fyrir skólaárið 2004/2005 miðast við nóvember 2004. Heimild: Hagstofa Íslands. |
|||||||||||||||
Starfsfólki við önnur störf en kennslu, svo sem á skrifstofu og bókasafni, fækkaði um 5% á tímabilinu 2002/2003–2004/2005. Í þessum störfum voru konur yfirleitt í miklum meiri hluta (sjá töflu 3.3 og mynd 3.1).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Aldur starfsfólks við kennslu.
Mynd 3.2 sýnir aldursdreifingu framhaldsskólakennara og leiðbeinenda í nóvember 2004. Þar kemur fram að 44% kennara og leiðbeinenda voru 50 ára og eldri en einungis 24% voru 39 ára og yngri, þar af 6% 29 ára og yngri (sjá mynd 3.2).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Endurmenntun.
Endurmenntunarnefnd framhaldsskólakennara er skipuð af menntamálaráðherra til fjögurra ára í senn. Hlutverk nefndarinnar er að ákveða framboð á endurmenntun fyrir framhaldsskólakennara í samráði við faggreinafélög kennara og menntamálaráðuneyti. Nefndin ákveður einnig hvernig skipta skuli því fé sem veitt er á fjárlögum til endurmenntunar framhaldsskólakennara á hverju ári (sjá 6. kafla um fjárveitingar til endurmenntunar). Endurmenntun Háskóla Íslands sér um framkvæmd endurmenntunarnámskeiða fyrir framhaldsskólakennara.
Í töflu 3.4 má sjá fjölda þátttakenda í endurmenntunarnámskeiðum fyrir framhaldsskólakennara og leiðbeinendur. Annars vegar er um að ræða þátttöku í faggreinanámskeiðum sem haldin eru innan lands og í sumum tilvikum utan lands og hins vegar í námi samhliða kennslu Taflan sýnir einnig almennt meiri þátttöku kvenna en karla í faggreinanámskeiðum og námi samhliða starfi. Mynd 3.3 sýnir þátttöku í endurmenntunarnámskeiðum, skipt eftir námsgreinum.
Tafla 3.4. Fjöldi þátttakenda á endurmenntunarnámskeiðum 2003–2005.
| Faggreinanámskeið | Nám samhliða kennslu | Þátttaka | |||||
| Karlar | Konur | Alls | Karlar | Konur | Alls | Alls | |
| 2003 | 185 | 254 | 439 | 23 | 51 | 74 | 513 |
| 2004 | 126 | 327 | 453 | 35 | 78 | 113 | 566 |
| 2005 | 148 | 382 | 530 | 27 | 66 | 93 | 623 |
| Alls | 459 | 963 | 1.422 | 85 | 195 | 280 | 1.702 |
| Heimild: Endurmenntun Háskóla Íslands. | |||||||
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Námsorlof.
Námsorlof kennara og skólameistara voru 29 á skólaárunum 2002/2003–2004/2005, þar af voru fimm bundin við umsóknir frá einstökum framhaldsskólum. Er þeim ætlað að koma til móts við óskir skóla um endurmenntun kennara en önnur námsorlof eru einstaklingsbundin (sjá töflu 3.5).
Tafla 3.5. Námsorlof 2002/2003–2004/2005.
| Skólaár | Fjöldi umsókna | Fjöldi orlofsþega | Stöðugildi |
| 2002/2003 | 74 | 30 | 29 |
| 2003/2004 | 68 | 31 | 29 |
| 2004/2005 | 87 | 34 | 29 |
| Alls | 229 | 95 | 87 |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | |||
Laun framhaldsskólakennara og leiðbeinenda.
Í töflu 3.6 má sjá meðaltal mánaðarlauna kennara árin 2003–2005, þ.e. dagvinnulaun, yfirvinnulaun, önnur laun og heildarlaun. Fram kemur m.a. að meðaltal heildarmánaðarlauna kennara á árinu 2005 var um 354 þús. kr. og höfðu þau hækkað um 16% frá árinu 2002 þegar þau voru um 305 þús. kr. Meðaltalshlutfall yfirvinnu og annarra launa af heildarlaunum árið 2005 var 27%. Taflan sýnir einnig nokkurn launamun kynja, sérstaklega ef litið er til heildarlauna.
Tafla 3.6. Meðaltal mánaðarlauna kennara 2003, 2004 og 2005 (kr.)
| 2003 | 2004 | 2005 | |||||||
| Allir | Karlar | Konur | Allir | Karlar | Konur | Allir | Karlar | Konur | |
| Dagvinnulaun | 231.034 | 233.676 | 228.130 | 239.187 | 242.234 | 236.032 | 257.958 | 260.672 | 255.314 |
| Yfirvinnulaun | 81.373 | 99.344 | 61.614 | 80.532 | 100.200 | 60.168 | 87.332 | 107.881 | 67.322 |
| Önnur laun | 4.265 | 4.246 | 4.285 | 4.148 | 4.119 | 4.177 | 9.011 | 9.047 | 8.974 |
| Heildarlaun | 316.673 | 337.267 | 294.029 | 323.867 | 346.553 | 300.378 | 354.301 | 377.600 | 331.610 |
|
Heimild: Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna. Skýringar: Greidd laun frá Fjársýslu ríkisins til félaga innan Kennarasambands Íslands sem starfa í framhaldsskólum. Ársmeðaltölin eru vegin meðaltöl hvers mánaðar. |
|||||||||
4. Mat.
Námsmat.
Samkvæmt 24. gr. gildandi laga um framhaldsskóla skal almennt námsmat vera í höndum kennara og deildarstjóra. Skal matið byggjast á markmiðum skólastarfs sem kveðið er á um í aðalnámskrá og skólanámskrá. Í samræmi við ákvæði fyrrnefndrar lagagreinar og reglugerðar nr. 196/2003 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa voru haldin samræmd stúdentspróf á árunum 2004 og 2005. Á árinu 2004 voru á vor- og haustmisseri haldin samræmd stúdentspróf í íslensku og á árinu 2005 voru haldin samræmd stúdentspróf í íslensku, ensku og stærðfræði á vor- og haustmissri. Lagaákvæði um samræmd stúdentspróf var fellt úr gildi í maí 2006.
Námi í löggiltum iðngreinum lýkur með sveinsprófi og kveður ráðherra á um samræmingu og framkvæmd sveinsprófa með reglugerð. Skv. 5. gr. reglugerðar um sveinspróf nr. 525/ 2000 skipar menntamálaráðherra sveinsprófsnefndir til að hafa yfirumsjón með undirbúningi og fyrirkomulagi sveinsprófa.
Sjálfsmat.
Í 23. gr. laga um framhaldsskóla er kveðið á um að sérhver framhaldsskóli skuli innleiða aðferðir til að meta skólastarfið, þar á meðal kennslu- og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans. Í lögunum er einnig ákvæði þess efnis að á fimm ára fresti skuli að frumkvæði menntamálaráðuneytis gerð úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla.
Á vormisseri 2002 hófust í samræmi við fyrrgreint lagaákvæði úttektir á sjálfsmatsaðferðum 14 framhaldsskóla. Var úttektunum síðan fram haldið næstu tvö misseri. Þær voru unnar af utanaðkomandi aðilum sem menntamálaráðuneytið réði að undangenginni auglýsingu. Vorið 2003 var lokið úttektum á sjálfsmatsaðferðum 29 framhaldsskóla, þ.e. allra almennra mennta-, fjölbrauta-, iðn- og sérskóla. Við úttektirnar var sjónum einkum beint að stöðu sjálfsmats, sjálfsmatskerfi og framkvæmd sjálfsmats í skólunum.
Helstu niðurstöður úttektanna á skólunum 29 voru að 14 framhaldsskólar höfðu unnið kerfisbundið sjálfsmat, eða 49% skólanna. Af þeim hafði kerfisbundið sjálfsmat á öllum helstu þáttum skólastarfsins farið fram í fjórum skólum en í tíu skólum á tilteknum þáttum skólastarfs. Allir skólarnir 29 höfðu unnið eitthvað við sjálfsmat. Í töflu 4.1 má sjá samantekt á niðurstöðum mats á sjálfsmatsaðferðum skólanna. Sjálfsmatsaðferðir 14 skóla af 29 töldust fullnægjandi eða fullnægjandi að hluta.
Tafla 4.1 Niðurstöður úttekta á sjálfsmatsaðferðum framhaldsskóla
| Fjöldi skóla | Hlutfall | |
| Fullnægjandi | 7 | 24% |
| Fullnægjandi að hluta | 7 | 24% |
| Ófullnægjandi | 15 | 52% |
| Alls | 29 | 100% |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | ||
Ytra mat.
Í reglugerð nr. 139/1997 um eftirlit með starfi framhaldsskóla og námsefni og um ráðgjöf vegna kennslu og þróunarstarfa er ákvæði þess efnis að menntamálaráðherra geti látið fara fram úttekt á starfi framhaldsskóla. Slík úttekt getur miðast við ákveðna þætti skólastarfs eða heildarmat á starfi einstakra framhaldsskóla.
Megintilgangur ytra mats á skólum er að fá heildarmynd af skólastarfinu eða einstökum þáttum þess. Skoðaðir eru ýmsir þættir í innra starfi skólanna, svo sem stjórnun, kennsla, samskipti, samstarf, námsárangur, skólaandi og tengsl við samfélagið utan skólans.
Á því tímabili sem skýrsla þessi nær til hafa verið gerðar heildarúttektir á þremur skólum á framhaldsskólastigi: Snyrtiskóla Íslands 2003, Menntaskólanum Hraðbraut 2005 og Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum 2005. Auk þess voru á árinu 2003 gerðar fagúttektir á fjarkennslu við Fjölbrautaskólann við Ármúla og Verkmenntaskólann á Akureyri, og á upplýsinga- og tæknibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Einnig var á sama ári gerð úttekt á forvarnarstarfi í framhaldsskólum.
Upplýsingar um einstakar úttektir er að finna á vef menntamálaráðuneytisins (www. menntamalaraduneyti.is).
5. Aðstaða.
Húsnæði framhaldsskóla.
Á árunum 2000–2002 varð sú breyting á viðhaldi og umsýslu húsnæðis framhaldsskóla að Fasteignir ríkisins yfirtóku húsnæðið og leigja skólunum. Enn hafa fasteignirnar þó ekki yfirtekið húsnæði Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans að Laugarvatni. Verzlunarskóli Íslands, Iðnskólinn í Hafnarfirði og Fjölbrautaskóli Snæfellinga eru í einkareknu húsnæði og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu samnýtir Nýheima með sveitarfélaginu Hornafirði.
Framhaldsskólarnir og Fasteignir ríkisins hafa með sér leigusamninga. Til þess að standa straum af þeirri leigu reiknast skólunum framlag í reiknilíkani með hliðsjón af nýtingu húsnæðisins, einkum almennu húsnæði en heimavistarhúsnæði að hluta. Kerfinu er ætlað að hvetja til ráðdeildar bæði í byggingu og rekstri húsnæðis skólanna. Raunhúsnæði skólanna í reiknilíkani 2005 telst vera 176.548 fermetrar en reiknað húsnæði 183.483 fermetrar.
Heimavistarhúsnæði telst vera 15.632 fermetrar. Við framhaldsskólana á Akureyri og við Fjölbrautaskóla Suðurlands eru einkareknar heimavistir og eru þær ekki innifaldar í framangreindri fermetratölu.
Nýbyggingar.
Á árinu 2003 var lokið við 9. og 10. áfanga Verkmenntaskólans á Akureyri, 2.150 fermetrar að stærð. Árið 2004 var tekin í notkun sundlaug að Laugum í Reykjadal en gengið frá henni að fullu árið 2005. Nýtt íþrótta- og kennsluhús Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi var tekið í notkun á haustönn 2004. Stærð þess er 2.450 fermetrar, þar af teljast 2.050 fermetrar vera skólahúsnæði. Lokaáfangi kennslumiðstöðvar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var tekinn í notkun að hluta, 1.040 fermetrar að stærð. Ný kennsluálma Fjölbrautaskóla Suðurnesja var tekin í notkun, 2.800 fermetrar að stærð. Ný norðurálma Menntaskólans í Kópavogi var tekin í notkun, 1.640 fermetrar að stærð. Álman kom í stað 800 fermetra álmu sem var rifin. Á árinu 2005 var lokið við sundlaug að Laugum í Reykjadal. Lokaáfangi kennslumiðstöðvar Fjölbrautaskóla Vesturlands var tekinn í notkun að fullu.
Samkvæmt þessu yfirliti hafa 8.880 nýir fermetrar skólahúsnæðis framhaldsskóla verið teknir í notkun á árunum 2003–2005. 1
6. Fjárveitingar til framhaldsskólastigs.
Reiknilíkan, árangursstjórnun og skólasamningar.
Ítarleg grein var gerð fyrir reiknilíkani til skiptingar fjár til framhaldsskóla í fyrri skýrslum menntamálaráðherra til Alþingis um framkvæmd skólahalds á framhaldsskólastigi (2000 og 2003).
Á árinu 2002 var gengið frá endurskoðun á reiknilíkani framhaldsskólastigsins. Margháttaðar breytingar voru gerðar og voru eftirfarandi breytingar veigamiklar: Ein launastika var tekin upp fyrir alla skólana í stað meðallauna hvers og eins áður. Þetta kom litlum skólum úti á landi einkum til góða. Tekið var að flokka alla kennslu í misdýrar kennslustofur auk mismunandi hópstærða sem áður hafði verið. Þetta kom starfsnámsskólum til góða. Tekin var upp aðgreining bóklegra áfanga í fagbóklega og aðra bóklega áfanga. Fagbóklegir áfangar fengu lægra viðmið hópstærða en aðrir bóklegir áfangar og kom það einnig starfsnámi til góða. Tekinn var upp nýr reikningur húsnæðisstærða sem heldur íþyngdi þeim sem höfðu mjög rúmt húsnæði. Heimavistir voru teknar inn í líkanið svo og öldungadeildir. Þessi endurskoðun reiknilíkansins leiddi í heild til um 4,5% hækkunar á reiknaðri fjárþörf framhaldsskólanna. Sú hækkun fékkst viðurkennd inn í ramma menntamálaráðuneytis 2004.
Í lok tímabilsins sem skýrslan nær til var ekki annað utan reiknilíkans en nokkur sérverkefni einstakra skóla og kennsla fatlaðra nemenda, þ.e. sérkennsla. Hafinn var undirbúningur þess að taka sérkennsluna inn í reiknilíkanið.
Á árunum 1998–2002 voru skólasamningar ráðuneytisins og einstakra skóla endurnýjaðir frá ári til árs. Samningarnir eru formgerð árangursstjórnunar ráðuneytisins gagnvart framhaldsskólum. Á árinu 2003 voru skólasamningar gerðir til þriggja ára við flesta skóla og giltu þannig út árið 2005. Þótt samningar væru ekki í öllum tilfellum undirrritaðir var unnið í anda þeirra og sams konar samráð ráðuneytis og allra ríkisreknu skólanna viðhaft.
Útgjöld til framhaldsskólastigs.
Útgjöld hins opinbera til framhaldsskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu voru árin 2002–2005 á bilinu 1,38–1,48%, hæst árið 2003 (sjá töflu 6.1). Í krónum talið nemur hækkunin um 23% á tímabilinu. Kostnaður hins opinbera á hvern nemanda hækkaði frá árinu 2002 til 2005 úr 641 þús. kr. í 695 þús. kr. Í öllum tilvikum er miðað við verðlag viðkomandi árs.
Tafla 6.1. Útgjöld til framhaldsskólastigs 2002–2005.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Útgjöld hins opinbera í millj. kr. | 11.397 | 12.325 | 13.334 | 13.972 |
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 1,42% | 1,48% | 1,46% | 1,38% |
| Kostnaður hins opinbera á nemanda í þús. kr. | 641 | 668 | 687 | 695 |
| Útgjöld ríkissjóðs í millj. kr. | 10.863 | 11.726 | 12.753 | 13.403 |
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 1,35% | 1,41% | 1,39% | 1,32% |
| Kostnaður ríkisins á nemanda í þús. kr. | 611 | 636 | 657 | 667 |
| Útgjöld sveitarfélaga í millj. kr. | 534 | 599 | 581 | 569 |
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 0,07% | 0,07% | 0,06% | 0,06% |
| Kostnaður sveitarfélaga á nemanda í þús.kr. | 100 | 101 | 102 | 103 |
| Útgjöld heimila í millj. kr. | 920 | 1.030 | 1.084 | 1.191 |
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 0,11% | 0,12% | 0,12% | 0,12% |
| Kostnaður heimila á nemanda í þús. kr. | 52 | 56 | 56 | 59 |
| Verg landsframleiðsla | 804.723 | 830.621 | 915.286 | 1.012.201 |
| Fjöldi nemenda á framhaldsskólastigi * | 17.769 | 18.451 | 19.408 | 20.099 |
| *Um er að ræða fjölda nemenda á framhaldsskólastigi í dagskólum | ||||
| Heimild: Hagstofa Íslands. | ||||
Í töflu 6.2 er að finna upplýsingar um fjárveitingar til þeirra framhaldsskóla sem heyra undir menntamálaráðuneytið samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreikninga 2002–2004. Á árinu 2004 námu útgjöld vegna framhaldsskólastigs samkvæmt ríkisreikningi 34,1% af útgjöldum menntamálaráðuneytis.
Tafla 6.2. Framlög til reksturs framhaldsskóla* samkvæmt fjárlögum, fjárheimildum og ríkisreikningi 2002, 2003 og 2004.
| 2002 | 2003 | 2004 | |||||||
| Í þús. kr. | Fjárlög | Fjárheim- ildir** | Ríkis- reikningur *** | Fjárlög | Fjárheim- ildir** | Ríkis- reikningur *** | Fjárlög | Fjárheim -ildir** | Ríkis- reikningur *** |
| Borgarholtsskóli | 393.000 | 458.400 | 441.500 | 428.000 | 564.700 | 530.400 | 468.300 | 567.600 | 595.300 |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | 195.200 | 205.300 | 211.500 | 195.100 | 186.300 | 222.100 | 183.000 | 219.400 | 225.500 |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | 25.600 | 39.200 | 50.900 | ||||||
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | 356.400 | 383.500 | 388.100 | 357.900 | 388.100 | 423.700 | 383.600 | 428.100 | 442.000 |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | 292.800 | 314.400 | 339.300 | 308.400 | 377.100 | 386.200 | 341.600 | 438.100 | 416.600 |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | 280.900 | 326.900 | 321.000 | 291.000 | 332.000 | 324.200 | 296.500 | 337.400 | 343.700 |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | 555.600 | 560.700 | 654.600 | 588.400 | 677.000 | 668.900 | 641.800 | 677.200 | 658.900 |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | 222.000 | 295.900 | 313.000 | 219.500 | 309.600 | 360.700 | 288.600 | 349.900 | 379.300 |
| Fjölbrautaskólinn við Ármúla | 303.300 | 404.700 | 417.700 | 313.900 | 430.300 | 433.200 | 400.600 | 505.600 | 511.600 |
| Flensborgarskólinn | 243.000 | 258.300 | 281.500 | 236.100 | 259.900 | 291.500 | 247.800 | 301.100 | 316.300 |
| Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu | 47.900 | 61.700 | 62.800 | 48.800 | 66.600 | 58.400 | 63.900 | 73.900 | 64.500 |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | 74.400 | 75.000 | 79.900 | 76.300 | 88.700 | 92.100 | 77.800 | 98.300 | 98.400 |
| Framhaldsskólinn á Laugum | 78.600 | 100.400 | 82.600 | 80.300 | 90.100 | 102.300 | 82.400 | 104.100 | 107.400 |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | 117.800 |
129.200 |
130.700 |
118.000 |
127.400 |
133.800 |
124.900 |
135.000 |
132.800 |
| Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað | 16.100 | 16.100 | 16.100 | 16.500 | 16.500 | 16.500 | 17.000 | 17.900 | 17.900 |
| Hússtjórnarskólinn í Reykjavík | 18.400 | 18.400 | 18.400 | 18.800 | 19.000 | 19.000 | 23.100 | 24.500 | 24.500 |
| Iðnskólinn í Hafnarfirði | 258.300 | 294.900 | 302.500 | 320.000 | 342.200 | 343.000 | 369.600 | 431.100 | 366.500 |
| Iðnskólinn í Reykjavík | 857.000 | 831.700 | 952.800 | 890.100 | 953.800 | 995.500 | 855.600 | 959.400 | 981.100 |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | 216.900 | 220.100 | 231.200 | 216.400 | 223.400 | 237.700 | 215.300 | 245.200 | 246.600 |
| Listdansskóli Íslands | 54.800 | 49.700 | 71.300 | 57.500 | 52.600 | 69.700 | 56.500 | 56.200 | 72.300 |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | 98.100 | 105.500 | 113.300 | 108.800 | 114.600 | 129.800 | 90.500 | 111.300 | 110.800 |
| Tafla 6.2 frh. | 2002 | 2003 | 2004 | ||||||
| Í þús. kr. | Fjárlög | Fjárheim- ildir** | Ríkis- reikningur *** | Fjárlög | Fjárheim- ildir** | Ríkis- reikningur *** | Fjárlög | Fjárheim- ildir** | Ríkis- reikningur *** |
| Menntaskólinn á Akureyri | 288.600 | 295.900 | 292.400 | 300.500 | 309.000 | 343.100 | 296.500 | 325.700 | 342.000 |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | 142.700 | 181.600 | 157.200 | 154.200 | 161.200 | 177.100 | 163.500 | 183.500 | 183.300 |
| Menntaskólinn á Ísafirði | 142.000 | 152.600 | 163.400 | 147.400 | 170.300 | 170.500 | 156.800 | 189.900 | 192.800 |
| Menntaskólinn Hraðbraut | 107.600 | 107.600 | 107.600 | ||||||
| Menntaskólinn í Kópavogi | 435.500 | 481.700 | 524.100 | 459.000 | 544.200 | 519.700 | 468.200 | 552.400 | 519.400 |
| Menntaskólinn í Reykjavík | 313.700 | 321.300 | 328.300 | 313.700 | 336.000 | 351.900 | 320.200 | 390.000 | 374.900 |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | 398.700 | 458.100 | 485.700 | 410.000 | 473.900 | 499.500 | 458.500 | 511.800 | 521.600 |
| Menntaskólinn við Sund | 288.700 | 312.900 | 304.700 | 285.300 | 313.400 | 321.500 | 294.900 | 336.300 | 338.700 |
| Stýrimannaskólinn í Reykjavík | 46.400 | 46.900 | 53.700 | 58.100 | 51.800 | 60.100 | 60.500 | 66.600 | 71.600 |
| Verkmenntaskóli Austurlands | 108.900 | 120.100 | 137.900 | 107.800 | 122.200 | 140.200 | 117.900 | 137.900 | 139.900 |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | 517.200 | 516.700 | 593.600 | 540.200 | 616.800 | 650.100 | 626.200 | 688.200 | 704.500 |
| Verslunarskóli Íslands | 463.500 | 463.500 | 463.500 | 485.600 | 508.100 | 508.100 | 562.200 | 596.200 | 596.200 |
| Vélskóli Íslands | 84.600 | 101.100 | 114.400 | 115.600 | 152.900 | 156.500 | 144.600 | 165.100 | 180.300 |
| * Eingöngu framhaldsskólar sem heyra undir menntamálaráðuneytið. | |||||||||
| ** Fjárheimild ársins nær til samþykktra fjárheimilda fyrir viðkomandi reikningsár, þ.e. samkvæmt fjárlögum ársins, fjáraukalögum ársins eða millifærslum af öðrum fjárlagaliðum, svo sem safnliðum og vegna launa- og verðbóta. *** Ríkisreikningur sýnir rekstrargrunn bókhalds, þ.e. heildarútgjöld skólanna á rekstrarárinu að frádregnum sértekjum. Heimildir: Ríkisreikningur fyrir árið 2002, ríkisreikningur fyrir árið 2003 og ríkisreikningur fyrir árið 2004. |
|||||||||
Tafla 6.3 sýnir fjárframlög til sérkennslu í framhaldsskólum á árunum 2002–2005. Framlögin hækkuðu um 24% frá árinu 2002 til ársins 2005.
Tafla 6.3. Fjárframlög til sérkennslu 2002–2005.
| Ár | Upphæð |
| 2002 | 270,0 millj. kr. |
| 2003 | 298,8 millj. kr. |
| 2004 | 293,8 millj. kr. |
| 2005 | 334,7 millj. kr. |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | |
Endurmenntun.
Í töflu 6.4. má sjá fjárframlög á fjárlögum til endurmenntunar framhaldsskólakennara á árunum 2003–2005.
Tafla 6.4. Fjárframlög til endurmenntunar 2003–2005.
| Ár | Upphæð |
| 2003 | 35.400.000 |
| 2004 | 25.900.000 |
| 2005 | 36.900.000 |
|
Skýringar: Hér er um að ræða framlög sem endurmenntunarnefnd framhaldsskóla ráðstafar til námskeiðahalds. |
|
Þróunarsjóður framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu.
Á grundvelli 45. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 veitir Alþingi árlega fé til þróunarstarfs á framhaldsskólastigi og á sviði fullorðinsfræðslu. Á árunum 2002–2005 var styrkjum úthlutað til 156 þróunarverkefna. Heildarstyrkveitingar á fyrrgreindu tímabili námu 65.090.000 kr. og greinast sem hér segir:
Tafla 6.5. Styrkveitingar úr Þróunarsjóði framhaldsskóla
og fullorðinsfræðslu 2002–2005.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | |
| Heildarstyrkveiting í þús. kr. Fjöldi styrktra verkefna |
17.690 43 |
14.900 37 |
16.700 35 |
15.800 41 |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | ||||
Upplýsingar um styrkveitingar til einstakra skóla og verkefna úr þróunarsjóði framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu er að finna á vef menntamálaráðuneytis (www. menntamalaraduneyti.is).
Styrkir til námsefnisgerðar.
Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til útgáfu og gerðar námsefnis í bóklegum og verklegum námsgreinum á framhaldsskólastigi. Samtals var úthlutað 79.100.000 kr. á árunum 2002–2005 (sjá nánar í töflu 6.6). Hlutverk styrkjanna er að bæta úr skorti sem er á námsefni í ýmsum námsgreinum, auka framboð á námsefni á íslensku og bæta gæði þess. Nefnd skipuð af menntamálaráðherra metur umsóknir og gerir tillögu til ráðherra um úthlutun.
Tafla 6.6. Styrkir til námsefnisgerðar á
framhaldsskólastigi 2002–2005.
| Ár | Upphæð |
| 2002 | 22.700 þús. kr. |
| 2003 | 18.200 þús. kr. |
| 2004 | 18.900 þús. kr. |
| 2005 | 19.300 þús. kr. |
| Heimild: Menntamálaráðuneyti. | |
7. Alþjóðlegt samstarf.
Íslenskir framhaldsskólar hafa í vaxandi mæli á undanförnum árum tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi. Með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu urðu Íslendingar fullgildir aðilar að samstarfsáætlunum Evrópusambandsins á sviði menntamála og vísinda. Sókrates og Leonardó da Vinci áætlanirnar frá 1995 veittu íslenskum framhaldsskólum möguleika á þátttöku í margvíslegum samstarfsverkefnum milli skóla í Evrópu, kennara- og nemendaskiptum og námskeiðum. Hefur þessi þátttaka staðið síðan, og frá árinu 2000 innan annars hluta Sókrates og Leonardó da Vinci áætlananna sem ná til ársins 2007.
Menntamálaráðuneytið tók á árinu 2005 þátt í verkefni Evrópuráðsins um borgaravitund og lýðræði í skólastarfi (Education for Citizenship) og Evrópuári um þennan málaflokk í skólastarfi (European Year of Citizenship through Education 2005). Meginmarkmið með verkefninu var að vekja skólasamfélagið til umhugsunar um borgaravitund, lýðræði og mannréttindi í formlegri og óformlegri menntun á grunn- og framhaldsskólastigi. Meðal verkefna menntamálaráðuneytisins á árinu 2005 voru málþing ungs fólks á aldrinum 14–18 ára og dagur borgaravitundar og lýðræðis.
Ísland á aðild að svokallaðri Kaupmannahafnaryfirlýsingu sem undirrituð var af fulltrúum 31 ríkis í Evrópu og af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í nóvember 2002. Yfirlýsingin var síðan áréttuð á fundi sömu aðila í Maastricht í desember 2004. Með yfirlýsingunni takast löndin á hendur það verkefni að auka samstarf í starfsmenntamálum sín á milli og gera menntun og prófskírteini skýrari og gagnsærri í þeim tilgangi að ryðja úr vegi hindrunum fyrir auknu flæði námsmanna og launafólks innan Evrópu. Með yfirlýsingunni er og stefnt að því að auka aðgengi fólks að námi, efla fullorðinsfræðslu, auka gæði starfsmenntunar og leita leiða til þess að meta starfsreynslu fólks og fyrra nám þess, óháð því hvar það hefur verið stundað. Menntamálaráðuneytið hefur í þessum tilgangi tekið upp víðtækt samstarf við samtök aðila á vinnumarkaði um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem m.a. hefur það hlutverk að þróa aðferðir til þess að meta starfsreynslu og fyrra nám fólks, svokallað raunfærnimat. Menntamálaráðuneytið heldur úti sérstakri vefsíðu sem ætlað er að leiðbeina fólki um viðurkenningu starfsmenntunar erlendis frá.
Gegnum Nordplus-junior og Nordplus-voksen áætlanirnar veitir norræna ráðherranefndin fé til nemendaferða og náms á Norðurlöndum fyrir framhaldsskólanema.
Menntamálaráðuneytið er aðili að samstarfi menntavefja í Evrópu, Evrópska skólanetinu, en að því standa 28 ráðuneyti ýmissa Evrópuþjóða, auk Evrópusambandsins og stofnana í einkaeign. Ísland er einnig aðili að Norræna skólanetinu sem er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Auk samstarfs á vegum Evrópusambandsins tekur Ísland þátt í samstarfi Norðurlanda, Hollands og Kanada um upplýsingatækni í menntun, ICT-League.
Á tímabili því sem skýrsla þessi nær til hafa verið í gildi tveir samningar milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi, sá fyrri fyrir tímabilið 2000–2003 og sá síðari fyrir 2004–2007. Samstarfsverkefnið er fjármagnað af menntamálaráðuneytum beggja landanna. Í samningunum er m.a. kveðið á um ráðningu dansks sendikennara á háskólastigi, ráðningu danskra farkennara og aðstoðarkennara til starfa í grunn- og framhaldsskólum landsins og verkefni á sviði endurmenntunar kennara, námsefnisgerðar, þróunar og rannsókna. Sérstök samstarfsnefnd Dana og Íslendinga hefur umsjón með framkvæmd samningsins.
8. Breytt námsskipan til stúdentsprófs.
Í mars 2002 skipaði menntamálaráðherra verkefnisstjórn til að athuga hvort forsendur væru fyrir styttingu námstíma til stúdentsprófs, hvaða leiðir væru færar og hver áhrif breytingarinnar yrðu. Verkefnisstjórnin starfaði ásamt sérstökum verkefnisstjóra til desembermánaðar 2002 og skilaði skýrslu sem ráðuneytið gaf út sumarið 2003. Í skýrslunni komu fram tillögur sem miðuðu að því að gera sem minnstar breytingar á árlegum skólatíma en tryggja jafnframt að íslenskir nemendur fengju jafnmikla kennslu til stúdentsprófs og nemendur í nágrannalöndum. Valin var sú leið að gera tillögu um að stytta nám á framhaldsskólastigi frekar en nám á grunnskólastigi. Skýrslan var kynnt og umræðuþing ráðuneytisins opnað á menntagatt.is. Óskað var umsagna frá fjölmörgum hagsmunaaðilum, verkefnisstjóri var ráðinn til áframhaldandi vinnu að verkefninu og starfshópar skipaðir helstu hagsmunaaðilum fjölluðu um námskrár- og gæðamál, starfsmannamál og fjármál. Niðurstöður þessarar vinnu birtust síðan í skýrslunni Breytt námsskipan til stúdentsprófs – aukin samfella í námi sem út kom í ágúst 2004.
Í skýrslunni var tekið mið af því meginsjónarmiði sem kom fram í umsögnum aðila að stytting námstíma til stúdentsprófs mætti ekki koma niður á gæðum námsins. Skólaárum yrði fækkað um eitt en á móti kæmi að skólaárið yrði lengt og að hluti af námsefni framhaldsskólans í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði flyttist til grunnskólans. Menntamálaráðherra kynnti skýrsluna í ríkisstjórn 31. ágúst 2004 og voru tillögur og framkvæmdaáætlun sem fram komu í skýrslunni samþykktar af ríkisstjórn. Í kjölfarið hófst umfangsmikil kynning menntamálaráðherra og embættismanna ráðuneytisins á skýrslunni og ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Í ársbyrjun 2005 hófu vinnuhópar störf við endurskoðun námskráa grunn- og framhaldsskóla í ljósi tillagnanna og með áherslu á samfellu í námi. Afrakstur þeirrar vinnu var birtur til umsagnar á vef menntamálaráðuneytis í desember 2005.
Viðauki I.
Framhaldsskólar skólaárið 2004/2005, skipt eftir landsvæðum.
Reykjavík
Borgarholtsskóli
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
Iðnskólinn í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík
Listdansskóli Íslands
Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Sund
Stýrimannaskólinn í Reykjavík*
Tannsmiðaskóli Íslands
Verzlunarskóli Íslands
Vélskóli Íslands*
Menntaskólinn Hraðbraut
Kvikmyndaskóli Íslands
Höfuðborgarsvæði utan Rvk.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Flensborgarskólinn
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Menntaskólinn í Kópavogi
Snyrtiskólinn
Suðurnes
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Vesturland
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Vestfirðir
Menntaskólinn á Ísafirði
Norðurland vestra
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Norðurland eystra
Framhaldsskólinn á Húsavík
Framhaldsskólinn á Laugum
Menntaskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Austurland
Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Verkmenntaskóli Austurlands
Suðurland
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Garðyrkjuskóli ríkisins
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Menntaskólinn að Laugarvatni
*Stýrimannaskólinn í Reykjavík og Vélskóli Íslands hétu frá og með vormisseri 2005 Fjöltækniskóli Íslands.
Heimild: Menntamálaráðuneyti.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Heildartölu síðustu skýrslu um framkvæmd skólahalds (170.031 fermetri) að viðbættum þessum 8.880 fermetrum ber ekki saman við þá heildartölu sem varðveitt er í reiknilíkani fjárlagaársins 2005 (180.409). Ekki reynist unnt að rekja í hverju sá munur liggur.