Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 109. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 206  —  109. mál.
Leiðréttur texti.




Svar


félagsmálaráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um félagslegar íbúðir og málefni Íbúðalánasjóðs.

     1.      Hver var fjárhagsleg staða Byggingarsjóðs verkamanna 31. desember 1998, á verðlagi ársins 2007?
    Samkvæmt stofnefnahagsreikningi Íbúðalánasjóðs, sem unninn var af sérstakri matsnefnd og áritaður af KPMG endurskoðun hf. fyrir hönd Ríkisendurskoðunar, var eigið fé Byggingarsjóðs verkamanna 31. desember 1998 neikvætt um 16.162 millj. kr. eða 24.344 millj. kr. á núverandi verðlagi. Um var að ræða mat á heildarskuldbindingum sjóðsins fyrir allan lánstímann sem var 40 ár.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Á árunum kringum 1990 var tekin ákvörðun um að auka framlög ríkisins í Byggingarsjóð verkamanna í því skyni að gera sjóðnum kleift ár hvert að standa undir skuldbindingum sínum. Breyting varð á þessari þróun með fjárlögum 1995, fyrst vegna innleiðingar húsaleigubóta en framlagið lækkaði síðan ár hvert eftir það, sbr. eftirfarandi töflu (fjárhæðir í millj. kr.):
Ár Fjárlög Framreiknað
m.v. okt. 2007
1990 500 965
1991 900 1.610
1992 1.075 1.855
1993 925 1.533
1994 918 1.499
1995 608 976
1996 400 628
1997 300 463
1998 275 417

    Miðað við sömu forsendur og árið 1994 hefði framlag í fjárlögum árið 1998 þurft að vera um 988 millj. kr. á verðlagi þess árs til að sjóðurinn gæti staðið undir árlegum skuldbindingum sínum en framlagið var aðeins 275 millj. kr. Má því leita skýringa á neikvæðu mati á eigin fé sjóðsins í árslok 1998 í því að dregið var verulega úr framlögum í sjóðinn eftir 1995.

     2.      Hvað voru margar félagslegar íbúðir auðar 31. desember 1998?
    Talning á auðum félagslegum íbúðum hefur aldrei verið tæmandi þar sem ekki bárust svör frá öllum sveitarfélögum í könnunum Húsnæðisstofnunar og síðar Íbúðalánasjóðs.
    Ekki eru til tölur um auðar félagslegar íbúðir árið 1998 þar sem slík könnun var ekki gerð það haust. Á hinn bóginn má nefna að 117 félagslegar íbúðir voru auðar 1. nóvember 1997 í þeim 68 sveitarfélögum sem sendu Húsnæðisstofnun svör. Þær íbúðir skiptust svo eftir landshlutum:
Höfuðborgarsvæðið 8
Suðurnes 3
Vesturland 7
Vestfirðir 47
Norðurland 16
Austurland 18
Suðurland 18

    Áætlað er að árið 1997 hafi heildarfjöldi félagslegra íbúða á landinu verið um 10.500. Auðar íbúðir voru því um 1,1% af heildarfjöldanum.

     3.      Hvað hefur Íbúðalánasjóður afskrifað mikið vegna félagslegra íbúða frá 1. janúar 1999, á verðlagi ársins 2007?
    Íbúðalánasjóður hefur afskrifað 88,1 millj. kr. vegna félagslegra íbúða frá 1. janúar 1999 eða u.þ.b. 114 millj. kr. á verðlagi ársins í ár. Heildarútlán sjóðsins á tímabilinu voru um 2.175.000 millj. kr. og námu afskriftirnar því um 0,004% af heildarútlánum á tímabilinu.

     4.      Hvað veitti Íbúðalánasjóður mörgum tekjulágum einstaklingum viðbótarlán frá 1. janúar 1999 til 1. desember 2004?
    Íbúðalánasjóður veitti alls 13.500 viðbótarlán á þessu tímabili til einstaklinga og fjölskyldna sem féllu undir tekju- og eignamörk sem skilgreind voru í reglugerð.
    Félagslega eignaríbúðakerfið byggðist á lánafyrirgreiðslu sem var hagstæðari fyrir einstaklinga en almenn lán, en skilyrði var að lántaki væri undir skilgreindum tekju- og eignamörkum. Vaxtakjör voru 2,4% af eignaríbúðum og lánin voru afborgunarlaus fyrstu þrjú árin. Vextir viðbótarlána fóru eftir fjármögnunarkjörum Íbúðalánasjóðs hverju sinni og gátu því verið hærri en vextir húsbréfa. Í byrjun árs 2004 voru vextir viðbótarlána 5,3% en þá báru húsbréf 5,1% vexti. Viðbótarlánin voru afborgunarlaus fyrsta árið. Vaxtakjör í félagslega eignaríbúðakerfinu sem lagt var niður árið 1998 voru því mun hagstæðari en vaxtakjör viðbótarlána sem voru ríflega tvöfalt hærri. Vaxtakjör í félagslega leiguíbúðakerfinu sem einnig var lagt niður voru 1% en eru nú 3,5% til rúmlega 5% eða þrefalt til fimmfalt hærri.