Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 161. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 221  —  161. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Björns Vals Gíslasonar og Þuríðar Backman um sölu á hlut ríkisins í Jarðböðunum við Mývatn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert var söluvirði hlutar ríkisins í Jarðböðunum við Mývatn sem seldur var fyrr á árinu og hver var söluhagnaðurinn?
     2.      Hvernig hefur söluandvirðinu verið varið?


    Kaupverð hlutafjár ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar var 20 millj. kr. og var það greitt á árunum 2002 og 2003. Í maí 2007 var umrætt hlutafé selt fyrir 24 millj. kr.
    Söluandvirðið rann í ríkissjóð.