Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 139. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 223 — 139. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur og Kolbrúnar Halldórsdóttur um Teigsskóg.
1. Hver er staða annars áfanga Vestfjarðavegar 60 um Gufudalssveit, þ.e. uppbyggingar vegarins frá Þórisstöðum í Þorskafirði að Kraká á Skálanesi?
Hafin er vinna við fullnaðarhönnun verksins samkvæmt leið B með það að markmiði að bjóða verkið út á næsta ári. Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið kynnt fyrir landeigendum og þeim gefinn kostur á að koma fram sjónarmiðum sínum um legu vegarins. Einnig hefur Vegagerðin kynnt framkvæmdina og átt samráð við þá opinberu samráðsaðila sem tilgreindir voru í úrskurði umhverfisráðherra. Vegagerðin hefur nú sett fram tillögu um legu vegarins þar sem tekið hefur verið tillit til sjónarmiða áðurnefndra aðila. Innan tíðar verður leitast við að ná samkomulagi við landeigendur um bætur fyrir land og efnistöku.
2. Hvert er núverandi kostnaðarmat Vegagerðarinnar á leið B annars vegar og leið D hins vegar í framangreindum öðrum áfanga Vestfjarðavegar 60?
Í matsskýrslu vegna framkvæmdarinnar frá september 2005 var áætlaður kostnaður við 2. áfanga (Þórisstaðir – Kraká) samkvæmt leið B 1.690 millj. kr. og við leið D 1.133 millj. kr. Kostnaður við 3. áfanga (Kraká – Eyri) var áætlaður 498 millj. kr. Við endurskoðun samgönguáætlunar fyrri hluta þessa árs gerði endurskoðuð áætlun ráð fyrir að að leið B (Þórisstaðir – Kraká) kostaði 1.954 millj. kr og Kraká – Eyri kostaði 460 millj. kr. Kostnaður við leið D hefur ekki verið endurskoðaður sérstaklega enda ákveðið að fara ekki þá leið. Miðað við verðlagsbreytingar frá september 2005 til janúar 2007 hækkar áætlunin í tæpar 1.300 millj. kr.
3. Hefur ráðherra kynnt sér útreikninga Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings sem benda til þess að komast megi hjá eyðileggingu verðmætra náttúrusvæða án mikils aukakostnaðar með því gera göng undir Hjallaháls í stað þess að leggja Vestfjarðaveg 60 út fyrir Hallsteinsnes og yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar (leið B)?
Gunnlaugur Pétursson hefur m.a. gert ítarlega grein fyrir útreikningum sínum í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar, 4. tbl. 2007, þar sem hann reiknar með gerð jarðganga undir Hjallaháls og Gufudalsháls. Auk þess birtir hann þar mun hærri kostnaðaráætlun fyrir leið B heldur en Vegagerðin gerir grein fyrir í svari við 2. tölul. hér að framan. Gunnlaugur reiknar með töluvert styttri jarðgöngum undir Hjallaháls en Vegagerðin hefur gert, með því að fara hærra með göngin, en svipaðri lengd undir Gufudalsháls. Vegagerðin hefur áætlað að heildarkostnaður við jarðgöng, frá Þórisstöðum að Eyri, yrði um 5,4 milljarðar kr., en Gunnlaugur metur kostnaðinn 4,3–4,4 milljarða kr. fyrir sams konar (tvíbreið) göng.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 223 — 139. mál.
Svar