Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 298. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 370 — 298. mál.
til dómsmálaráðherra um rafbyssur í lögreglustarfi.
1. Er í undirbúningi að lögreglan taki í notkun svonefndar rafbyssur sem gefa frá sér 50.000 volt og valda miklum sársauka auk þess sem þekkt er að slíkur rafstraumur truflar vöðva- og taugastarfsemi?
2. Hvaða tilgangi mundi beiting á rafbyssum þjóna við löggæslu?
3. Hefur ráðherra kynnt sér þá hættu sem stafar af notkun á rafbyssum, m.a. í ljósi þess að samkvæmt Amnesty International má rekja um 200 dauðsföll til beitingar þeirra?
4. Hafa verið mótaðar reglur hjá lögreglunni eða ráðuneytinu um beitingu og burð slíkra vopna, þ.m.t. hvernig þeim skuli skipt milli lögregluumdæma eða löggæslusveita?
5. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um vopnaburð íslenskra lögreglumanna?
Skriflegt svar óskast.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 370 — 298. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um rafbyssur í lögreglustarfi.
Frá Auði Lilju Erlingsdóttur.