Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 352. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 592  —  352. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um táknmálstúlkun og lögverndun starfsheitis táknmálstúlka.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hversu margir táknmálstúlkar hafa útskrifast frá Háskóla Íslands frá því að formleg kennsla í táknmálsfræðum hófst við skólann?
     2.      Hvernig hefur þörf samfélagsins fyrir táknmálstúlka þróast á undanförnum árum?
     3.      Hvaða kröfur eru gerðar til táknmálstúlka sem ráðnir eru í störf fyrir opinbera aðila?
     4.      Kemur til álita að táknmálstúlkar fái lögverndað starfsheiti?


Skriflegt svar óskast.