Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 381. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 625  —  381. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skipan héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Hvenær var ráðherra settur til að gegna embætti dómsmálaráðherra við skipan héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands?
     2.      Hvenær fékk settur dómsmálaráðherra málið til meðferðar?
     3.      Hvaða gögn fékk settur dómsmálaráðherra afhent til að byggja ákvörðun sína á?
     4.      Aflaði settur dómsmálaráðherra sér nýrra gagna í málinu og ef svo er, hverra?
     5.      Hversu langan tíma var málið til meðferðar hjá settum dómsmálaráðherra og hvaða gögn eru því til staðfestingar?
     6.      Hversu lengi var málið til meðferðar hjá dómnefnd skv. 12. gr. laga nr. 15/1998, um dómstóla?
     7.      Hvenær var umsækjendum sent rökstutt álit dómnefndar um hæfni þeirra og hversu langan tíma fengu þeir til að bregðast við því með athugasemdum?
     8.      Leitaði settur dómsmálaráðherra til meðmælenda einstakra umsækjenda og ef svo er, hvenær var það gert? Hvaða áhrif er talið að meðmæli hafi haft á ákvörðun ráðherrans?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.


    Talsverðar umræður hafa orðið í samfélaginu að undanförnu um umdeilda embættisfærslu setts dómsmálaráðherra er hann nýlega skipaði dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands. Í svari við fyrirspurn í óundirbúnum fyrirspurnatíma á 57. fundi þann 31. janúar sl. svaraði forsætisráðherra því til að hann hefði ekki svör á reiðum höndum um einstakar tímasetningar varðandi málið en benti á að unnt væri að afla þeirra upplýsinga með formlegri fyrirspurn. Af því tilefni er þessi fyrirspurn lögð fram.