Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 542. máls.

Þskj. 843  —  542. mál.



Frumvarp til laga

um niðurfellingu laga nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




1. gr.

    Lög nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, með síðari breytingum, falla úr gildi frá og með 1. september 2008.

2. gr.

    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs skal stefna að því að reikningar sjóðsins séu í jöfnuði í lok ágúst 2008.

3. gr.

    Ríkissjóður tekur við eignum og skuldum flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, ef einhverjar verða, frá 1. september 2008.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Innflutningur á olíuvörum var gefinn frjáls 1. janúar 1992. Sú tilhögun kom í stað fyrirkomulags þar sem innflutningur gasolíu og svartolíu var bundinn leyfum og var í raun stýrt á þann veg að viðskiptaráðuneytið samdi um olíukaup við sovéska ríkisolíufélagið Soyuznefteexport. Samningurinn var síðan framseldur í hendur olíufélaganna þriggja sem starfa hér á landi. Sama fyrirkomulag gilti um bifreiðabensín en því var breytt 1. janúar 1991 þegar Sovétríkin voru ekki lengur aflögufær um þá vöru.
    Innflutningur á olíuvörum frá Sovétríkjunum stóð frá árinu 1953 og voru innflutningshömlur á olíu frá öðrum framleiðslusvæðum byggðar á útflutningshagsmunum Íslendinga. Aðstæður hafa breyst og því voru innflutningstakmarkanir felldar úr gildi og ákveðið að gefa olíuviðskipti frjáls.
    Verðlagsyfirvöld felldu af þessu tilefni úr gildi hámarksverð á olíuvörum en samkeppnisyfirvöld beita nú ákvæðum samkeppnislaga, nr. 44/2005, um bann við samráði olíufélaganna um verðlagningu o.fl.
    Með samþykkt laga nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, og um leið afnámi laga nr. 81/1985, um flutningsjöfnunarsjóð olíu og bensíns, var dregið úr flutningsjöfnun á olíu. Enn frekar hefur dregið úr flutningsjöfnun á olíu á síðustu árum, m.a. vegna fjölgunar innflutningshafna. Þannig hefur fé til jöfnunar farið úr um 600 millj. kr. á ári niður í um 350 millj. kr. Rétt þykir að stíga nú það skref að fella lögin alveg úr gildi. Með niðurfellingu laganna eru vankantar núgildandi kerfis varðandi flokkaskipan afnumdir og tryggt að ákvæði samkeppnislaga nái að hafa meiri áhrif á verðlagningu og auka samkeppni milli olíufélaganna í landinu. Nefna má í þessu sambandi að lög um jöfnun flutningskostnaðar á sementi voru felld úr gildi 2004.
    Það er skoðun viðskiptaráðuneytisins að afnám laga um jöfnun flutningskostnaðar olíuvara muni leiða til aukinnar hagræðingar í dreifingu olíuvara og lægri kostnaðar þegar litið er til heildarinnar og framtíðar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Lagt er til að gefinn verði tími til aðlögunar að nýjum aðstæðum fyrir olíufélögin fram til 1. september 2008.

Um 2. gr.


    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs skal stefna að því að reikningar sjóðsins verði sem næst í jöfnuði í lok ágúst 2008.

Um 3. gr.


    Gert er ráð fyrir að ríkissjóður taki við eignum og skuldum flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, ef einhverjar eru, við niðurfellingu laganna.

Um 4. gr.


    Grein þessi þarfnast ekki skýringar.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um niðurfellingu laga nr. 103/1994,
um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, með síðari breytingum.

    Með frumvarpinu er lagt til að lög um flutningsjöfnunarsjóð olíuvara verði felld úr gildi og að ríkissjóður taki við eignum og skuldum sjóðsins frá 1. september 2008, sem gert er ráð fyrir að verði óverulegar þegar sjóðurinn verður leystur upp. Markmið frumvarpsins er að auka hagræðingu í dreifingu olíuvara og lækka kostnað.
    Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara byggist á lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara sem tóku gildi árið 1994. Sjóðurinn er fjármagnaður með flutningsjöfnunargjaldi sem lagt er á allar olíuvörur sem fluttar eru til landsins. Sams konar sjóður, sem byggði á lögum um jöfnun flutningskostnaðar á sementi frá árinu 1973, var lagður niður árið 2004.
    Við afgreiðslu fjárlaga 2008 var ákveðið að leggja sjóðinn niður frá og með 1. september árið 2008 og að fjárheimild og tekjur sjóðsins yrðu 300 m.kr. fram að þeim tíma. Þetta frumvarp er í samræmi við þessar forsendur fjárlaga og verða útgjöld og tekjur ríkissjóðs því þau sömu og þar er gert ráð fyrir verði frumvarpið óbreytt að lögum.