Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 177. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 865 — 177. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur um uppbyggingu hjúkrunarrýma.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig stendur undirbúningur að 174 nýjum hjúkrunarrýmum sem kynnt voru 4. nóvember 2006 og stendur til að verði á Suðurlandi, í Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Ísafirði og Garðabæ?
Í kjölfar niðurstöðu nefndar sem forsætisráðherra skipaði 16. janúar 2006, og fjallaði m.a. um búsetu- og þjónustumál aldraðra með tilliti til fjölbreyttari búsetuforma, stoðþjónustu og samþættingar heimahjúkrunar og félagslegrar heimilisþjónustu, var í nóvember 2006 samþykkt að fjölga hjúkrunarrýmum utan Reykjavíkur um 174 á næstu fjórum árum frá samþykktinni. Rýmunum var dreift þannig að 20 þeirra verða á Sjúkrahúsi Suðurlands, 44 rými verða í Kópavogi, 20 í Mosfellsbæ, 30 í Reykjanesbæ og 30 í Hafnarfirði, 10 á Ísafirði og 20 í Garðabæ.
Samkvæmt fjögurra ára framkvæmdaáætlun (byggingaráætlun) heilbrigðisráðuneytisins var gert ráð fyrir að framkvæmdum yrði lokið fyrir árslok 2010. Staða undirbúnings við byggingu hjúkrunarrýmanna var um áramótin, þegar byggingarmál hjúkrunarheimila voru flutt yfir í félagsmálaráðuneytið, eftirfarandi:
Á Selfossi var um áramótin verið að leggja síðustu hönd á 20 ný hjúkrunarrými og var heimilið formlega tekið í notkun föstudaginn 18. janúar sl.
Í Kópavogi er hönnun heimilisins langt á veg komin og hefur erindi verið sent fjármálaráðuneytinu / Framkvæmdasýslunni um heimild til að hefja útboðsvinnu vegna byggingarinnar. Í fjárlögum fyrir árið 2008 eru áætlaðar 350 millj. kr. til verksins á þessu ári sem er tæplega 90% af framlagi ríkissjóðs. Auk þess voru veittar 60 millj. kr. úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 2007.
Í Mosfellsbæ er verið að vinna að undirbúningi og liggja fyrir hugmyndir (teikningar) um útlit og fyrirkomulag heimilisins. Í framkvæmdaáætlun heilbrigðisráðuneytisins er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á þessu ári. Í fjárlögum fyrir árið 2008 eru veittar 93 millj. kr. til framkvæmdanna sem er rúmur helmingur af framlagi ríkissjóðs.
Í Reykjanesbæ byrjaði undirbúningsvinnan strax á árinu 2007 með vinnu við frumathugun fyrir hjúkrunarheimilið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við bygginguna hefjist á þessu ári. Í fjárlögum eru veittar til verksins 159 millj. kr. sem er rúmlega helmingurinn af framlagi ríkissjóðs til verkefnisins.
Í júlímánuði sl. kynntu Hafnfirðingar hugmyndir sínar um uppbyggingu öldrunarmála. Gert er ráð fyrir að sú vinna haldi áfram og á þessu ári liggi fyrir frumáætlun. Í framkvæmdaáætlun ráðuneytisins er gert ráð fyrir að byggingarframkvæmdir geti hafist eigi síðar en í lok þessa árs eða í byrjun árs 2009.
Ekki er gert ráð fyrir að undirbúningsvinna á Ísafirði hefjist fyrr en í lok þessa árs eða byrjun árs 2009.
Í Garðabæ hefur veruleg undirbúningsvinna farið fram vegna samþættingar öldrunarþjónustunnar í bæjarfélaginu. Gert er ráð fyrir að byggja nýtt hjúkrunarheimili þar sem rýmaþörf bæjarfélagsins verði uppfyllt. Í framkvæmdaáætlun ráðuneytisins var gert ráð fyrir að framkvæmdir hæfust ekki fyrr en árið 2009 og að þeim lyki ekki fyrr en árið 2010. Það hefur hins vegar verið unnið að því í ráðuneytinu að finna leiðir til að framkvæmdir gætu hafist fyrr.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 865 — 177. mál.
Svar