Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 588. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 910  —  588. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um heilsurækt og íþróttaiðkun aldraðra.

Frá Samúel Erni Erlingssyni.



     1.      Hverjar eru aðgerðir ráðuneytisins til stuðnings íþróttaiðkun og heilsurækt aldraðra?
     2.      Hefur verið lagt fram fé og vinna til þessa? Ef svo er, með hvaða hætti?
     3.      Hver er stefna ráðherra hvað varðar stuðning við líkamsrækt aldraðra?


Skriflegt svar óskast.