Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 552. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 914  —  552. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um bensíngjald og meðalútsöluverð bensíns.

     1.      Hvernig hefur bensíngjald (þ.e. almennt vörugjald + sérstakt vörugjald) auk virðisaukaskatts á það gjald þróast frá 1996 sem hlutfall af meðalútsöluverði 95 oktana bensíns?
    Á því tímabili sem fyrirspyrjandi spyr um hefur gilt tvenns konar fyrirkomulag á skattlagningu á bensíni. Fram til október 1999 var lagt á almennt 97% vörugjald á bensín annars vegar og hins vegar sérstakt vörugjald sem hafði hækkað úr 24,90 kr./l árið 1996 í 28,60 kr./l árið 1999. Þann 21. október 1999 voru samþykkt lög frá Alþingi, nr. 86/1999, þar sem almenna vörugjaldinu var breytt í fasta krónutölu, 10,50 kr./l, og gjaldið jafnframt lækkað frá því sem verið hafði. Almenna og sérstaka vörugjaldið námu samtals 39,10 kr./l þar til gjöldin voru hækkuð í samtals 42,23 kr./l með lögum nr. 119/2003. Síðan þá hafa vörugjöld á bensíni verið óbreytt krónutala en með lögum nr. 87/2004 var skiptingu þess í almennt og sérstakt vörugjald breytt.
    Svari við þessum lið fyrirspurnarinnar er skipt í tvennt. Annars vegar eru árstölur fyrir tímabilið 1996–2004 og er þar byggt á svari við fyrirspurn fyrirspyrjanda frá 131. löggjafarþingi. Hins vegar eru tölur fyrir febrúar, maí, ágúst og nóvember frá 2005 til febrúar í ár en upplýsingar um söluverð bensíns eru gefnar út af Hagstofu Íslands fyrir þessa fjóra mánuði ár hvert.

Tafla 1. Hlutfall vörugjalda og virðisaukaskatts af þeim af meðalútsöluverði
95 oktana bensíns 1996–2004, árstölur.

1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
61% 62% 61% 60% 52% 49% 51% 50% 48%

    Upplýsingar um seinna tímabilið eru á eftirfarandi mynd.

Mynd 1. Hlutfall vörugjalda og virðisaukaskatts af þeim af meðalútsöluverði
95 oktana bensíns 2005–2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Hlutfallið hefur almennt farið lækkandi á því tímabili sem beðið er um upplýsingar fyrir þótt með sveiflum sé. Það hefur aldrei verið lægra en í febrúar í ár þegar það var 36,8% af verðinu.

     2.      Hvernig hefur bensíngjald (þ.e. almennt vörugjald + sérstakt vörugjald) auk virðisaukaskatts á það gjald þróast frá 1996 í samanburði við vísitölu neysluverðs?
    Svar við þessum lið fyrirspurnarinnar er að finna í mynd 2. Hún sýnir annars vegar vörugjöld á bensíni sem hafa hækkað um 17% samtals frá 1996 en hins vegar vísitölu neysluverðs sem hefur hækkað um 61,6% frá meðaltali ársins 1996 til febrúarmánaðar í ár. Tölurnar eru reiknaðar árlega fram til ársins 2004 en á þriggja mánaða fresti eftir það.

Mynd 2. Vísitölur neysluverðs og vörugjalda á bensíni 1996–2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     3.      Hvernig skiptist meðalútsöluverð 95 oktana bensíns nú í bensíngjald, virðisaukaskatt á það og kostnaðarverð (innkaupsverð + álagningu) og virðisaukaskatt á það bæði í krónum talið og hlutfallslega? Hver er hlutur skattlagningar í meðalútsöluverði?
    Ef miðað er við meðalútsöluverð á 95 oktana bensíni í febrúar samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er skipting í ofangreinda liði eftirfarandi:

Tafla 2. Þáttur skatta í útsöluverði 95 oktana bensíns í febrúar 2008.

kr./l %
Útsöluverð kr./l 142,90 100,0
Vörugjöld og virðisaukaskattur á þau 52,58 36,8
Kostnaðarverð 72,55 50,8
Virðisaukaskattur á kostnaðarverð 17,77 12,4
Hlutur skattlagningar í söluverði 49,2

     4.      Hvert væri meðalútsöluverð 95 oktana bensíns núna ef ekki hefði verið horfið frá hlutfallslegri skattlagningu í krónutöluskattlagningu með lögum nr. 86/1999?
    Ráðuneytið hefur ekki reglulegan aðgang að tollverði á innfluttu bensíni og því er ekki hægt að reikna út vörugjald eftir eldri lagareglum. Hins vegar hefur verið aflað upplýsinga hjá tollstjóranum í Reykjavík um bensín sem flutt var inn í janúar og febrúar sem ætla má að hafi verið til sölu í febrúar. Samkvæmt þessum upplýsingum nam tollverð að meðaltali 42,82 kr./l. Vörugjald af því (97%) hefði numið 41,54 kr./l. Því til viðbótar hefði verið lagt á sérstakt vörugjald sem hér er reiknað 30,89, sem er það gjald sem gilti áður en hluti almenna vörugjaldsins var fluttur yfir á sérstakt vörugjald í tengslum við upptöku olíugjalds sem kom til framkvæmda 1. júlí 2005. Álagning olíufélaganna er reiknuð út frá samhengi innflutningsverðs, vörugjalda og virðisaukaskatts og útsöluverðs í febrúar og áætluð sú sama á hvern lítra og hún var í þeim mánuði. Að gefnum þessum forsendum hefði útsöluverð 95 oktana bensíns verið sem næst 180 kr./l í febrúar. Það skal tekið fram að slíkir útreikningar eru mjög vandtúlkaðir vegna þess að bensínverð erlendis og gengi hafa verið mjög breytileg að undanförnu.