Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 610. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 946 — 610. mál.
um fjölgun úthaldsdaga rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunarinnar.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að Hafrannsóknastofnuninni verði gert kleift að sinna brýnum rannsóknarverkefnum með því að fjölga úthaldsdögum rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar að lágmarki upp í 250 daga á hvort skip á þessu og næsta ári. Til lengri tíma litið verði tryggð samfella í úthaldi rannsóknaskipanna árið um kring með vönduðum undirbúningi og forgangsröðun verkefna sem og úthald annarra skipa sem notuð eru til almennra hafrannsókna og sérverkefna.
Tillaga þessi er sett fram til að tryggja Hafrannsóknastofnuninni þegar í ár nauðsynlegt fjármagn til að fjölga úthaldsdögum rannsóknaskipa stofnunarinnar Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar að svo unnt sé að sinna brýnum verkefnum. Fyrir árið 2009 verði jafnframt tryggt fjármagn til að halda skipunum úti í að lágmarki 250 daga og síðan allt árið í samræmi við framsýna rannsóknastefnu og forgangsröðun. Slík stefnumörkun þarf einnig að taka til annarra rannsóknaskipa sem stofnunin leigir eða hefur aðgang að og skipa sem fengin eru til sérverkefna.
Í ársskýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar 2006 kom fram að úthaldsdagar rannsóknaskipanna tveggja hafi það ár verið 343 dagar, þ.e. 43 dögum færri en árið 2005. Árni Friðriksson var við rannsóknir í 199 daga (181 árið 2005) og Bjarni Sæmundsson í 154 daga (208 dagar 2005). Jafnframt kemur fram í skýrslunni að mikið vanti á að úthald rannsóknaskipanna sé hagkvæmt eða nægilegt miðað við rannsóknarverkefni sem sinna þarf.
Samkvæmt heimasíðu Hafrannsóknastofnunarinnar 8. febrúar 2008 var áætlað í ljósi fjárveitinga að Árna Friðrikssyni yrði haldið úti aðeins í 181 dag á árinu og Bjarna Sæmundssyni í 200 daga. Áætlanir þessar hafa síðan verið endurskoðaðar og úthaldsdögum verið fjölgað lítils háttar. Á móti kemur hins vegar verulega aukinn kostnaður vegna hækkana á olíu og fleiri rekstrarliðum. Því er rekstur rannsóknaskipanna að óbreyttu í mikilli óvissu nema til komi verulega aukið fjármagn, að ekki sé talað um það markmið sem sett er fram í þingsályktunartillögunni.
Verkefni hafrannsóknaskipanna eru ærin þar sem um er að ræða árlegar stofnmælingar og mælingar á umhverfisþáttum í hafinu við Ísland. Að auki kemur til fjöldi afmarkaðra rannsóknarverkefna af ýmsu tagi, sem sum hver hafa verið vanrækt um langt skeið vegna takmarkaðra fjárveitinga. Má þar nefna kortlagningu hafsbotnsins í efnahagslögsögu Íslands, veiðarfærarannsóknir, sjálfbæra nýtingu helstu nytjastofna, vistkerfisnálgun við stjórn fiskveiða o.fl.
Á hafrannsóknaskipunum starfa um 40 sjómenn og um borð er aðstaða fyrir nokkurn fjölda vísindamanna og aðstoðarmenn þeirra. Það er augljóslega óskynsamlegt og óhagkvæmt að halda rannsóknaskipum og mannskap sem við þau starfar í höfn stóran hluta ársins þegar fjöldi brýnna verkefna situr á hakanum og til staðar er mannafli til að vinna þau.
Á 132. löggjafarþingi var samþykkt frumvarp til laga um ráðstöfun fjár úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins, þskj. 1387, 382. mál. Í umræðum um málið var m.a. fjallað um úthald rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunarinnar. Þáverandi formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, Guðjón Hjörleifsson, rifjaði upp vilja sjávarútvegsnefndar Alþingis, sem sent hafði greinargerð til fjárlaganefndar vegna fjárlaga ársins 2006 þar sem lagt var til að veittir yrðu auknir fjármunir til Hafrannsóknastofnunarinnar í því augnamiði að auka umtalsvert úthald rannsóknaskipa stofnunarinnar. Í greinargerð þeirri sagði orðrétt:
„Nefndin leggur til að í meðförum Alþingis verði Hafrannsóknastofnuninni veitt 50 millj. kr. framlag svo auka megi úthald rannsóknaskipa stofnunarinnar um samtals 87–97 daga á ári. Nauðsynlegt er að úthald skipanna verði aukið svo efla megi veiðarfærarannsóknir og rannsóknir á uppsjávarfiski. Á síðasta ári var úthald Árna Friðrikssonar 211 dagar og úthald Bjarna Sæmundssonar 176 dagar. Á yfirstandandi ári er úthald áætlað 180 dagar á Árna (þar af 15 dagar vegna leigu til erlendra aðila) og 203 dagar á Bjarna (þar af 33 dagar vegna leigu til erlendra aðila). Meðalkostnaður á dag við rekstur Árna er 1.150 þús. kr. og Bjarna 900 þús. kr. Tillaga nefndarinnar er byggð á því að úthald skipanna verði 235–240 dagar fyrir hvort skip. Samkvæmt útreikningum Hafrannsóknastofnunarinnar kostar hver viðbótardagur vegna fjölgunar úthaldsdaga um 55–60 á Árna 650–700 þús. kr. og fjölgunar úthaldsdaga um 32–37 á Bjarna 500–550 þús. kr.“
Stórauknar hafrannsóknir eru meðal allra brýnustu verkefna sem Íslendingar þurfa að sameinast um að hrinda í framkvæmd. Margt af þeim verður ekki að veruleika nema með tilstyrk vel búinna rannsóknaskipa. Það er mat flutningsmanna þessarar tillögu að vilji þingmanna standi til þess að úthaldsdögum rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunarinnar verði fjölgað umtalsvert og að því marki sem tillagan gerir ráð fyrir. Til að svo megi verða þarf Alþingi og ríkisstjórn að tryggja Hafrannsóknastofnuninni stóraukið fjármagn. Merki um slíkt þyrfti að gefa sem allra fyrst, svo að starfsemi skipanna verði með ásættanlegum hætti það sem eftir lifir ársins og mörkuð verði framsækin rannsóknastefna til lengri tíma.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 946 — 610. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um fjölgun úthaldsdaga rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunarinnar.
Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að Hafrannsóknastofnuninni verði gert kleift að sinna brýnum rannsóknarverkefnum með því að fjölga úthaldsdögum rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar að lágmarki upp í 250 daga á hvort skip á þessu og næsta ári. Til lengri tíma litið verði tryggð samfella í úthaldi rannsóknaskipanna árið um kring með vönduðum undirbúningi og forgangsröðun verkefna sem og úthald annarra skipa sem notuð eru til almennra hafrannsókna og sérverkefna.
Greinargerð.