Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 183. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 226  —  183. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um störf í orkufrekum iðnaði.

Frá Ármanni Kr. Ólafssyni.



    Hversu mörg störf, bein og afleidd, er talið að eftirfarandi starfsemi þurfi miðað við hvert notað megavatt af rafmagni:
     a.      álbræðsla,
     b.      járnblendi,
     c.      kísilvinnsla,
     d.      netþjónabú?
    Óskað er eftir að í svarinu komi fram hversu hátt hlutfall þessara starfa krefst háskólamenntunar.


Skriflegt svar óskast.