Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 149. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 303  —  149. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn SteinunnarValdísar Óskarsdóttur um Olweusar-verkefnið.

     1.      Hver er staða Olweusar-verkefnisins?
    Olweusarverkefni gegn einelti í grunnskólum er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands, Heimilis og skóla, Kennaraháskóla Íslands og Námsgagnastofnunar. Verkefnið byggist á kenningum og aðferðafræði prófessorsins Dan Olweusar og hófst framkvæmd þess hér á landi árið 2002 þegar undirritaður var samningur við Þorlák Helgason framkvæmdastjóra verkefnisins. Samningurinn var endurnýjaður árið 2006 og rennur út í árslok 2008.
    Á tímabilinu 2002–2008 hafa 85 grunnskólar komið að verkefninu með um helming grunnskólanemenda á landinu. Árlega hafa kannanir verið lagðar fyrir nemendur í 4.–10. bekk á tímabilinu 2002–2007. Langflestir þessara 85 grunnskóla hafa lokið innleiðingarferlinu eða eru í fullum gangi, en innleiðing Olweusarverkefnisins stendur yfir í tvö ár í hverjum skóla. Um 55% allra grunnskólanemenda á Íslandi eru nú þátttakendur í Olweusaráætluninni. Að auki hefur áætlunin teygt anga sína til stofnana, félaga og fleiri aðila sem sinna ýmiss konar félagsstarfi sem nemendur taka þátt í utan hefðbundins skólatíma. Ætla má að 6–8 þúsund kennarar og aðrir starfsmenn grunnskóla ásamt öðru starfsfólki utan grunnskóla hafi tekið þátt í framkvæmd Olweusaráætlunarinnar.
    Innleiðing Olweusaráætlunarinnar þýðir að skólasamfélagið beitir aðferðum áætlunarinnar kerfisbundið í tvö ár. Gerð er krafa um að skóli viðhaldi áætluninni að lokinni innleiðingu með markvissum hætti vilji skóli áfram kalla sig Olweusarskóla. Flestir grunnskólar hófu innleiðingu Olweusaráætlunarinnar haustið 2002, eða 43 skólar, en árið 2004 voru þeir 30 og árið 2006 voru þeir níu. Önnur ár bættust þrír grunnskólar við og í dag eru 85 grunnskólar sem fylgja Olweusaráætluninni.
    Til að meta árangur af verkefninu hafa svokallaðar eineltiskannanir verið lagðar fyrir nemendur í 4.–10. bekk. Var það gert samtals sjö sinnum á tímabilinu 2002–2007. Einelti telst vera fyrir hendi ef nemandi svarar að hann hafi orðið fyrir einelti að lágmarki tvisvar eða þrisvar sinnum í mánuði í skólanum undanfarna mánuði. Árið 2006 var könnunin á Íslandi þýdd sérstaklega á pólsku og árið 2007 var hún þýdd á litháísku og tælensku. Þá hafa skólar getað stuðst við könnunina á ensku, norsku, sænsku og dönsku. Eineltiskannanirnar er hægt að taka rafrænt eða leggja fyrir á pappír.
    Einelti mældist um þriðjungi lægra árið 2003 en við upphaf innleiðingar árið 2002. Einelti dróst hlutfallslega meira saman á unglingastigi (8.–10. bekk) en á miðstigi (4.–7. bekk) og mældist 4,6% á unglingastigi árið 2003 miðað við 7,8% árið 2002. Á miðstigi mældist einelti 11,6% 2002, en 8% 2003.
    Við innleiðingu 2004 sögðust 9,7% nemenda í 4.–7. bekk vera lögð í einelti, ári síðar 7,6%. Einelti í 8.–10. bekk mældist svipað árin 2005 og 2006 (4,5% vorið 2005 og 4,6% ári seinna). Skólar sem hófu innleiðingu 2006 skera sig úr. Einelti dregst saman í 4.–7. bekk úr 12,5% í 8,8% milli ára, en á sama tíma eykst einelti í 8.–10. bekk; úr 6,8% haustið 2006 í 7,8% haustið 2007. Nemendur sem tóku þátt í könnununum 2006 og 2007 voru um 1.000 talsins og getur niðurstaða í stöku skóla eitt árið haft áhrif á heildarniðurstöður fyrir alla skóla.
    Auk þess að eineltið minnki yfirleitt milli ára í innleiðingarferli mælast nær undantekningarlaust aðrir veigamiklir þættir í eineltisáætluninni jákvæðari í seinni mælingunni.
    Eftirfarandi atriði, sem fram koma í svörum nemenda, gefa til kynna hvernig til hefur tekist í eineltisáætluninni:
     *      Færri nemendur segja að þeim líki illa að vera í skólanum.
     *      Færri nemendur segjast ekki eiga neinn/neina góða(n) vinkonu/vin í bekknum eða í námshópnum.
     *      Færri óttast að verða fyrir einelti nemenda.
     *      Fleiri nemendur segja að kennarar og aðrir fullorðnir í skólanum reyni að stöðva einelti.
     *      Fleiri nemendur segja aðra nemendur gera eitthvað til að koma í veg fyrir að nemandi sé lagður í einelti.
     *      Nemendum fækkar sem segja að umsjónarkennari geri lítið eða ekkert til að koma í veg fyrir einelti í bekknum. (Hér er þó ekki munur á svörum síðast talda hópsins).
     *      Í hópnum sem hóf innleiðingu 2006 eru hlutfallslega helmingi færri nemendur (sem eru lagðir í einelti) sem svara því í seinni könnun (haustið 2007) að þeir hafi verið lagðir í einelti í eitt ár eða lengri tíma. Sömu breytingu er ekki að sjá í hinum skólahópunum milli kannana, þar sem hlutfallsbreytingar eru litlar.

     2.      Hvernig hefur verkefnið gengið að mati ráðherra?
    Ljóst er af framansögðu að innleiðing Olweusaráætlunarinnar gegn einelti hefur gengið vel í grunnskólum undanfarin 6 ár og er það m.a. að þakka samhentu starfi allra sem að áætluninni koma. Samstarfsaðilar hafa sameiginlega fjármagnað verkefnið og hafa gert samninga sín á milli um skuldbindingar í þeim efnum og tekist hefur að halda verkefninu nú gangandi í 6 ár þrátt fyrir að stundum hafi komið upp erfiðleikar varðandi fjármögnun. Til þessa hefur tekist að leysa þau.
    Menntamálaráðuneytið hefur samið við Námsmatsstofnun að leggja mat á hvort Olweusarverkefnið hafi náð því takmarki að draga úr einelti í þátttökuskólunum og festa sig þar í sessi. Enn fremur að gera tillögur um áframhaldandi vinnu gegn einelti í grunnskólum og draga fram veikleika og styrkleika Olweusarverkefnisins. Gert er ráð fyrir að úttektarskýrsla liggi fyrir í árslok 2008. Í framhaldinu þarf að taka ákvarðanir um frekari stuðning við Olweusarverkefnið.

     3.      Hver er afstaða ráðherra til þess að lögleiða Olweusar-aðferðafræðina, líkt og gert hefur verið annars staðar?
    Í nýlega settum lögum um grunnskóla er velferð barna skilgreind sem grundvallaratriði í starfi grunnskóla. Grunnskólar eiga að gæta að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan þeirra barna er hann sækja. Skólinn á að vera griðastaður barna þar sem þau finna til öryggis, fá tækifæri til að þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar í öllu starfi sínu á vegum skólans og fá nægjanlega hvíld innan hvers skóladags, hverrar skólaviku og hvers skólaárs. Gert er ráð fyrir að í aðalnámskrá grunnskóla komi fram að hverjum skóla beri að huga að menningu skólans og andrúmslofti í skólastarfinu með áherslu á velferð og jákvæða andlega og félagslega líðan nemenda og enn fremur að grunnskólar skuli setja sér forvarna- og viðbragðsáætlun. Þetta þýðir að skólar skuli m.a. setja aðgerðaáætlun gegn einelti í skólum í samræmi við ákvæði grunnskólalaga um velferð. Talið er að Olweusaráætlunin fullnægi vel þeim kröfum sem gera þarf til markvissrar aðgerðaáætlunar gegn einelti. Ekki er hins vegar talið rétt að lögleiða sérstaklega eina aðferð til að vinna gegn einelti, en gera verður þær kröfur til aðgerða skóla gegn einelti að þær séu viðurkenndar. Að öðrum kosti skila þær ekki tilætluðum árangri.