Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 159. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 329 — 159. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um vegamál og sjóvarnargarð við Vík í Mýrdal.
1. Hver er stefna ráðherra varðandi nýjan veg um Mýrdal? Hvernig líst ráðherra á hugmyndir heimamanna um göng í gegnum Reynisfjall og nýjan veg sunnan byggðarinnar sem styrki uppbyggingu sjóvarnargarðs?
Í skýrslu Vegagerðarinnar Hringvegur um Mýrdal. Frumdrög, nóvember 2008, er gerð grein fyrir athugunum Vegagerðarinnar á framtíðarlegu vegar um Mýrdal. Í aðalatriðum skiptist verkefnið í þrennt: Lega vegarins um kauptúnið í Vík, lega vegarins um Reynisfjall og lega vegarins vestan Reynisfjalls.
Mat Vegagerðarinnar er að lega vegarins um Vík sé heppilegust utan og ofan við þéttbýlið. Samræmist það vel markmiðum stofnunarinnar um greiða, örugga umferð og að leiða umferðina fram hjá þéttbýlinu. Vegagerðin telur varla koma til álita að samnýta sjóvarnargarð og varnargarð fyrir þjóðveginn neðan þéttbýlisins enda þarf varnargarður fyrir veginn að vera miklu öflugri og þar með miklu dýrari en sjóvarnargarður. Auk þess er það mat Vegagerðarinnar að lega Hringvegar ofan byggðar sé ákjósanleg sem flóttaleið í hugsanlegu Kötlugosi.
Með legu Hringvegarins ofan byggðarinnar í Vík verður mögulegt hvort sem er að leggja veginn um Reynisfjall í núverandi legu um Gatnabrún með endurbættri veglínu vestast í fjallinu eða með því að gera jarðgöng um Reynisfjall. Jarðgöngin í þessari lausn yrðu um 1.600 m löng. Jarðgöng eru góður kostur með tilliti til öryggis og greiðfærni en helsti ókosturinn er mikill kostnaður. Með því að velja leiðina um Gatnabrún er ekki lokað á gerð jarðganga í framtíðinni, en arðsemi þeirra eykst með aukinni umferð síðar meir.
Breytingar á veglínu vestan Reynisfjalls tengjast allar gerð jarðganga um fjallið. Ef til slíkrar jarðgangagerðar kemur telur Vegagerðin álitlegt að fara sunnan Geitafjalls og síðan í framhaldinu norðan Dyrhólaóss í hæfilegri fjarlægð. Ef ekki verða gerð jarðgöng um Reynisfjall verður lega vegarins vestan fjallsins að mestu óbreytt nema allra næst fjallinu eins og áður er getið. Aðrar minni háttar breytingar gætu orðið enn vestar.
2. Hver er staða uppbyggingar sjóvarnargarðs við Vík? Óskað er eftir upplýsingum um fjárframlög til verkefnisins og áætlunum um verktíma.
Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi sjóvarnargarðs við Vík verði 750 m garður framan við byggðina vestan Víkurár. Nokkuð er í að landbrot austan árinnar verði komið á það stig að mannvirki verði þar í hættu.
Staða uppbyggingar sjóvarnargarðs og fjárframlög.
Á árinu 2009 eru til ráðstöfunar í sjóvarnargarð við Vík í Mýrdal um 11 millj. kr. Þar af er framlag ríkisins á fjárlögum 2009 og fyrr 9,6 millj. kr. ( 7/ 8), en er mótframlag Mýrdalshrepps 1,4 millj. kr. ( 1/ 8).
Samkvæmt samgönguáætlun skal þessu fé varið til rannsókna og undirbúnings vegna grjótvarnar utan á flóðvarnargarðinn við Vík. Í því felst m.a. grjótnámsrannsóknir, fyrirspurn um matsskyldu framkvæmda, mælingar og hönnun sjóvarnargarðs. Vinna við þessa verkþætti stendur nú yfir. Stefnt er á að í ársbyrjun 2010 verði undirbúningur kominn á það stig að hægt verði að bjóða út 750 m langan sjóvarnargarð vestan Víkurár.
Áætlað er að í þennan garð þurfi um 40.000 m 3 af grjóti og sprengdum kjarna. Frumáætlun gerir ráð fyrir heildarkostnaði um 230 millj. kr. og er þá miðað við að sjóvarnargarðurinn nái upp í 7,7 metra hæð.
Á núgildandi sjóvarnaáætlun eru á árinu 2010 áætlaðar 30 millj. kr. til byrjunarframkvæmda við sjóvarnargarð. Sú tala þyrfti því að hækka um 200 millj. kr. ef klára á garðinn vestan Víkurár á næsta ári.
Áætlun um verktíma.
Áður en til útboðs kemur þarf að liggja fyrir staðfest fjárheimild til verksins. Jafnframt þarf að samþykkja skipulag en enn er til umfjöllunar tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2005–2025 þar sem sjóvarnargarður er sýndur. Reikna má með að verkið taki 6–8 mánuði frá því að það er boðið út.
Nýr vegur sunnan byggðar í Vík.
Siglingastofnun hefur lagt mat á hæð sjóvarnargarðs með tilliti til þess að ágjöf inn á veginn verði innan viðunandi marka. Ef þjóðvegur verður í 50 m fjarlægð eða meira frá sjóvarnargarði þarf hæð garðsins að vera 7,7 m. Sé vegurinn í um 6 m fjarlægð þarf garðurinn að hækka í 12,3 m.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 329 — 159. mál.
Svar