Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 98. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 345  —  98. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um skýrslu Seðlabankans um stöðu heimilanna.

    Forsætisráðherra óskaði eftir svörum Seðlabanka Íslands við þeim spurningum sem fram koma í fyrirspurninni og fara þau hér á eftir.

     1.      Hvernig var komist að þeirri niðurstöðu að 40% af ráðstöfunartekjum heimilis sé viðráðanleg greiðslubyrði af föstum afborgunum lána?
    Ýmsar viðmiðanir um greiðslubyrði, skuldastöðu, lausafjárstöðu, sparnað, eignasamsetningu og eiginfjárstöðu heimila eru notaðar víða um heim, m.a. við ákvarðanir um lánveitingar og mat og eftirlit á fjárhagslegum styrk heimila, t.d. út frá gjaldþrotaáhættu. Viðmiðanir af þessu tagi eru skilgreindar á ýmsan hátt og misjafnt er hvaða mælikvarðar eru notaðir fyrir umræddar stærðir, t.d. greiðslubyrði og tekjur. Í sumum tilvikum er miðað við heildargreiðslubyrði vegna vaxta og afborgana af höfuðstól en í öðrum tilvikum er eingöngu miðað við vaxtagreiðslur ef gögn um heildargreiðslubyrði liggja ekki fyrir. Sömuleiðis er misjafnt hvort miðað er við heildartekjur eða ráðstöfunartekjur. Þetta þarf að hafa í huga við samanburð á viðmiðunum. Fjölmargar rannsóknir liggja fyrir um notkun viðmiðana af þessu tagi, m.a. í ljósi þess hversu áreiðanleg vísbending þær eru um fjárhagsvandræði heimila í framtíðinni. 1 Samræmi í notkun, við mælingu og skilgreiningu þessara viðmiðana er þó nokkuð ábótavant þótt miklar framfarir hafi orðið á því sviði.
    Í kynningu á niðurstöðum Seðlabanka Íslands um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahruns á málstofu 11. júní 2009 var miðað við að greiðslubyrði fasteignaveðlána sem væri lægri en 30% af ráðstöfunartekjum væri viðráðanleg og að samanlögð greiðslubyrði vegna fasteignaveðlána, bílalána og yfirdráttarlána væri viðráðanleg ef hún væri innan við 40% af ráðstöfunartekjum. Enn fremur var því haldið fram að heildargreiðslubyrði sem væri yfir 50% af ráðstöfunartekjum teldist mjög þung. Þessar viðmiðanir eru í takt við þær sem eru notaðar víða um heim af m.a. fjárhagsráðgjöfum, bankastofnunum og seðlabönkum.
    Frá árinu 1980 hefur Seðlabanki Bandaríkjanna reiknað út greiðslubyrðishlutfall heimila (e. household debt service ratio, DSR, áður nefnt household debt service burden) sem mælir greiðslur af lánum sem hlutfall af ráðstöfunartekjum heimila. Bankinn hefur bæði byggt á tölum um tekjur og greiðslubyrði lána fyrir heimilisgeirann í heild og niðurstöðum kannana sem gerðar eru á þriggja ára fresti (e. Survey of Consumer Finances). Árið 1999 hóf bankinn að birta víðtækari mælikvarða fyrir greiðslubyrði heimila sem inniheldur greiðslubyrði vegna rekstrarleigu bíla, húseigendatryggingu o.fl. þátta (e. the financial obligations ratio, FOR) í ljósi breytinga á lánamarkaði og aukinnar útbreiðslu rekstrarleigu á bílum. 2 Í skýrslu um breytingar á stöðu bandarískra heimila á tímabilinu 2004–2007 er m.a. fjallað um greiðslubyrði heimila. Þar kemur fram að samkvæmt þrengri mælikvarðanum (DSR-greiðslubyrðishlutfallinu) hafi greiðslubyrði heimila aukist nokkuð frá árinu 2004 og hafi verið um 14½% árið 2007. Víðari mælikvarðinn á greiðslubyrði endurspeglaði áþekka þróun en hann mældist um 18% en 20½% ef eingöngu var litið til húsnæðiseigenda (sjá Bucks o.fl. 2009). Í skýrslunni kemur fram að betri mælikvarði á fjárhagsvanda heimila sé hlutfall heimila með þunga greiðslubyrði í hlutfalli við tekjur og miðar bankinn þá við heimili sem eru með heildargreiðslubyrði yfir 40% af ráðstöfunartekjum líkt og gert var í úttekt Seðlabanka Íslands. Um 15% bandarískra heimila voru í þessari stöðu árið 2007 og hafði hlutfallið aukist um 2,5 prósentur á umræddu tímabili (Bucks o.fl. 2009: A51–A52). Sambærilegt hlutfall hér á landi var 23% í byrjun árs 2009.
    Algengt viðmið meðal bandarískra og kanadískra banka við ákvörðun um veitingu íbúðalána er að greiðslubyrði íbúðalánsins (auk ýmiss kostnaðar við rekstur húsnæðis, svo sem fasteignagjalda, skatta o.fl.) sé ekki hærri en u.þ.b. 28–32% af heildartekjum og að greiðslubyrði allra lána heimilisins fari ekki yfir 40% af heildartekjum. 3 Hér skiptir máli að viðmiðanirnar eru hlutfall af heildartekjum en ekki ráðstöfunartekjum. Samkvæmt Faruqui (2008) eru meðalráðstöfunartekjur um 75% af heildartekjum í Kanada og samkvæmt því verða þessar viðmiðanir bandarískra og kanadískra banka áþekkar þeim viðmiðunum sem Seðlabanki Íslands notar. Ef eitthvað er, þá eru þær hærri og nær þeim mörkum sem eru skilgreind sem mjög þung greiðslubyrði í úttekt Seðlabankans. Viðmiðun kanadískra banka um að heildargreiðslubyrði lána megi ekki fara yfir 40% heildartekna samsvarar þannig um 53% af ráðstöfunartekjum. Í rannsóknum hagfræðinga hjá Seðlabanka Nýja-Sjálands hefur verið miðað við enn hærra hlutfall eða að greiðslubyrði íbúðalána sé hærri en 55% af ráðstöfunartekjum þegar rætt er um þunga greiðslubyrði (sjá Kida 2009) og Seðlabankinn í Chile hefur miðað við svipað hlutfall (sjá Cox o.fl. 2006).
    Greninger o.fl. (1996) hafa leitast við að búa til samræmd viðmið fyrir ýmis hlutföll um fjárhagslega stöðu heimila. Niðurstaða þeirra er að greiðslubyrði íbúðalána sem er lægri en 35% af ráðstöfunartekjum sé viðráðanleg og að heildargreiðslubyrði allra lána sé viðráðanleg ef hún er innan við 45% af ráðstöfunartekjum.
    Í nýrri skýrslu sérstaks starfshóps peningastefnunefndar Seðlabanka Evrópu um fjármögnun íbúðakaupa á evrusvæðinu er m.a. fjallað um miðgildi fyrir greiðslubyrðishlutfall íbúðalána fyrir evrulöndin auk þess sem sýnd eru miðgildi hlutfallsins fyrir ólíka tekju- og aldurshópa (sjá Task Force of the Monetary Policy Committee of the European System of Central Banks 2009). 4 Í skýrslunni kemur fram að í löndum á borð við Grikkland, Spán, Ítalíu og Holland nemur greiðslubyrði íbúðalána að jafnaði (m.v. miðgildi) meira en þriðjungi ráðstöfunartekna meðal tekjulægstu hópanna. Þessir hópar eru af þeim sökum taldir í viðkvæmri stöðu í skýrslunni (sjá bls. 19) sem samræmist viðmiðun Seðlabanka Íslands um að greiðslubyrði íbúðalána sé þung þegar hún er komin yfir 30% ráðstöfunartekna.
    Í ljósi alls þessa má fullyrða að viðmiðanir Seðlabankans um viðráðanlega greiðslubyrði séu í góðu samræmi við þær sem notaðar eru í öðrum löndum. Að sjálfsögðu er það þó þannig, eins og lögð var áhersla á við kynningu á bráðabirgðaniðurstöðum Seðlabankans, að þetta eru viðmiðanir sem hægt er að nota sem vísbendingar um stöðuna og gæta verður nokkurrar varúðar í að leggja of mikið upp úr þeim og hvað þá nákvæmum gildum þeirra.
    Rétt er að halda því til haga að sá mælikvarði sem notaður er fyrir ráðstöfunartekjur í rannsókn Seðlabanka Íslands byggist á staðgreiðslugögnum frá ríkisskattstjóra. Staðgreiðslugögnin gefa ekki eins nákvæma mynd af ráðstöfunartekjum og gögn sem byggjast á skattframtölum einstaklinga sem eru venjulega notuð í þessum tilgangi. Um leið er ljóst að óvænlegt er að bíða eftir að framtalsgögn liggi fyrir um tekjuárið 2009 og því byggist rannsókn Seðlabankans á staðgreiðslugögnum en inn í þau vantar vaxtabætur, barnabætur, meðlag, ýmsar verktakagreiðslur o.fl. sem geta skipt miklu og þá einkum fyrir lágtekjuhópa þar sem þessar greiðslur geta verið verulegur hluti heildarráðstöfunartekna. Raunverulegar ráðstöfunartekjur heimila eru því líklega vanmetnar í bráðabirgðamati bankans og hlutfall heimila með þunga greiðslubyrði gæti því verið nokkuð lægra hjá lægstu tekjuhópunum en tölurnar gefa til kynna líkt og fjallað var um þegar niðurstöðurnar voru kynntar.

     2.      Er til opinber framfærslugrunnur fyrir íslensk heimili?
    Hagstofa Íslands framkvæmir reglulega rannsókn á útgjöldum heimila. Megintilgangur rannsóknarinnar er að afla upplýsinga sem eru notaðar til að útbúa útgjaldagrunn fyrir vísitölu neysluverðs. Hins vegar er ekki á neinn hátt reynt að meta hvort útgjöld teljast nauðsynleg framfærsla eða ekki og gefur rannsóknin því ekki upplýsingar um hvað heimili þurfa sér til framfærslu. Niðurstöður rannsóknar á útgjöldum heimilanna árin 2005–2007 voru birtar í desember í fyrra. Þar kom m.a. fram að neysluútgjöld á heimili hafi hækkað um 7,7% árin 2005–2007 frá tímabilinu 2004–2006 og orðið tæpar 396 þús. kr. á mánuði, eða 165 þús. kr. á mann. Rétt er að skoða þessar upphæðir í ljósi þeirrar gríðarlegu aukningar sem átti sér stað í einkaneyslu á þessum árum sem var drifin áfram af mikilli hækkun ráðstöfunartekna, aukinni skuldasöfnun, sterkum auðsáhrifum og almennri bjartsýni.
    Ráðgjafarstofa heimilanna birtir neysluviðmiðun á heimasíðu sinni. 5 Samkvæmt lýsingu á heimasíðunni er viðmiðunarneyslan gerð „að norrænni fyrirmynd en aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Fjárhæðirnar eru byggðar á heimilisbókhaldi 40 fjölskyldna í landinu sem færðu heimilisbókhald yfir þriggja mánaða tímabil. Útgjöld þeirra voru síðan skoðuð þannig að einungis var tekið tillit til nauðsynlegra útgjalda að mati Ráðgjafarstofu.“ Ráðgjafarstofan uppfærði neysluviðmiðunina í ágúst 2009. Hún leggur áherslu á að þar vanti upplýsingar um síma, áskriftir, fasteignagjöld/húsaleigu, tryggingar, bifreiðakostnað, dagheimilisgjöld og aðra útgjaldaliði sem fastir eru hjá hverri fjölskyldu. Þær tölur byggist á raunhæfum tölum frá hverjum og einum.

     3.      Er tekið tillit til frystingar og frestunar á afborgunum við útreikning á greiðslubyrði heimilanna af föstum afborgunum lána?
    Rannsókn Seðlabankans á stöðu heimila í kjölfar bankahruns byggist á upplýsingum sem bankar, sparisjóðir, fjármögnunarfyrirtæki, Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir veittu starfshópi Seðlabankans fyrr á þessu ári. Útreikningar á greiðslubyrði lána byggjast á öllum þeim lánum þar sem viðkomandi fjármálastofnun hefur veitt upplýsingar um hver greiðslubyrði var samkvæmt nýjasta greiðsluseðli. Þegar lán voru í „frystingu“ hjá fjármálastofnununum fékk Seðlabankinn ekki alltaf upplýsingar um greiðslubyrðina sem kom í veg fyrir að hægt væri að byggja á þeim gögnum. Öll lán, hvort sem þau voru í frystingu eða ekki, eru meðtalin í öllum stöðustærðum, t.d. þegar dreifing skulda eftir tekju- eða gjaldmiðlahópum er skoðuð, sýnt er fram á hversu skuldsett heimilin eru í hlutfalli við ráðstöfunartekjur eða eiginfjárstaða þeirra metin. Til að geta metið greiðslubyrði allra frystra lána þarf að gera spár um þróun greiðslubyrðinnar út frá öðrum upplýsingum sem liggja fyrir um vexti, lánstíma, upphaflega upphæð láns, gjaldmiðlasamsetningu o.s.frv. Sú vinna stendur yfir og tengist vinnu við mat á skuldastöðu heimilanna til lengri tíma litið sem byggist á gerð spáa um hvernig eignir, skuldir, tekjur og greiðslubyrði muni þróast fyrir heimilin miðað við forsendur um framvindu vaxta, verðbólgu, launa og gengis krónunnar. 6

     4.      Hvernig er skuldastaða íslenskra heimila miðað við heimili í öðrum löndum?
    Alþjóðlegur samanburður á skuldum heimila er vandasamur. Gagnaöflun er ólík á milli landa, gæði gagna misjöfn og nauðsynlegt er að setja skuldsetningu heimila í samhengi við stofnanauppbyggingu viðkomandi landa, t.d. útbreiðslu húsnæðiseignar, fyrirkomulag lánsfjármögnunar, lífeyrissjóðskerfi, gjaldmiðlasamsetningu, hlutfall skuldlausra heimila, aldursdreifingu o.fl. Ýmsir mælikvarðar eru notaðir við samanburð á skuldum heimila á milli landa. Algengt er að skoða heildarskuldir heimila í hlutfalli við ýmist heildarráðstöfunartekjur eða verga landsframleiðslu. Á grundvelli beggja þessara mælikvarða voru íslensk heimili í hópi skuldugustu heimila í hinum vestræna heimi fyrir bankahrunið í fyrra, einungis dönsk og hollensk heimili voru skuldsettari. 7 Þessir mælikvarðar hafa báðir ýmsa annmarka, t.d. segja þeir ekkert til um hvernig skuldirnar dreifast né umfang eigna til mótvægis við skuldir og því erfitt að fullyrða um getu heimilanna til að standa undir greiðslubyrði skulda út frá slíkum heildartölum.
    Í kynningu á bráðabirgðaniðurstöðum rannsóknar Seðlabanka Íslands á málstofu í bankanum 11. júní 2009 var dreifing skulda íslenskra heimila sýnd, mæld sem hlutfall ráðstöfunartekna. 8 Þar kom m.a. fram að liðlega fjórðungur heimila er með heildarskuldir sem nema meira en fimmföldum ársráðstöfunartekjum þeirra. Þetta er svipað hlutfall og mældist í Noregi árin 2002–3 en töluvert lægra en í aðdraganda norsku bankakreppunnar þegar ríflega þriðjungur norskra heimila hafði skuldir sem námu yfir 500% ráðstöfunartekna. Í kynningunni kom einnig fram að þegar dreifing heildarskulda er skoðuð eftir tekjuhópum kemur í ljós að tilhneiging tekjuhærri hópa til að vera með hlutfallslega stóran hluta heildarskulda er minni en víða erlendis. Í Svíþjóð er til að mynda sá fimmtungur heimila sem hefur hæstu tekjurnar með 57% heildarskuldanna 9 og í Noregi eru þau 10% heimila sem hafa hæstu tekjurnar með liðlega fjórðung heildarskulda. 10 Seðlabankinn mun gera nánari grein fyrir alþjóðlegum samanburði á skuldum íslenskra heimila út frá ýmiss konar mælikvörðum í endanlegri skýrslu um stöðu heimilanna.

     5.      Hvernig hefur skuldastaða íslenskra heimila þróast frá árinu 2000?
    Eftirfarandi mynd sýnir þróun skulda heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum frá árinu 1980 fram á þriðja ársfjórðung 2008. Hlutfallið hefur hækkað samfellt á tímabilinu og er í lok þess um 250%. 11 Í fjármálastöðugleikaskýrslum bankans hefur verið fjallað um þróun eigna, skulda, tekna og greiðslubyrði lána og gerð grein fyrir helstu áhættuþáttum. Þegar litið er til þróunarinnar frá aldamótum er ljóst að meginhluta þess tímabils jukust eignir og ráðstöfunartekjur hraðar en skuldir og greiðslubyrði lána, a.m.k. þegar miðað var við tölur um heildareignir, -skuldir og -ráðstöfunartekjur auk áætlaðrar greiðslubyrði. Á þessu hefur orðið breyting: eignir heimila, einkum húsnæði, fara lækkandi í verði, skuldir hafa hækkað vegna verðbólgu og gengislækkunar krónunnar, kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur dregist ört saman og greiðslubyrði aukist.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Heimildir:
         Baek, Eunyoung og Sharon A. DeVaney (2004). „Assessing the Baby Boomers' Financial Wellness Using Financial Ratios and a Subjective Measure“, Family and Consumer Sciences Research Journal, 32(4), 321–348.
         Bucks, Brian K., Arthur B. Kennickell, Traci L. Mach, og Kevin B. Moore (2009). „Changes in U.S. Family Finances from 2004 to 2007: Evidence from the Survey of Consumer Finances“, Federal Reserve Bulletin, febrúar 2009, A1-A56.
         Cox, Paulo, Eric Parrado og Jamie Ruiz-Tagle (2006). „The Distribution of Assets, Debt and Income among Chilean Households“, Central Bank of Chile Working Papers, No. 388.
         Debelle, Guy (2004). „Macroeconomic implications of rising household debt“, BIS Working Papers, No. 153.
         DeVaney, Sharon A. (1994). „The Usefulness of Financial Ratios as Predictors of Household Insolvency: Two Perspectives“, Financial Counselling and Planning, Vol 5., 5–26.
         DeVaney, Sharon A. og Ruth H. Lytton (1995). „Household Insolvency: A Review of Household Debt Repayment, Delinquency, and Bankruptcy“, Financial Services Review, 4(2), 137–156.
         Dynan, Karen, Kathleen Johnson og Karen Pence (2003). „Recent Changes to a Measure of U.S. Household Debt Service“, Federal Reserve Bulletin, október 2003, 417–426.
         Faruqui, Umar (2008). „Indebtedness and the Household Financial Health: An Examination of the Canadian Debt Service Ratio Distribution“, Bank of Canada Working Paper No. 2008-46.
         Garman ,E. Thomas og Raymond E. Forgue (2006). Personal Finance, 8. útg., Houghton Mifflin College, USA.
         Greninger, Sue A., Vickie L. Hampton, Karrol A. Kitt og Joseph A. Achacoso (1996). „Ratios and Benchmarks for Measuring the Financial Well-Being og Families and Individuals“, Financial Services Review, 5(1), 51–70.
         Hagstofa Íslands (2008). „Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2005–2007“ , Hagtíðindi 2008:6, 10. desember 2008.
         Hellebrandt, Thomas, Sanhya Kawar og Matt Waldron (2009). „The economics and estimation of negative equity“, Bank of England Quarterly Bulletin, No. 2009Q2, 110–121.
         Kida, Mizuho (2009). „Financial vulnerability of mortgage-indebted households in New Zealand – evidence from the Household Economic Survey“, Reserve Bank of New Zealand Bulletin, 72(1), 5–12.
         Ráðgjafarstofa heimilanna (2009). „Neysluviðmiðun“, aðgengileg á www.rad.is/fjarmal/neysluvid midun/.
         Riiser, Magdalena D. og Bjørn Helge Vatne (2006). „Developments in household debt. An analysis of microdata for the period 1986-2003“ , Norges Bank Economic Bulletin, No. 2/06, 72–79.
         Riksbanken (2009). Financial Stability Report 2009/1, 2. júní 2009.
         Seðlabanki Íslands (2007). Fjármálastöðugleiki 2007, 3. rit, 25. apríl 2007.
Seðlabanki Íslands (2008). Fjármálastöðugleiki 2008, 4. rit, 8. maí 2008.
         Task Force of the Monetary Policy Committee of the European System of Central Banks (2009). „Housing Finance in the Euro Area“, ECB Occasional Paper Series, No. 101.
         Winger, Bernard J. og Ralph R. Frasca (2000). Personal Finance – An Integrated Planning Approach, Upper Saddle River, Prentice Hall.
Neðanmálsgrein: 1
1     Sjá t.d. DeVaney (1994), DeVaney og Lytton (1995), Greninger o.fl. (1996), Winger og Frasca (2000), Baek og DeVaney (2004) og Garman og Forgue (2006).
Neðanmálsgrein: 2
2     Sjá umfjöllun um DSR og FOR hlutföllin í Dynan o.fl. (2003) og umfjöllun um mismuninn á mælikvörðum sem byggjast á niðurstöðum kannana og þeim sem byggjast á tölum fyrir heimilisgeirann í heild sinni í Bucks o.fl. (2009).
Neðanmálsgrein: 3
3     Fyrir Kanada: sjá stutta umfjöllun í Faruqui (2008) og heimasíður kanadískra banka. Fyrir Bandaríkin: sjá t.d. heimasíðu bandaríska risaíbúðalánasjóðsins Freddie Mack.
Neðanmálsgrein: 4
4     Miðað er við afborganir og vaxtagreiðslur íbúðalána í hlutfalli við ráðstöfunartekjur.
Neðanmálsgrein: 5
5     Sjá www.rad.is/fjarmal/neysluvidmidun/.
Neðanmálsgrein: 6
6     Fulltrúar Seðlabankans fóru ítarlega yfir þessa þætti á fundi með efnahags- og skattanefnd Alþingis 16. júní 2009.
Neðanmálsgrein: 7
7     Sjá t.d. töflu 8.1 í riti Seðlabanka Íslands, Economy of Iceland (bls. 54). Ekki eru til nýjar sambærilegar tölur þar sem efnahagsreikningar nýju bankanna liggja ekki fyrir.
Neðanmálsgrein: 8
8     Sjá töflu 2 bls. 77 í Riiser og Vatne (2006).
Neðanmálsgrein: 9
9     Sjá bls. 47 í fjármálastöðugleikaskýrslu Seðlabanka Svíþjóðar 1/2009 (Riksbanken, 2009).
Neðanmálsgrein: 10
10     Sjá töflu 3 bls. 78 í Riiser og Vatne (2006).
Neðanmálsgrein: 11
11     Seðlabankinn hefur ítrekað gert grein fyrir þróun skulda íslenskra heimila á undanförnum árum og vísast því að mestu leyti í þau skrif. Sjá t.d. bls. 21–30 í Fjármálastöðugleika 2008 og bls. 33–39 í Fjármálastöðugleika 2007 auk þess sem bankinn birtir reglulega upplýsingar um skuldir heimila við lánakerfið á heimasíðu sinni.