Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 170. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 353  —  170. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um mótmælaaðgerðir og mál lögreglu.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Hversu mörgum málum lögreglu, er varða eignaspjöll, ofbeldi, óhlýðni við fyrirmæli lögreglu eða brot á lögreglusamþykkt og tengjast svonefndum mótmælaaðgerðum við opinberar stofnanir tímabilið 1. október 2008 til 1. febrúar 2009, hefur lokið með:
              a.      sektarboði lögreglustjóra,
              b.      ákæru,
              c.      því að lögreglustjóri vísaði máli til ríkissaksóknara,
              d.      niðurfellingu?
        Óskað er eftir því að framangreind brot verði sundurliðuð og eins að mál skv. a-lið verði sundurliðuð eftir því hvort sektarboði hefur verið tekið eða því hafnað eða ekki sinnt.
     2.      Hver var kostnaður lögreglu við nauðsynlegar aðgerðir og gæslu vegna þeirra mótmæla sem áttu sér stað í höfuðborginni sl. vetur?


Skriflegt svar óskast.