Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 322. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1012 — 322. mál.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um kostnað við fiskveiðieftirlit hjá Fiskistofu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er kostnaður við eftirlit veiðieftirlitsmanna á vegum Fiskistofu? Óskað er eftir upplýsingum annars vegar um kostnað eftirlits um borð í fiskiskipum og hins vegar við eftirlit í landi. Enn fremur er óskað eftir sundurliðun á launakostnaði, ferðakostnaði, dagpeningum og öðrum útlögðum kostnaði.
Í eftirfarandi töflu eru teknar saman upplýsingar varðandi kostnað af eftirliti veiðieftirlitsmanna á vegum Fiskistofu. Rétt er að taka fram að tölurnar sem þar er að finna taka einungis til kostnaðar sem fylgir veiðieftirliti á vettvangi, þ.e. um borð í fiskiskipum, í löndunarhöfnum og hjá vigtunarleyfishöfum. Í þessum tölum er því ekki tilgreindur kostnaður af stjórnun eftirlitsmanna sem fram fer í höfuðstöðvum Fiskistofu í Hafnarfirði eða kostnaður sem til verður vegna nauðsynlegs undirbúnings og gagnaöflunar vegna eftirlitsstarfa á vettvangi og úrvinnslu og eftirfylgni skýrslna sem til verða vegna mála sem upp koma við vettvangseftirlit, og ekki heldur annar kostnaður af annarri starfsemi Fiskistofu sem að einhverju leyti er tengd eða til komin vegna vettvangseftirlits.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1012 — 322. mál.
Svar

Kostnaður veiðieftirlitsmanna fyrstu 11 mánuði ársins 2009.
| Eftirlit með fullvinnsluskipum | |
| Laun og launatengd gjöld | 38.233.978 |
| Dagpeningar | 217.328 |
| Ferðakostnaður | 359.665 |
| Annar kostnaður | 530.311 |
| Tekjur vegna veru eftirlitsmanna um borð | –11.434.500 |
| Samtals eftirlit með fullvinnsluskipum | 27.906.782 |
| Land- og sjóeftirlit | |
| Laun og launatengd gjöld – fastráðnir eftirlitsmenn | 164.343.295 |
| Laun og launatengd gjöld – lausráðnir eftirlitsmenn | 8.847.430 |
| Dagpeningar | 15.566.022 |
| Ferðakostnaður | 3.080.788 |
| Annar kostnaður | 4.314.364 |
| Skipaleiga | 2.918.168 |
| Samtals veiðieftirlit | 199.070.067 |
| Rekstur bifreiða | 10.142.863 |
| Húsaleiga | |
| Stykkishólmur | 1.265.100 |
| Ísafjörður | 1.336.154 |
| Akureyri | 1.169.800 |
| Höfn | 1.421.203 |
| Grindavík | 2.042.441 |
| Vestmannaeyjar | 901.871 |
| Hafnarfjörður, 20% | 8.228.729 |
| Samtals húsaleiga | 16.365.298 |
| Heildarkostnaður | 237.119.712 |