Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 599. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1022  —  599. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um upplýsingaaðgengi og textavarp.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvað líður gerð þjónustusamnings milli Ríkisútvarpsins og mennta- og menningarmálaráðuneytis hvað varðar textun á síðu 888 í textavarpi á dagskrárefni líðandi stundar, t.d. fréttum, Kastljósi og öðru innlendu efni?
     2.      Eru í gildi einhverjar verklagsreglur um textun við rof á útsendingu vegna óvæntra atvika, svo sem náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða?
     3.      Hyggst ráðherra leggja til að öllum sjónvarpsstöðvum verði skylt að senda út efni með textun á síðu 888 í textavarpi?


Skriflegt svar óskast.