Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 172. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1023  — 172. mál.




Svar



félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um vinnustaði fatlaðra og launakjör.

     1.      Hversu margir vinnustaðir fatlaðra hafa verið fluttir úr umsjá svæðisskrifstofa málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar síðan það var ákveðið með lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006?
    Yfirfærslu atvinnumála fatlaðra til Vinnumálastofnunar er ekki lokið og eru vinnustaðir fatlaðra enn í umsjá svæðisskrifstofa málefna fatlaðra. Unnið hefur verið að undirbúningi yfirfærslunnar í starfshópum sem skipaðir voru á hverju svæði fyrir sig þar sem fulltrúar Vinnumálastofnunar á svæðinu og fulltrúar viðkomandi svæðisskrifstofu hafa átt sæti.

     2.      Ef tilflutningnum er ekki enn lokið, hvenær er þá áætlað að honum ljúki og hvað hefur valdið töfum á málinu?

    Áætlað var að yfirfærsla atvinnumála fatlaðra frá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar gæti átt sér stað í upphafi árs 2009. Sú áætlun gekk ekki eftir en ástæða þessa er einkum aukið álag hjá Vinnumálastofnun við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins og vinnumarkaðsaðgerða sem rekja má til breyttra aðstæðna á vinnumarkaði haustið 2008 þegar atvinnuleysi jókst mjög hratt.
    Ráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sameiningu Vinnumálastofnunar og Vinnueftirlitsins í Vinnumarkaðsstofnun. Í 2. gr. þess frumvarps er það skilgreint sem hlutverk hinnar nýju stofnunar að samræma starfshæfnismat, þar á meðal að þróa og ákvarða hvaða mælitæki og aðferðir skuli nýtt til mats á starfshæfni í samstarfi við aðra aðila sem starfa á þessu sviði og að annast af opinberri hálfu skipulag starfsendurhæfingar og samhæfingu fjármögnunar. Jafnframt er tiltekið að Öryrkjabandalag Íslands skuli eiga fulltrúa í stjórn Vinnumarkaðsstofnunar.
    Í greinargerð með frumvarpinu segir eftirfarandi: „Henni er … ætlað að vera leiðandi af hálfu hins opinbera í skipulagningu og uppbyggingu á starfsendurhæfingu um allt land í því skyni að stuðla að því að sem flestir geti verið virkir þátttakendur á vinnumarkaði, sér og samfélaginu til hagsbóta. Stofnunin mun í starfi sínu vinna að því að samþætta starf sitt og aðila vinnumarkaðarins að málefnum starfsendurhæfingar, meðal annars með tilliti til samræmdra reglna um mat á starfshæfni og vinnugetu. Í því starfi verði sérstaklega tekið mið af frumkvæði og því þróunarstarfi sem unnið hefur verið að af hálfu aðila vinnumarkaðarins með stofnun og starfrækslu Starfsendurhæfingarsjóðs. Markmiðið er að allir landsmenn njóti sama réttar til starfsendurhæfingar og starfshæfingar þó greiðsluskylda vegna bæði bóta og þjónustu sé hjá mismunandi aðilum.“
    Með þessu frumvarpi er því lagður grundvöllur að endurskipulagningu á starfshæfingarmálum í samræmi við lög um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006. Hin nýja stofnun mun, verði frumvarpið samþykkt, taka til starfa 1. janúar 2011. Ráðherra hefur jafnframt skipað nefnd aðila stöðugleikasáttmálans, og Öryrkjabandalags Íslands vegna málefna er varða sérstaklega skjólstæðinga þess, til að fara yfir skipulag og verkefni nýrrar Vinnumarkaðsstofnunar. Ráðgjafar ráðuneytisins munu vinna með nefndinni. Með þessum áformum er lagður grunnur að yfirfærslu atvinnumála fatlaðs fólks til stofnunar vinnumarkaðsmála eins og kveðið er á um í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir.

     3.      Hvað hafa margir vinnustaðir fatlaðra gert kjarasamninga í samræmi við samkomulag Alþýðusambands Íslands og Hlutverks – samtaka um vinnu og verkþjálfun frá maí 2006 um laun og réttindi fatlaðra starfsmanna? Hvaða vinnustaðir greiða starfsmönnum laun í samræmi við ákvæði þeirra?

    Alls hafa þrettán vinnustaðir fatlaðra gert kjarasamninga á grundvelli samkomulags Alþýðusambands Íslands og Hlutverks – samtaka um vinnu og verkþjálfun frá maí 2006. Þeir eru:
     –      Ás – vinnustofa,
     –      Ásgarður – handverkstæði,
     –      Blindravinnustofan,
     –      Bjarkarás,
     –      Fjöliðjan – vinnu- og hæfingarstaður,
     –      Kertaverksmiðjan Heimaey,
     –      Múlalundur,
     –      Plastiðjan Bjarg/Iðjulundur,
     –      Stólpi,
     –      Vinnustaðir Öryrkjabandalags Íslands,
     –      vinnustofur Skálatúns,
     –      vinnustofan Hólaberg,
     –      Örvi.
    Allir þessir vinnustaðir greiða starfsmönnum í samræmi við ákvæði kjarasamninga fyrir utan Ásgarð – handverkstæði og vinnustofur Skálatúns þar sem enginn starfsmaður þar nær því að vera með 30% starfshæfni samkvæmt matsgögnum Hlutverks – samtaka um vinnu- og verkþjálfun.

     4.      Hafa sumir vinnustaðir ekki enn lokið slíkum samningum og ef svo er, hvað veldur því? Hvernig er launum og réttindum fatlaðra starfsmanna háttað á þeim stöðum sem hafa ekki enn gert kjarasamninga?

    Enn hafa einhverjir vinnustaðir ekki gert slíka samninga og hefur það fyrst og fremst verið vegna þess að þar starfa einstaklingar sem ekki verða taldir ná upp í þá 30% starfshæfni sem miðað er við og hefðu því slíkir samningar takmarkað gildi.
    Á þeim vinnustöðum þar sem ekki hafa verið gerðir slíkir samningar eða samningar eiga ekki við er þeim sem þangað sækja þjónustu greitt fyrir unnin verkefni. Vinnustaðir fatlaðra vinna oft ýmis verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir sem greitt er fyrir og er þeirri greiðslu yfirleitt skipt á starfsmenn sem verkið unnu eftir að kostnaður hefur verið dreginn frá.

     5.      Hefur ráðuneytið beitt áhrifum sínum til að þau mikilvægu réttindi sem felast í kjarasamningunum nái til allra vinnustaða fatlaðra?
    Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ávallt látið sig varða réttindi og aðstæður fatlaðra. Ráðuneytið vinnur að endurskoðun á starfsendurhæfingu og örorkumatskerfinu þar sem meðal annars er lögð áhersla á að meta starfshæfni einstaklinga og auka starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga sem vegna veikinda eða slysa fara af vinnumarkaði í ákveðinn tíma. Stefnt er að því að þessi endurskoðun feli einnig í sér endurskoðun á atvinnumálum fatlaðra en ætla má að niðurstöður þeirrar endurskoðunar kunni að hafa áhrif á skipulag vinnustaða fatlaðra.