Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 632. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1348 — 632. mál.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um umsókn um aðild að Evrópusambandinu.
1. Hvaða vinnuhópar, ef einhverjir eru, innan ráðuneytisins eða undirstofnana þess fjalla um málefni tengd umsókn um aðild að Evrópusambandinu?
Engir vinnuhópar hafa verið stofnaðir hjá stofnunum ráðuneytisins. Einn vinnuhópur er starfandi á vegum samgönguráðs og fjallar um áhrif ESB-umsóknar á samgöngumál. Einn starfsmaður Umferðarstofu hefur setið í hópnum en engir frá öðrum stofnunum.
2. Hversu margir starfsmenn má ætla að vinni að aðildarumsókninni innan ráðuneytisins og undirstofnana þess og hversu hátt hlutfall er það af heildarstarfsmannafjölda?
Af 32 starfsmönnum ráðuneytisins hafa þrír skrifstofustjórar stýrt vinnu vegna erinda og upplýsingagjafar sem tengist aðildarumsókn. Önnur vinna hefur farið fram á starfstíma starfsmanna og er hún óveruleg. Tveir starfsmenn ráðuneytisins hafa setið í vinnuhópum hjá öðrum ráðuneytum. Hjá Flugmálastjórn Íslands er áætlað að á undanförnum mánuðum hafi um hálft stöðugildi farið í vinnu vegna aðildarumsóknar. Einn starfsmaður af 49 hefur að einhverju leyti komið að þessum málum hjá Umferðarstofu en enginn hjá Siglingastofnun. Hjá Vegagerðinni er talið að einn mannmánuður hafi farið í verkefnið.
3. Hvað er áætlað að ráðuneytið og undirstofnanir þess verji miklu fé, á þessu ári og því næsta, til vinnu vegna aðildarumsóknarinnar?
Um útlagðan kostnað er ekki að ræða hjá ráðuneytinu umfram það sem felst í vinnu starfsmanna. Með vísan í svar við 2. tölul. má gera ráð fyrir að kostnaður Flugmálastjórnar á ársgrundvelli sé um 5 millj. kr. Ekki er gert ráð fyrir kostnaði hjá öðrum stofnunum nema hvað Vegagerðin telur kostnað sinn á bilinu 500–700 þús. kr. miðað við áðurnefndan mannmánuð í svari við 2. tölul.
4. Hefur starfsmönnum í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess verið fjölgað vegna aðildarumsóknarinnar og ef svo er, hve mörg stöðugildi er um að ræða?
Starfsmönnum stofnana ráðuneytisins hefur ekki verið fjölgað af þessum sökum. Hjá ráðuneytinu var starfsmaður verkefnaráðinn tímabundið mánuðina október til desember 2009 en að öðru leyti hafa fastir starfsmenn sinnt verkefninu meðfram öðrum störfum sínum.
5. Hefur ráðuneytið keypt einhverja utanaðkomandi ráðgjöf vegna aðildarumsóknarinnar og ef svo er, af hverjum var sú ráðgjöf keypt og hversu mikill var kostnaðurinn við það?
Hvorki ráðuneytið né stofnanir ráðuneytisins hafa keypt ráðgjöf vegna umsóknarinnar.
6. Liggur fyrir hvaða skipulagsbreytingar á stjórnsýslu þeirri sem undir ráðuneytið heyrir þurfa að vera komnar til framkvæmda áður en til aðildar kemur til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins? Óskað er eftir upplýsingum um breytingar sem eru fyrirsjáanlegar þrátt fyrir að heildarumfang þeirra liggi ekki fyrir.
Flugmálastjórn Íslands gerir ekki ráð fyrir að aðildarumsókn og/eða aðild muni breyta miklu hvað varðar starfsemi stofnunarinnar og bendir í því samhengi á að Ísland er nú þegar aðili að Flugöryggisstofnun Evrópu, EASA. Hjá Siglingastofnun og Vegagerðinni er ekki gert ráð fyrir skipulagsbreytingum og hjá Umferðarstofu eru ekki fyrirliggjandi upplýsingar eða ákvarðanir um þetta atriði.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1348 — 632. mál.
Svar