Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 679. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1405 — 679. mál.
til forsætisráðherra um aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta.
1. Hver hefur kostnaður við aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta verið á tímabilinu maí 2007 til maí 2010?
2. Hversu stór hluti kostnaðarins hefur verið vegna aðkeyptrar þjónustu, ráðgjafar og sérverkefna sem unnin hafa verið af núverandi og fyrrverandi starfsmönnum og kennurum íslenskra háskóla?
3. Hvernig skiptist kostnaðurinn eftir ráðuneytum?
4. Hvernig skiptist kostnaðurinn eftir einstökum aðkeyptum sérverkefnum, þjónustu og ráðgjöf, sundurgreint annars vegar eftir háskólum og hins vegar eftir einstökum starfsmönnum og kennurum?
Skriflegt svar óskast.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1405 — 679. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta.
Frá Óla Birni Kárasyni.