Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 301. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 348  —  301. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um fjármögnun Atvinnuleysistryggingasjóðs.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.



     1.      Hverjar eru lögbundnar tekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs og hvernig hefur þeim verið breytt frá og með árinu 2001?
     2.      Hverjar hafa árlegar tekjur og útgjöld sjóðsins verið frá og með árinu 2001?
     3.      Hver hefur staða sjóðsins verið um hver áramót frá árinu 2001?


Skriflegt svar óskast.