Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 304. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 351  —  304. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um sjómannaafslátt og sveitarfélög.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver var heildarupphæð sjómannaafsláttar árið 2008, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
     2.      Hver var sjómannaafsláttur í einstökum sveitarfélögum sem hlutfall af sjómannaafslætti í heild?
     3.      Hver er íbúafjöldi einstakra sveitarfélaga sem hlutfall af íbúafjölda landsins?


Skriflegt svar óskast.