Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 190. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 399 — 190. mál.
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um álag á dómara héraðsdómstóla.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig er álag á dómara héraðsdómstóla reiknað út og hvað telur ráðherra að skýri eftirfarandi mun á álagi árin 2002–2008 (samkvæmt formúlu dómstólaráðs):
Héraðsdómur Vesturlands 95,04 á dómara,
Héraðsdómur Suðurlands 92,2 á dómara,
Héraðsdómur Norðurlands vestra 87,6 á dómara,
Héraðsdómur Austurlands 84,7 á dómara,
Héraðsdómur Reykjaness 76,3 á dómara,
Héraðsdómur Vestfjarða 73,4 á dómara,
Héraðsdómur Reykjavíkur 70,5 á dómara,
Héraðsdómur Norðurlands eystra 66 á dómara?
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið leitaði til dómstólaráðs eftir upplýsingum vegna þessarar fyrirspurnar. Rétt er að benda á að þær tölur sem koma fram í fyrirspurninni um álag á árunum 2002–2008 gefa ekki rétta mynd af stöðunni nú. Eins og fram kemur í töflunum hér á eftir er álagið á dómara þar sem það er mest (á Vesturlandi og Suðurlandi) 130% meira en þar sem það er minnst (á Vestfjörðum) miðað við aðferðafræði dómstólaráðs. Ástæður þessa felast ekki í aðferðafræðinni því að munur á álagi virðist alltaf mjög mikill, sama hvernig er talið. Þannig reynist heildarfjöldi mála á Reykjanesi meira en tvöfaldur á við það sem hann er á Norðurlandi vestra, jafnvel þótt honum sé deilt á aðstoðarmenn á Reykjanesi til jafns við dómara. Fjöldi munnlega fluttra einkamála á hvern dómara á Suðurlandi virðist alltaf margfaldur á við það sem hann er á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra – sama hvernig reiknað er.
Skýringin á þessum miklum mun á álagi virðist því sú að vinnuálag á dómara er í raun mjög mismunandi eftir landshlutum og að dómsmálayfirvöld hafa ekki nægjanlegar heimildir til að nýta héraðsdómara þar sem þeirra er mest þörf.
Málafjöldi 2008.
Í eftirfarandi töflu er gerð grein fyrir heildarmálafjölda héraðsdómstólanna og skiptingu þeirra á milli eftir einstökum málaflokkum. Málin eru samtals 30.248.
Skýringar með töflu: e-munn: munnlega flutt einkamál, e-skrif: skriflega flutt einkamál, s-ákæru: sakamál, ákærumál, s-sekt: sektarboðsmál, a-l+Ú: aðfararbeiðnir, þ.m.t. innsetningarbeiðnir og útburðarbeiðnir, d/g: dánarbú og gjaldþrot, r-mál: rannsóknarúrskurðir .
Veginn málafjöldi 2008.
Í töflunni er gerð grein fyrir því að hvert munnlega flutt einkamál telst eitt mál, hvert skriflega flutt einkamál telst 1/70 af máli o.s.frv. Þannig teljast þessi 30 þúsund mál vera 3.345 einkamál sem síðan er skipt niður á dómara.
Fjöldi dómsmála (ígildi munnlega fluttra einkamála) á hvern dómara 2008.
Í næstu töflu er gerð grein fyrir fjölda ígilda dómara og veginna mála á hvert dómaraígildi.
Þessa töflu hefur dómstólaráð haft til hliðsjónar í upphafi hvers árs þegar litið er til álags á hvern einstakan dómstól.
Dómstólaráð hefur stuðst við þessa reikningsaðferð frá árinu 1998 til að skoða álag á dómstólana. Dómstólaráð telur einsýnt að þörf sé á að endurskoða þessa aðferðafræði og telur afar mikilvægt að reiknilíkan dómstólanna endurspegli vægi mála. Dómstólaráð hefur ákveðið að ráðast í vinnu við gerð nýs reiknilíkans sem taki mið af mannaflaþörf og mun í því sambandi leita fyrirmynda annars staðar á Norðurlöndum.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 399 — 190. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.