Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 322. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 416  —  322. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um kostnað við fiskveiðieftirlit hjá Fiskistofu.

Frá Jóni Gunnarssyni.



    Hver er kostnaður við eftirlit veiðieftirlitsmanna á vegum Fiskistofu? Óskað er eftir upplýsingum annars vegar um kostnað eftirlits um borð í fiskiskipum og hins vegar við eftirlit í landi. Enn fremur er óskað eftir sundurliðun á launakostnaði, ferðakostnaði, dagpeningum og öðrum útlögðum kostnaði.


Skriflegt svar óskast.