Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 300. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 649 — 300. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um kröfur fjárfesta á Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir fjárfestar munu geta gert kröfu á Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta vegna reiðufjár eða verðbréfa sem voru í vörslu, umsjón eða umsýslu banka og sparisjóða sem eru nú í þrotameðferð?
2. Hver gæti verið upphæð þeirra krafna?
3. Mun sjóðurinn geta staðið við greiðsluskyldu sína gagnvart fjárfestum, og þá hvernig?
4. Hver er réttarstaða fjárfesta borið saman við réttarstöðu innstæðueigenda, hér á landi og erlendis, gagnvart sjóðnum og íslenska ríkinu?
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki undir höndum upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Þannig hefur ráðuneytið hvorki upplýsingar um fjölda viðskiptamanna, eða fjárfesta, sem eiga viðskipti við einstök fjármálafyrirtæki, né hefur það undir höndum upplýsingar um hvort verðbréf í eigu einstakra viðskiptamanna og í vörslu einstakra fjármálafyrirtækja kynnu að hafa misfarist hjá aðilum.
Með tilvísun til þess sem að framan greinir, þ.e. að efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki bein afskipti af rekstri vörsluaðila verðbréfa og býr þar af leiðandi ekki yfir þeim upplýsingum sem um er spurt, sendi ráðuneytið Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta, TIF, bréf og óskaði eftir að sjóðurinn tæki saman svör við fyrirspurninni á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann kynni að búa yfir.
Svar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta er eftirfarandi:
1. og 2.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki gefið út álit þess efnis að greiðsluskylda hafi fallið á verðbréfadeild TIF vegna banka eða sparisjóða sem nú eru í þrotameðferð.
Sjóðnum hafa ekki borist kröfur á verðbréfadeild sjóðsins vegna þeirra banka og sparisjóða sem nú eru í þrotameðferð.
Með hliðsjón af ofanrituðu er það mat TIF að upphæð réttmætra krafna sé 0 kr.
3.
Samkvæmt lögum nr. 98/1999 skal heildareign verðbréfadeildar sjóðsins vera að lágmarki 100 millj. kr. Ekki er kveðið á um hámarksgreiðslu en dugi eignir verðbréfadeildar sjóðsins hins vegar ekki til að bæta tjón að fullu er gert ráð fyrir því við greiðslu að krafa hvers kröfuhafa sé bætt að fullu að fjárhæð 20.887 EUR en allt umfram þessa fjárhæð skuli bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hrökkva til.
Samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 2008 námu heildareignir verðbréfadeildar 204.051.374 kr.
Í frumvarpi um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta sem nú er í meðferð Alþingis (255. mál) er lagt til að heildareignir verðbréfadeildar skuli nema að lágmarki 200 millj. kr. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 20.000 EUR hámarksgreiðslu úr verðbréfadeild sjóðsins til hvers fjárfestis vegna tryggðra verðbréfa og reiðufjár. Sjóðurinn verður ekki krafinn um frekari greiðslu.
Einnig má vísa í umfjöllun um verðbréfadeild í skýrslu Talnakönnunar sem unnin var fyrir efnahags- og viðskiptaráðuneytið og er fylgiskjal með umræddu frumvarpi.
4.
Sjóðurinn hefur ekki undir höndum sérstakan samanburð eða úttekt á réttarstöðu eins og beðið er um.
Hvað varðar mismunandi réttarstöðu fjárfesta og innstæðueigenda hér á landi vísast til núgildandi löggjafar. Samkvæmt henni er í raun ekkert þak á greiðslur til einstakra kröfuhafa enda dugi eignir viðkomandi deildar sjóðsins fyrir kröfum. Dugi eignir viðkomandi deildar sjóðsins hins vegar ekki er gert ráð fyrir við greiðslu úr hvorri deild að krafa hvers kröfuhafa sé bætt að fullu að fjárhæð 20.887 (EUR) en allt umfram þessa fjárhæð hlutfallslega bætt jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til.
Í áðurnefndu frumvarpi (255. mál) sem nú er til meðferðar Alþingis er horfið frá lágmarksvernd. Þess í stað er gert ráð fyrir þaki á tryggingarvernd þannig að hámarksgreiðsla úr innstæðudeild geti numið allt að 50.000 EUR og hámarksgreiðsla úr verðbréfadeild 20.000 EUR.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 649 — 300. mál.
Svar