Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 326. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 791  —  326. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar um aðgerðir vegna meintra brota á gjaldeyrisreglum.

    Fyrirspurnin er svohljóðandi:
     1.      Til hvaða aðgerða hefur verið gripið og til hvaða aðgerða verður gripið af hálfu ráðuneyta, Seðlabanka, Fjármálaeftirlitis og annarra yfirvalda vegna þeirra meintu brota á gjaldeyrisreglum sem nú eru til skoðunar?
     2.      Hvað er unnt að gera til að koma í veg fyrir frekari brot á gjaldeyrisreglum?


    Í tilefni af þessari fyrirspurn óskaði ráðuneytið eftir umsögn Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Svar ráðuneytisins er byggt á svari Fjármálaeftirlitsins þar sem Seðlabanki Íslands hefur enn ekki svarað ráðuneytinu þrátt fyrir töluverða eftirleitan.
    Með lögum nr. 134/2008, um breytingu á lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var Fjármálaeftirlitinu fengið það hlutverk að rannsaka þau mál sem Seðlabanki Íslands tilkynnir til eftirlitsins, sbr. 17. gr. laganna, en Seðlabanki Íslands tilkynnir grun um brot gegn lögunum eða reglum settum á grundvelli þeirra, sbr. 15 gr. a sömu laga. Það er hlutverk Seðlabankans að fylgjast með að starfsemi aðila sé í samræmi við lög um gjaldeyrismál, sbr. 17 gr. laganna. Í samræmi við framangreint er það hlutverk Fjármálaeftirlitsins að rannsaka meint brot gegn lögum um gjaldeyrismál og reglum settum á grundvelli þeirra.
    Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um samvinnu vegna grunsemda um brot gegn lögum um gjaldeyrsimál, nr. 87/1992, og reglum settum á grundvelli þeirra. Með honum leitast stofnanirnar við að skýra verksvið sitt sem mest og koma til móts við hvor aðra varðandi aðstoð og nýtingu sérfræðiaðstoðar. Fjármálaeftirlitið er einnig í góðu samstarfi við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra vegna rannsókna á meintum brotum. Stofnuð hefur verið sérstök deild í Seðlabankanum til að fylgjast með reglum um gjaldeyrismál, svokallað gjaldeyriseftirlit, og ræður sú deild yfir þremur til fjórum starfsmönnum.
    Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um meint brot 28 lögaðila. Fjármálaeftirlitinu ber að kæra meiri háttar mál til lögreglu samkvæmt lögum um gjaldeyrismál en minni háttar málum lýkur stofnunin með álagningu stjórnvaldssekta eða gerð sátta.
    Reynslan hér og í öðrum löndum sýnir að mikilvægt er að reglur um gjaldeyrismál séu í stöðugri endurskoðun þegar jafnvíðtækar hömlur eru á slíkri starfsemi eins og raunin er hér á landi. Til að koma í veg fyrir brot á gjaldeyrisreglum er því mikilvægt að til staðar sé öflugt eftirlit og að reglur um gjaldeyrismál séu bæði sveigjanlegar og auðveldar í framkvæmd.