Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 493. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 859  —  493. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um markaðar tekjur og ríkistekjur.

Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.



     1.      Hvernig eru markaðar tekjur ríkisins skilgreindar frá öðrum tekjum ríkisins og hvert er hlutfall þeirra í heildarskatttekjum ríkisins?
     2.      Hverjar eru markaðar tekjur ríkisins og á grundvelli hvaða tilgreindu lagaákvæða eru þær innheimtar og ráðstafað?
     3.      Eru markaðar tekjur tæmandi taldar á séryfirliti nr. 3 í fjárlögum þessa árs?
     4.      Telur ráðherra það vera samrýmanlegt 40. gr. stjórnarskrárinnar að marka skatttekjur ríkisins í almennum lögum?


Skriflegt svar óskast.