Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 529. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1082 — 529. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um tóbaksnotkun.
1. Hvernig hefur þróast hér á landi síðustu sjö árin:
a. notkun munntóbaks,
b. notkun neftóbaks,
c. reykingar?
a. Notkun munntóbaks.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um þróun neyslu munntóbaks á umbeðnu tímabili. Kannanir sem gerðar voru fyrir Lýðheilsustöð um munntóbaksnotkun meðal ungs fólks á aldrinum 16–23 ára árin 2009 og 2010 staðfesta að neysla munntóbaks er umtalsverð hér á landi. Um 20% pilta nota tóbak í vörina, 15% daglega en 5% sjaldnar. Algengast er að íslenskt neftóbak sé tekið í vörina.
Niðurstöðurnar eru í samræmi við sífellt aukna neftóbaksframleiðslu ÁTVR en sala þess hefur aukist úr 11,7 tonnum árið 2003 í 25,5 tonn árið 2010, sbr. línuritið á myndinni hér fyrir neðan, byggt á sölutölum frá ÁTVR á neftóbaki árin 2003–2010.
Mynd 1. Neftóbakssala ÁTVR í tonnum tímabilið 2003–2010.
b. Notkun neftóbaks.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um neyslu tóbaks í nef hjá fullorðnu fólki á umræddu tímabili en rannsóknir hafa tekið mið af neyslu unglinga sem hefur á hinn bóginn verið könnuð árlega. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hlutfall nemenda í 10. bekk í Reykjavík og utan Reykjavíkur sem hafa notað neftóbak 20 sinnum eða oftar um ævina. Tölurnar eru ekki greindar eftir kyni en gera má ráð fyrir að neysla neftóbaks og munntóbaks sé nær eingöngu meðal pilta og megi því gera ráð fyrir helmingi hærra hlutfalli hjá piltum en mjög lágu hjá stúlkum.
Mynd 2. Hlutfall (%) nemenda í 10. bekk í Reykjavík og utan Reykjavíkur sem hafa notað neftóbak 20 sinnum eða oftar um ævina, 2001–2010. Heimild: Rannsóknir og greining, Háskólinn í Reykjavík. Ungt fólk 2010.
Vegna þess hversu algengt er að ungt fólk taki íslenskt neftóbak í vörina hefur Lýðheilsustöð óskað eftir að í könnunum verði framvegis spurt hvort fólk taki tóbak í vörina eða taki tóbak í nefið í stað þess að spyrja um notkun á neftóbaki og munntóbaki.
c. Reykingar.
Nýverið birti ÁTVR tölur sem sýna umtalsverðan samdrátt í innflutningi á reyktóbaki á síðasta ári. Þennan samdrátt má sjá í töflu 1, ásamt þeirri aukningu sem varð milli ára í innflutningi neftóbaks.
Tafla 1. Breytingar á sölu tóbaks hjá ÁTVR 2009–2010.
Nýjar tölur um reykingar á Íslandi árið 2010 sýna að tíðni daglegra reykinga fullorðinna heldur áfram að lækka. Hlutfall fullorðinna Íslendinga á aldrinum 15–89 ára sem reyktu daglega var 19,8% árið 2004, 19% árið 2007, 17,6% árið 2008, 15,4% árið 2009 og var komið niður í 14,2% árið 2010. Tölurnar eru fengnar úr árlegri könnun á umfangi reykinga á vegum Lýðheilsustöðvar.
Ef skoðað er hlutfall þeirra nemenda í 10. bekk grunnskóla sem reykja daglega (mynd 3) sést að stöðugt dregur reykingum hjá þessum aldurshópi. Þannig reyktu 12% nemenda daglega árið 2004 en 7% árið 2010.
Mynd 3. Hlutfall nemenda í 10. bekk grunnskóla sem reyktu daglega 1998–2010. Heimild: Rannsóknir og greining, Háskólinn í Reykjavík. Ungt fólk 2010.
2. Hvaða hópar nota helst þessi ávanabindandi nikótínefni, sundurgreint á sama hátt?
Eins og fram kemur í svari við lið a í spurningu 1 er neysla munntóbaks nær eingöngu bundin við unga karlmenn. Nýlega voru birtar niðurstöður úr rannsókn sem Rannsóknir og greining gerði fyrir Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR). Þar kemur fram hlutfall þeirra sem nota munntóbak er svipað hjá þeim hópi sem stundar íþróttir innan ÍBR og þeirra sem gera það ekki. Það kemur hins vegar vel í ljós að þeir sem stunda íþróttir reykja mun minna en þeir sem ekki stunda íþróttir.
Mynd 4. Heimild: Rannsóknir og greining. Gert fyrir Íþróttabandalag Reykjavíkur. Háskólinn í Reykjavík, 2010.
Eins og áður hefur verið greint frá liggja ekki fyrir upplýsingar um notkun tóbaks í nef hjá fullorðnu fólki og hafa rannsóknir einungis beinst að unglingum. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um það hvaða hópar nota helst neftóbak.
Ef litið er á niðurstöður kannana um tíðni reykinga á vegum Lýðheilsustöðvar á árunum 2009 og 2010 kemur fram að daglegar reykingar eru jafn algengar meðal beggja kynja og ekki sést munur á tíðni reykinga fólks á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Úr niðurstöðunum má hins vegar greina marktækan mun á reykingum eftir menntun og tekjum þátttakenda. Reykingar voru algengari á meðal fólks með litla menntun en þeirra sem höfðu meiri menntun og dró úr tíðni reykinga með vaxandi menntun svarenda. Einnig reyktu tekjulágir einstaklingar frekar en tekjuháir.
Þá benda rannsóknir til að frá því að grunnskóla lýkur og fram að tvítugu fari reykingar nemenda stigvaxandi. Undanfarin ár hefur þó verið um jákvæða þróun að ræða og sífellt dregið úr reykingum hjá þessum aldurshópi. Í nýlegri rannsókn á heilsu og líðan Íslendinga kemur fram að ef viðkomandi byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða um 73%, á því að hann reyki aldrei, miðað við reynslu 18–79 ára núlifandi Íslendinga.
3. Hverjar eru helstu aðgerðir stjórnvalda til að draga úr notkun þessara efna, sundurgreint á sama hátt?
Á undanförnum árum hefur markvisst átak stjórnvalda til að draga úr reykingum borið árangur. Sá árangur hefur ekki síst komið fram hjá yngstu aldursflokkunum. Í evrópskum samanburði hafa sex þættir tóbaksvarna verið árangursmældir hér á landi. Þessir þættir eru skilgreindir sem þeir mikilvægustu af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og Alþjóðabankanum. Mælingarnar hafa verið gerðar frá árinu 2004 og hefur Ísland alltaf verið í hópi efstu þjóða hvað árangur snertir. Hér á eftir er farið nokkrum orðum um þessa sex þætti.
a. Verð.
Enginn einn þáttur í tóbaksvörnum er eins áhrifamikill og verð. Með því að hafa verð á tóbaki eins hátt og kostur er er hægt að draga úr reykingum og annarri tóbaksnotkun, sérstaklega hjá ungu fólki sem er mjög viðkvæmt fyrir verði, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Í ályktun Læknafélags Íslands haustið 2008 kom fram að sígarettupakkinn þyrfti að kosta 3.000 kr. til að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af skaðsemi tóbaks fyrir íslenska ríkið. Evrópusambandið hefur hafið vinnu við að samhæfa og styrkja sambandslöndin í að móta sér stefnu í verðþróun á tóbaki og er Ísland þátttakandi í því verkefni („TobTaxy“).
b. Takmarkanir á tóbaksneyslu.
Reykingar hafa verið bannaðar í opinberum stofnunum og á vinnustöðum, en enn þá er undanþáguákvæði í lögunum sem heimilar að hafa aðstöðu fyrir þá sem reykja.
Velferðarráðherra hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um tóbaksvarnir þar sem lagt er til að bannað verði að flytja inn, framleiða og selja skrotóbak og allt bragð- og lyktblandað reyklaust tóbak.
c. Fé til tóbaksvarna.
Tóbaksvarnir eru viðvarandi verkefni. Þjóðir Evrópu líta til Íslands sem fyrirmyndar fyrir að hafa tryggt ákveðið hlutfall af tekjum af tóbakssölu til tóbaksvarna.
d. Auglýsingabann.
Ísland var fyrsta landið til að taka upp sýnileikabann á tóbaki. Á Íslandi er bann við umfjöllun um tóbak nema til að vara við skaðsemi þess.
e. Heilsuviðvaranir á tóbaksvörum.
Í velferðarráðuneytinu hafa verið unnin drög að reglugerð um mynd- og textaviðvaranir á tóbaki og mælingar á hámarki skaðlegra tóbaksefna. Drögin eru nú í tæknilegu tilkynningarferli innan Evrópusambandsins.
f. Aðstoð við að hætta að reykja og nota reyklaust tóbak.
Í evrópskum samanburði stendur Ísland ekki nægilega vel hvað varðar aðstoð við fólk sem vill hætta tóbaksnotkun. Ýmis úrræði eru til staðar en könnun Lýðheilsustöðvar sýnir að heilbrigðiskerfið þarf að sinna þessum þætti betur í starfi sínu.
Eitt af verkefnum Lýðheilsustöðvar hefur verið að auka þessa aðstoð. Sett var upp hjálparsíðan reyklaus.is í samvinnu við Reyksímann 8006030. Á síðunni er veittur stuðningur og aðstoð við að hætta að reykja. Þetta er ókeypis, gagnvirk, nettengd þjónusta.
Frjáls.is er vefsíða hugsuð fyrir heilbrigðisstarfsfólk og var sett á fót ekki alls fyrir löngu. Vefsíðan er á vegum Lýðheilsustöðvar, Landlæknisembættisins, Landspítala og Heilsugæslunnar. Á síðunni má finna fræðsluefni, sjálfspróf, efni fyrir skjólstæðinga, klínískar leiðbeiningar og æfingar. Frjáls.is gegnir veigamiklu hlutverki í tóbaksvörnum, því veigamikill hluti þeirra er að hvetja þá sem nota tóbak til að hætta því og aðstoða þá við það.
Gagnreyndar meðferðir við tóbaksfíkn eru til. Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð vinna nú að því að þær verði hluti annarra hefðbundinna meðferða sjúklinga til þess bæði að auka batalíkur og lífsgæði þeirra.
Á vegum Lýðheilsustöðvar eru unnin fjölmörg fleiri verkefni er varða tóbaksvarnir. Starfið er mjög fjölbreytt og hefur stofnunin til að mynda unnið að mörgum verkefnum sem miða að því að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji neyslu tóbaks og einnig almennt unnið að því að draga úr neyslu tóbaks og þeirri skaðsemi sem af henni hlýst. Hvað varðar nýleg verkefni Lýðheilsustöðvar, sem snerta ungt fólk, má nefna verkefnin Tóbakslausir framhaldsskólar og Tóbakslausir grunnskólar. Sum verkefna Lýðheilsustöðvar hafa verið í gangi um árabil og gengið ágætlega. Má þar nefna Evrópuverkefnið Reyklaus bekkur sem gengið hefur mjög vel, en allt að 70% 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins hafa verið þátttakendur síðastliðin 12 ár.
Þá beindist rannsóknin Börn og óbeinar reykingar að reykingum á heimilum þriggja ára barna á Íslandi.
Í byrjun árs 2007 var skipaður stýrihópur á vegum Lýðheilsustöðvar sem samanstóð m.a. af fulltrúa ÍSÍ, forvarnarfulltrúa framhaldsskóla, tannlækni og læknanema. Verkefnið var að fara yfir og greina neyslu munntóbaks á Íslandi auk þess að koma með tillögur að verkefnum til að bregðast við aukinni neyslu.
Haustið 2009 var hafist handa við að útvega ungu atvinnulausu fólki verkefni til atvinnusköpunar á sviði tóbaksvarna.
Þá er Lýðheilsustöð þátttakandi í Evrópskri samvinnu lýðheilsustöðva og félagssamtaka sem vinna að tóbaksvörnum í Evrópu (ENSP) og í samstarfi við aðra alþjóðlega aðila á borð við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og veitir upplýsingar um neyslu tóbaks fyrir Íslands hönd.
Frá stofnun Lýðheilsustöðvar hefur tóbaksvarnaráð verið starfandi sem ráðgefandi aðili og tók að hluta til við því hlutverki sem tóbaksvarnanefnd hafði áður. Tóbaksvarnaráð fundar reglulega með Lýðheilsustöð þar sem farið er yfir mál sem eru í brennidepli á hverjum tíma.
Dagur án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ákveður þema hvers árs. Auk þess að vera með sýnilegan áróður tengdum hverju þema hefur oft verið farið í ýmsar aðgerðir samhliða. Í samvinnu við Reyksímann hefur verið veitt viðurkenning á Degi án tóbaks þeim sem með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki hafa lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum á Íslandi eða tóbaksmeðferð. Þetta er hluti af evrópsku samstarfsverkefni reyksíma.
Árið 2004 staðfesti Ísland rammasamning Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir. Nú er til skoðunar í velferðarráðuneytinu hvort útbúin verði heildræn opinber stefna í tóbaksvörnum á Íslandi líkt og mörg önnur lönd, sem Ísland ber sig saman við, hafa gert.
4. Hve mikið fækkaði hjartaáföllum í kjölfar banns við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum?
Almennt hefur hjartaáföllum fækkað hér á landi undanfarna áratugi. Ætla má að þar skipti margir þættir máli svo sem bætt mataræði, bætt meðferð og greining á háum blóðþrýstingi, aukin hreyfing og ekki síst að dregið hefur úr tóbaksreykingum. Tóbaksreykingar eru einn af megináhættuþáttum kransæðasjúkdóma. Óbeinar reykingar valda einnig umtalsverðu heilsutjóni. Með banni við reykingum á opinberum stöðum hefur tekist að draga úr óbeinum reykingum.
Til er íslensk rannsókn sem unnin var m.a. af sérfræðingi í hjartasjúkdómum við hjartadeild Landspítalans og beindist að því að kanna samband óbeinna reykinga og kransæðasjúkdóma. Rannsóknin náði til fimm mánaða tímabils fyrir bannið við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum og fimm mánaða tímabils eftir bannið. Niðurstöðurnar sýna 21% fækkun milli þessara tímabila í kransæðaþræðingum vegna bráðs kransæðasjúkdóms meðal karla sem ekki reyktu. Enginn munur var meðal kvenna en þær voru tiltölulega fáar í rannsókninni. Niðurstöðurnar gefa til kynna að óbeinar reykingar hafi áhrif á tíðni bráðra kransæðasjúkdóma og alvarleika þeirra. Ráðgerð er útvíkkun á rannsóknartímabilinu til að auka áreiðanleika niðurstaðanna. Þess má geta að niðurstöður þessarar íslensku rannsóknar eru í góðu samræmi við niðurstöður fjölmargra erlendra rannsókna af þessu tagi.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1082 — 529. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.