Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 634. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1110  —  634. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um kröfur um eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hversu mörgum fjármálafyrirtækjum hefur Fjármálaeftirlitið veitt undanþágu frá kröfum um eiginfjárhlutfall frá árinu 2007?
     2.      Hversu lengi hafa þau fjármálafyrirtæki starfað á undanþágu frá eftirlitinu sem hafa farið í þrot eða Fjármálaeftirlitið tekið yfir á sömu árum?


Skriflegt svar óskast.