Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 566. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1342  —  566. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um innstæður í lánastofnunum 30. september 2008.

    Svör við 1.–3. lið fyrirspurnarinnar eru fengin frá Fjármálaeftirlitinu og svar við 4.–6. lið frá Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta.

     1.      Hversu háar voru innstæður í íslenskum útibúum viðskiptabankanna þriggja 30. september 2008?
    2.353.651.474 þús. kr.

     2.      Hversu háar voru innstæður í sparisjóðunum á Íslandi 30. september 2008?
    298.255.588 þús. kr.

     3.      Hversu háar voru innstæður í erlendum útibúum viðskiptabankanna þriggja 30. september 2008?
    1.584.076.354 þús. kr.

     4.      Hversu há fjárhæð var í Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta 30. september 2008?
     5.      Hversu há var sú upphæð innstæðna sem Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta bar að bæta 30. september 2008 samkvæmt lögum? Hér er átt við heildarinnstæðu einstaklinga og lögaðila að fjárhæð 20.887 evrur (3.047.000 kr.).
     6.      Hversu há var sú upphæð innstæðna sem stjórnvöld ákváðu að tryggja umfram lögbundna tryggingu 30. september 2008?

    Skilningur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta er að spurt sé um hver ábyrgð tryggingarsjóðsins hefði verið samkvæmt gildandi lögum hefðu innstæður þær sem fluttar voru í október 2008 frá Landsbanka Íslands hf. á Íslandi, Glitni banka hf. á Íslandi og Kaupþingi hf. á Íslandi til NBI hf., Nýja Glitnis hf., nú Íslandsbanka hf., og Nýja Kaupþings, nú Arion banka hf., ekki verið fluttar.
    Samkvæmt gildandi lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, er ekki gert ráð fyrir þaki á tryggingafjárhæð vegna innstæðna einstakra viðskiptamanna aðildarfélaga. Þannig eru 20.887 evrur á hvern innstæðueiganda ekki hámark.
    Samkvæmt upplýsingum sem tryggingarsjóðurinn aflaði í tengslum við inngreiðslur vegna ársins 2008 námu innstæður í Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Kaupþingi banka hf. samtals 1.289.601 millj. kr. í október 2008 og er það sú fjárhæð sem sjóðnum hefði samkvæmt gildandi lögum borið að bæta.
    Rétt er þó að vekja athygli á því að undanskilin tryggingarvernd eru samkvæmt 6. mgr. 9. gr. framannefndra laga:
        „… innstæður, verðbréf og reiðufé í eigu aðildarfyrirtækja, svo og móður- og dótturfyrirtækja þeirra, fyrir þeirra eigin reikning og innstæður, verðbréf og reiðufé sem tengist málum þar sem sakfellt hefur verið fyrir peningaþvætti. Þó skulu innstæður sem aðildarfyrirtæki eða móður- og dótturfyrirtæki þeirra hafa í vörslu sinni fyrir hönd viðskiptavina ekki undanskildar tryggingu skv. 1. mgr. Þá skulu innstæður verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða, fagfjárfestasjóða, lífeyrissjóða eða annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu ekki undanskildar tryggingu skv. 1. mgr., jafnvel þótt vörsluaðili eða rekstrarfélag slíkra sjóða sé aðildarfyrirtæki eða móður- eða dótturfyrirtæki aðildarfyrirtækja.“
    Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta hefur hins vegar ekki upplýsingar um hversu há fjárhæð hefði verið undanskilin samkvæmt þessari grein. Þá hefur tryggingarsjóðurinn ekki heldur tiltækar upplýsingar um það hve há skuldbinding sjóðsins hefði verið ef miðað væri við að 20.887 evrur væri hámarksskuldbinding skv. lögum nr. 98/1999. Tryggingarsjóðurinn hefur því ekki upplýsingar um hvernig framangreind heildarfjárhæð sundurliðast undir og yfir 20.877 evrur.