Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 764. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1368  —  764. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um friðlýst svæði og virkjunarframkvæmdir.

     1.      Hvaða landsvæði njóta friðlýsingar í samræmi við 50. gr. laga um náttúruvernd?

    Í 50. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, er upptalning á flokkum friðlýstra náttúruminja en þeir eru, þjóðgarðar, sbr. 51. gr., friðlönd, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 53. gr., náttúruvætti á landi, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 53. gr., og í hafi, sbr. 1. mgr. 54. gr., friðlýstar lífverur, búsvæði, vistgerðir og vistkerfi, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 53. gr. og 1. mgr. 54. gr. og fólkvangar, sbr. 55. gr. Auk þessa njóta nokkur svæði verndar í samræmi við sérlög þar að lútandi, Þingvellir, Mývatn – Laxá, Breiðafjörður og Vatnajökulsþjóðgarður.
    Svæði sem njóta friðlýsingar samkvæmt lögum um náttúruvernd eru sem hér segir, einn þjóðgarður, 40 friðlönd, 36 náttúruvætti, þrjú búsvæði og 19 fólkvangar. Auk þess er 31 tegund plantna friðlýst og kúluskítur, vaxtarform grænþörungsins vatnaskúfs.

Friðlýst svæði samkvæmt lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999.

Svæði á Suðvesturlandi.

              Friðland: Ástjörn, Bakkatjörn, Eldey, Gálgahraun, Grótta, Kasthúsatjörn, Varmárósar, Vífilsstaðavatn.
              Náttúruvætti: Borgir, Eldborg í Bláfjöllum, Eldborg undir Geitahlíð, Fossvogsbakkar, Hamarinn, Háubakkar v/Elliðavog, Kaldárhraun og Gjárnar, Laugarás, Litluborgir, Steðji á Skeiðhól, Tröllabörn, Valhúsahæð,Víghólar.
              Tegundir, búsvæði og vistgerðir: Skerjafjörður – Garðabær.
              Fólkvangur: Ástjörn – Ásfjall, Bláfjöll, Fjaran v/Kasthúsatjörn, Hleinar, Hlið, Hvaleyrarlón og Hvaleyrarhöfði, Rauðhólar, Reykjanesfólkvangur, Stekkjarhraun.

Svæði á Vesturlandi.
              Þjóðgarður: Snæfellsjökull.
              Friðland: Blautós – Innstavogsnes, Búðahraun, Geitland, Grunnafjörður, Húsafellsskógur, Melrakkaey, Ströndin við Stapa og Hellna, Vatnshornsskógur.
              Náttúruvætti: Bárðarlaug, Eldborg í Hnappadal, Grábrókargígar, Hraunfossar – Barnafoss.
              Tegundir, búsvæði og vistgerðir: Hvanneyri – Andakíll.
              Fólkvangur: Einkunnir.

Svæði á Vestfjörðum.
              Friðland: Flatey, Hornstrandir, Hrísey, Vatnsfjörður.
              Náttúruvætti: Dynjandi, Surtarbrandsgil.

Svæði á Norðurlandi vestra.
              Friðland: Guðlaugstungur, Miklavatn.
              Náttúruvætti: Hveravellir á Kili, Kattarauga.
              Fólkvangur: Hrútey í Blöndu, Spákonufellshöfði.

Svæði á Norðurlandi eystra.
              Friðland: Friðland í Svarfaðardal, Herðubreiðarfriðland, Vestmannsvatn.
              Náttúruvætti: Arnarnesstrýtur, Askja í Dyngjufjöllum – Vatnajökulsþjóðgarði, Dettifoss, Selfoss og Hafragilsfoss, Hverastrýtur, Skútustaðagígar.
              Fólkvangur: Böggvisstaðafjall, Hraun í Öxnadal, Krossanesborgir.

Svæði á Austurlandi.
              Friðland: Esjufjöll í Vatnajökulsþjóðgarði, Hvannalindir, Ingólfshöfði, Kringilsárrani, Lónsöræfi, Salthöfði – Salthöfðamýrar, Skrúður.
              Náttúruvætti: Díma í Lóni, Háalda, Helgustaðanáma, Teigarhorn.
              Tegundir, búsvæði og vistgerðir: Hálsar.
              Fólkvangur: Álfaborg, Fólkvangur Neskaupstaðar, Hólmanes, Ósland.

Svæði á Suðurlandi.
              Friðland: Dyrhólaey, Friðland að Fjallabaki, Gullfoss, Herdísarvík, Oddaflóð, Pollengi – Tunguey, Surtsey, Þjórsárver.
              Náttúruvætti: Álftaversgígar, Árnahellir, Dverghamrar, Jörundur, Kirkjugólf, Skógafoss.
              Fólkvangur: Bláfjöll.

     2.      Hver þessara landsvæða eru friðlýst með þeim skilmálum að virkjunarframkvæmdir séu heimilaðar þar?
    Í 60. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, er tekið fram hvaða þætti skal kveðið á um í friðlýsingu en það er m.a. meginatriði verndunar náttúruminja, hversu víðtæk friðunin er, að hve miklu leyti framkvæmdir eru takmarkaðar, umferð og umferðarrétt almennings og notkun veiðiréttar. Þá er í greininni fjallað um nauðsynlegar framkvæmdir, svo sem göngustíga, til að almenningur fái notið svæðisins og ef fyrirhugaðar framkvæmdir raski svo náttúrulegu umhverfi að hætta sé á að ákveðnar lífverur, búsvæði þeirra og vistkerfi eyðist eða verði fyrir verulegum skaða getur umhverfisráðherra látið friðlýsingu taka til banns við slíkum framkvæmdum að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
    Í friðlýsingarskilmálum er hin almenna regla er varðar mannvirkjagerð að mannvirkjagerð og jarðrask eru óheimil, þó er jafnan heimild til þess að Umhverfisstofnun eða umhverfisráðherra geti veitt undanþágu frá friðlýsingarskilmálum. Í friðlýsingarskilmálum tveggja svæða, þ.e. Þjórsárvera og Reykjanesfólkvangs, eru undanþágur frá meginreglunni. Í friðlýsingarskilmálum fyrir friðlandið í Þjórsárverum segir í 2. tölul.: „Mannvirkjagerð, jarðrask og aðrar breytingar á landi, svo og breytingar á rennsli vatna og vatnsborðshæð, eru óheimilar nema til komi leyfi [Umhverfisstofnunar].“ Jafnframt kemur fram að þrátt fyrir framangreint ákvæði „er Landsvirkjun heimilt að veita til Þórisvatns úr upptakakvíslum Þjórsár á Sprengisandi og austurþverám hennar, enda verði kappkostað að halda umhverfisáhrifum mannvirkja í lágmarki. Ennfremur mun [Umhverfisstofnun] fyrir sitt leyti veita Landsvirkjun undanþágu frá friðlýsingu þessari til að gera uppistöðulón með stíflu við Norðlingaöldu í allt að 581 m y.s., enda sýni rannsóknir að slík lónsmyndun sé framkvæmanleg án þess að náttúruverndargildi Þjórsárvera rýrni óhæfilega að mati [Umhverfisstofnunar]. Rannsóknir þessar skulu gerðar á vegum ráðgjafanefndar samkvæmt 1. tl. Skal nefndin ennfremur fjalla um endanleg mörk umræddra mannvirkja, ráðstafanir til að draga úr óæskilegum áhrifum þeirra á vistkerfi Þjórsárvera og hugsanlega endurskoðun á vatnsborðshæð miðlunarlónsins. Nefndin skal og gera tillögu til stjórnar Landsvirkjunar og [Umhverfisstofnunar] um nauðsynlegar rannsóknir í þessu sambandi og skal Landsvirkjun kosta þær að svo miklu leyti sem hlutaðeigandi rannsóknaráætlun hlýtur samþykki stjórnar Landsvirkjunar og [Umhverfisstofnunar].“ (Auglýsing um friðland í Þjórsárverum, nr. 507/1987.)
    Í friðlýsingarskilmálum fyrir Reykjanesfólkvang segir í 2. tölul.: „Allt jarðrask er bannað innan fólkvangsins nema leyfi [Umhverfisstofnunar] komi til.“ Jafnframt kemur eftirfarandi fram í skilmálunum: „Undanskilin er hagnýting jarðhita, t.d. í Krísuvík, og mannvirkjagerð í því sambandi, sbr. þó 29. gr. laga nr. 47/1971.“ (Auglýsing um Reykjanesfólkvang nr. 520/1975.)