Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 15. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 15 — 15. mál.
til fjármálaráðherra um kostnað við ríkisábyrgð og áfallnar skuldbindingar.
1. Hver var fjárhæð láns frá breskum yfirvöldum í pundum sem ráðherra veitti ríkisábyrgð á með undirskrift sinni 5. júní 2009?
2. Hver var fjárhæð láns frá hollenskum yfirvöldum í evrum sem ráðherra veitti ríkisábyrgð á með undirskrift sinni 5. júní 2009?
3. Hversu há var þessi ríkisábyrgð í krónum á gengi undirskriftardags?
4. Hvað hefði þessi ríkisábyrgð kostað ríkissjóð í áfallna vexti árið 2009 á árslokagengi þess árs?
5. Hvað hefði þessi ríkisábyrgð kostað ríkissjóð í áfallna vexti árið 2010 á gengi 1. september 2010?
6. Hvað hefði ríkisábyrgð samkvæmt lögum nr. 96/2009, með áorðnum breytingum samkvæmt lögum nr. 1/2010, kostað ríkissjóð í áfallna vexti hvort áranna 2009 og 2010 með sama hætti?
7. Hvers vegna var ekki minnst á ríkisábyrgð og áfallnar skuldbindingar vegna samninga og viðaukasamninga við bresk og hollensk yfirvöld, sem ráðherra hafði undirritað 19. október 2009, í fjárlögum fyrir árið 2010 og í fjáraukalögum fyrir árið 2009 sem samþykkt voru í árslok 2009?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 15 — 15. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um kostnað við ríkisábyrgð og áfallnar skuldbindingar.
Frá Pétri H. Blöndal.