Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 53. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 155  —  53. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um samkomulag við Seðlabankann í Lúxemborg um kaup á útistandandi skuldabréfum Avens B.V. sem voru í eigu Landsbankans í Lúxemborg.

     1.      Hve hátt var hlutfall reiðufjár í kaupum á útistandandi skuldabréfum Avens B.V. sem voru í eigu Landsbankans í Lúxemborg og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi?
    Með kaupunum í maí sl. á öllum útistandandi skuldabréfum félagsins Avens B.V. tók Seðlabankinn, f.h. ríkissjóðs, yfir stjórn félagsins og leysti það upp. Eignir félagsins; íbúðabréf, ríkisbréf og reiðufé, samtals að andvirði 128,5 milljarðar kr. runnu þá til ríkissjóðs. Andvirði íbúðabréfanna og ríkisbréfanna nam 85 milljörðum kr. og reiðufjár 43,5 milljörðum kr. Hlutfall reiðufjár nam því tæpum 34%.
    Kaupverð skuldabréfa Avens B.V. var 74,6 milljarðar kr. og skiptist þannig:
          EMTN skuldabréf útgefin af íslenska ríkinu að höfuðstólsfjárhæð 401.500.000 evra.
          Reiðufé:
                  .      35.000.000 evrur.
                  .      5.000.000.000 kr.

     2.      Hve hátt var hlutfall íbúðabréfa í þessum kaupum og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi?
    Meðal eigna Avens B.V. voru skuldabréf gefin út af Íbúðalánasjóði fyrir um 76,1 milljarða kr. á markaðsverði og námu um 59% af viðskiptunum:

Tegund Lokagjalddagi Nafnverðsfjárhæð
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. september 2014 5.000.000.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. febrúar 2024 9.000.000.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. apríl 2034 23.000.000.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. júní 2044 20.000.000.000


     3.      Hve hátt var hlutfall ríkisbréfa í þessum kaupum og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi?

    Meðal eigna Avens B.V. voru skuldabréf gefin út af ríkissjóði fyrir um 8,9 milljarða kr. á markaðsverði og námu um 7% af viðskiptunum:

Tegund Gjalddagi Nafnverðsfjárhæð
Ríkisbréf 17. maí 2013 4.000.000.000
Ríkisbréf 26. feb 2019 4.000.000.000
     4.      Hversu hátt hlutfall íbúðabréfanna voru bréf útgefin af Íbúðalánasjóði og hver var upphæðin í íslenskum krónum?
    Sjá svar við 2. tölulið fyrirspurnarinnar.

     5.      Hversu hátt hlutfall íbúðabréfanna var tengt við gengisvísitölu, sem nú hefur verið dæmd ólögleg, og hver var upphæðin í íslenskum krónum?

    Engar af eignum Avens B.V. eru með tengingu við gengisvísitölu.

     6.      Á hvaða verði, í íslenskum krónum á kaupdegi, keyptu lífeyrissjóðirnir þessi bréf af Seðlabanka Íslands?

    Til viðbótar íbúðabréfum sem ríkissjóður eignaðist við kaup á skuldabréfum Avens B.V. keypti ríkissjóður af Eignarhaldsfélagi Seðlabankans íbúðabréf að markaðsvirði um 45 milljarða kr., sem fjármagnað var að mestu með reiðufé sem fékkst við kaup á skuldabréfum Avens:

Tegund Lokagjalddagi Nafnverðsfjárhæð
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. september 2014 2.215.500.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. febrúar 2024 5.431.000.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. apríl 2034 11.273.625.000
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs 15. júní 2044 14.273.625.000

    Seðlabankinn, fyrir hönd ríkissjóðs, seldi 30. maí 26 lífeyrissjóðum öll íbúðabréf sem ríkissjóður hafði eignast vegna þessara viðskipta, að virði um 121 milljarð kr., fyrir evrur að jafnvirði um 87,6 milljarða kr. miðað við skráð kaupgengi 28. maí 2010. Bréfin voru seld á fastri 7,2% ávöxtunarkröfu.

     7.      Hefur Seðlabanki Íslands, f.h. ríkissjóðs, gert kröfu í þrotabú Landsbankans til að fá að fullu bætta þá upphæð sem skuldabréfið sem greitt var með fyrir Avens B.V. hljóðar upp á, eða er litið svo á að um tapað fé sé að ræða fyrir ríkissjóð að undanskilinni sölu íbúðabréfa til lífeyrissjóðanna?

    Viðskiptin fóru fram á kjörum sem eru mjög hagstæð fyrir ríkissjóð. Með samkomulaginu í Lúxemborg náðist að lækka skuldastöðu þjóðarbúsins um meira en 3,5%, erlendar krónueignir lækkuðu um fjórðung og grunnur var settur fyrir viðskiptin við lífeyrissjóðina sem jók gjaldeyrisforðann um 17%. Ekkert fé tapaðist vegna þessara viðskipta.