Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 825. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1676  —  825. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um Lissabon-sáttmálann.

     1.      Er þýðingu á sáttmálum Evrópusambandsins lokið, sbr. svar ráðherra á þskj. 134 þar sem fram kom að þýðing væri hafin á sáttmálum Evrópusambandsins í heild sinni eins og þeir standa eftir gildistöku Lissabon-sáttmálans og áætlað væri að þýðingu þeirra yrði lokið í lok febrúar 2011?
     2.      Ef ekki, hvenær er þá áætlað að þýðingarvinnunni ljúki?
    Þýðingu á sáttmálum Evrópusambandsins, en svo nefnast einu nafni stofnsáttmáli Evrópusambandsins, einnig nefndur Rómarsáttmálinn (1957), og þær breytingar sem gerðar hafa verið á honum með samrunasáttmálanum (1967, sem sameinaði Kola- og stálbandalagið, Kjarnorkubandalagið og Efnahagsbandalag í Evrópubandalagið), Evrópsku einingarlögunum (1987), Maastricht-sáttmálanum (1993), Amsterdam-sáttmálanum (1999), Nice-sáttmálanum (2003) og Lissabon-sáttmálanum (2009), er lokið og má finna hana á eftirfarandi vefslóðum:
          www.utanrikisraduneyti.is/utgefid-efni/
          esb.utn.is/hlidarval/skjol-og-tenglar/skjol-fra-esb/

     3.      Hefur verið tekin ákvörðun um hvort sáttmálinn verði kynntur sérstaklega að þýðingu lokinni, t.d. með bæklingi sem dreift verði til allra heimila landsins?

    Engin ákvörðun hefur verið tekin að svo stöddu um sérstaka kynningu sáttmála ESB.