Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 803. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1682  —  803. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um utanlandsferðir starfsmanna og embættismanna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvað fóru starfsmenn ráðuneytisins og embættismenn í undirstofnunum þess oft til útlanda í embættiserindum á árunum 2007–2010? Til hvaða lands var farið og í hvaða erindum?
     2.      Hver er heildarkostnaður ferðanna með dagpeningum, sundurliðað eftir árum, ráðuneyti og undirstofnunum?


    Svör við fyrirspurninni koma fram í eftirfarandi töflum.

Fjöldi ferða starfsmanna og embættismanna til útlanda.

2007 2008 2009 2010
Starfsfólk ráðuneytisins 145 140 97 95
Fjársýsla ríkisins 3 2 0 0
Ríkisskattstjóri 1 2 2 4
Skattrannsóknarstjóri ríkisins 0 0 0 1
Yfirskattanefnd 0 1 1 0
Tollstjóri 8 6 6 5
Ríkiskaup 6 6 2 4
Framkvæmdasýsla ríkisins 7 9 6 5
Fasteignir ríkissjóðs 3 1 0 0
Bankasýsla ríkisins 0 0 0 2
ÁTVR 13 15 12 14


Áfangastaðir og erindi ferða.


Land, staðir Erindi
Frakkland, París Ráðherrafundir, OECD-nefndir (Financial Markets, Taxes, Budget, EPC, PUMA, Global Forum, Accural Accounting, PEMWP, CTPA, EDRC), stjórnarnefnd PGC, STEP-fundur, yfirheyrsla vegna efnahagsskýrslu OECD, Global Forum on Tranfer Pricing, STEPPIN-fundur um staðla og nýsköpunarútboð, fundir í samstarfi með áfengiseinkasölum á Norðurlöndum.
Bretland, London, Manchester Semínar um einkaframkvæmd, fundir með bönkum og fjárfestum vegna fjármögnunar, Euronomy-ráðstefna, fundur um opinber innkaup í systurstofnun Ríkiskaupa í Bretlandi, Euro Facility Management Benchmark, ráðstefna um upplýsingalíkön, Build Smart ráðstefna og BIM-fundir um opinberar framkæmdir, fundur um tóbaksmál British American Tobacco, námsleyfi starfsmanns ráðuneytisins, CEEP-fundur. Fundir með breskum og hollenskum stjórnvöldum og samninganefndum þeirra um Icesave, uppgjör milli gömlu og nýju bankanna, málefni íslensku sparisjóðanna.
Danmörk, Kaupmannahöfn o.fl. staðir Ríkisbókarafundur, norræna skattrannsóknarráðið, fundir með dönsku fjársýslunni, norræn embættismannanefnd um ríkisaðstoð, endurskoðun á norrænum tvísköttunarsamningum, Budget Expert Group um fjármögnun á alþjóðaverkefni, EK Finans, Miljö-ökonomi group, verkefnahópur um eftirlit og bótagreiðslur, norrænir skattahagfræðingar, starfshópur um norræn starfsmannaskipti, Löne- og personalutskottet, IMF-fundur, fundur um verkefnatilhögun ríkis og sveitarfélaga, fundur norrænu hagfræðinefndarinnar, endurskoðun á samningi um aðstoð í skattamálum, Nordic Network, Nordic Steering Group, MR Finans, undirbúningur ECOFIN-fundar í Belgíu, NFF-samstarf um opinbera stjórnsýslu, Gatetrade, samráðsfundur um opinber innkaup, ráðstefna norrænna skattyfirvalda um skattaflótta og skattaskjól, ársfundur Atlantshafsráðsins, heimsókn Bankasýslu ríkisins til Finansial Stabilitet, norræn félagaréttarráðstefna um stjórnarhætti, fjárfestavernd og starfskjarastefnur, heimsókn Framkvæmdasýslu ríkisins til að skoða fangelsisbyggingar, fundur vegna Byggeweb, verkefnavefjarins, undirbúningsfundur vegna EXPÓ, Bips-ráðstefna um opinberar framkvæmdir, NIKS-ráðstefna um opinberar farmkvæmdir, NAD-ráðstefna um áfengismál. Fundir um málefni Icesave og efnahagsástandið á Íslandi.
Belgía, Brussel Fundir með ESA um ýmis mál, svo sem ríkisstyrki og opinber innkaup, fundir í vinnuhópum Evrópusambandsins og fundir í vinnuhópum EFTA á málefnasviði ráðuneytisins, ráðherrafundir með EFTA og ESB (Ecofin), ferðir í tengslum við flutning fulltrúa fjármálaráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel, ýmsar ráðstefnur um málefni fjármálaráðuneytisins, tollamál ESB og Íslands, stjórnarfundir í Þróunarsjóði EFTA, Financial Reporting on Changing World, COCE, STEPPA-fundur um staðla og nýsköpunarútboð, ársfundur IOTA, aðalfundur og vinnufundir á vegum WCO, ráðstefna um öryggismál á vegum WCO, fundur um „maritime cargo containers prior to loading“, Borealis samstarfsfundur um áfengismál. Fundir með ýmsum aðilum um málefni Icesave, uppgjörs milli gömlu og nýju bankanna og íslensku sparisjóðanna.
Svíþjóð, Stokkhólmur, Gautaborg og Malmö Fundur fjármálaráðherra Norðurlandanna, EK Finans, Löne- og personalutskottet, RAKO, eftirlit með bótagreiðslum, Nordisk Network, upplýsingaskiptasamningar, Budgetexpertgruppen, Nordic State Meeting, norræna skattrannsóknarráðið, norræn starfsmannaskipti, náms- og kynnisferð með heilbrigðisráðherra, Nordic Steering Group, NAK-fundur um launa- og starfsmannamál, NSO-ráðstefna, ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu, ársfundur Norræna fjárfestingarbankans NIB, fundur Norðurlandaráðs, Löne- og personalutskottet, ráðstefna um kynjaða hagstjórn, fundur vegna lánamála, STORK, norrænn starfshópur um opinber innkaup, Nordisk kontakt for statsbygninger, ársfundur ríkisskattstjóra Norðurlanda, ársfundur ríkisskattstjóra Eystrasaltsríkjanna, ársfundur IOTA, heimsókn Bankasýslu ríkisins til Riksgalden, ferð á ráðstefnu um einkaframkvæmdir og fundur m/C.F. Möller, NKS-fundur um opinberar framkvæmdir, fundur í BIM undirhópi á vegum NKS í Stokkhólmi og ráðstefnan „buildingSMART“, fundur um Alkohol toppmöte og CRS-fundir, heimsráðstefna áfengiseinkasala, fundir í Systembolaget um áfengismál, fundir með Philip Morris um tóbaksmál, norræn vímuefnaráðstefna, ráðstefna með áfengiseinkasölum á Norðurlöndum, fundur um tóbaksmál hjá Swedish Match.
Lúxemborg Heimsókn ráðherra til íslenskra fjármálafyrirtækja og ráðherrafundur í Brussel í sömu ferð.
Finnland, Helsinki Fundur norrænna fjármálaráðherra, fjárlagasérfræðingahópur norrænu ráðherranefndarinnar, fundir hagfræðinga norrænna fjármálaráðuneyta, Fundir Nordic steering group, EK Finans norrænu embættismannanefndar, Lop, Löne- og personaluttskottet, Miljö-ökonomi group, norræna skattrannsóknarráðið, fundur um málefni Eystrarsaltsríkjanna, MR Finans, norræn embættismannaskipti, fundur norrænna lagabókvarða, fundir í Norræna fjárfestingarsjóðnum, NAK-nordisk arbetsgivar, NIPPA-fundur um opinber innkaup, ráðstefna um opinber innkaup, ársfundur ríkisskattstjóra Norðurlandanna, fundir embættismanna um tollamál, fundur um opinberar byggingar RISK, TWN-samtökin um opinberar framkvæmdir, fundur BAT-áfengismál, fundir hjá Alko í Helsinki, fundir með Product Control Agency, CSR-samstarfsfundir um áfengismál.
Færeyjar, Þórshöfn Fríverslunarsamningur Íslands og Færeyja, norræn starfsmannaskipti, Norðurlandasamningur um aðstoð í skattamálum, COCE, fundur með atvinnumálaráðherra Færeyja um FARICE, fundir hjá Rúsdrekkasalan.
Sviss, Genf, Zurich WTO-fundur um endurnýjun alþjóðlegs samnings um opinber innkaup, EFTA Economic Committee, COCE, Euro Facility Management fundur, alþjóðleg ráðstefna um varnir gegn vörufölsun.
Holland, Mastricht, Haag Námskeið hjá EIPA, European Institution of Public Administration, European Group on Public Administration, ráðstefna, viðræður við hollensk, bresk og þýsk stjórnvöld um innstæðutryggingar, fundur með fjármálaráðherra Hollands og bankamálaráðherra Bretlands, fundur ESB um opinber innkaup. Fundir með breskum og hollenskum stjórnvöldum og samninganefndum þeirra um Icesave.
Indland Opinber heimsókn fjármálaráðherra.
Írland Ferð í tengslum við opinbera heimsókn forsætisráðherra, fundur í tengslum við sóknaráætlun 2020, fundur WCO.
Kanada COCE-fundur um gildistöku fríverslunarsamninga, World Library and Information Congress, fundir með framleiðendum áfengis og tóbaks.
Kína Fríverslunarviðræður, fundur um hugsanleg kaup á gegnumlýsingarbifreið fyrir tollstjóraembættið, námsferð forstjóra ÁTVR.
Portúgal, Lissabon Ráðherrafundur og ráðstefna um upplýsingatæknimál.
Noregur, Osló og Bergen Fundur fjármálaráðherra Norðurlanda, EK Finans, Eystrarsaltsráðstefna, Nordisk skatteforskiningsråd, COCE-fundur um fríverslunarsamninga, Nordic redovisningforum, norræn lífeyrisráðstefna, fundur fjármálaráðherra í Norræna fjárfestingarbankanum, fundur norrænna fjárlagastjóra, MR Finans fundur, fundur um framleiðni í ríkisrekstri, Steering Group, efnahagsnefnd EFTA, fundur um opinber innkaup, norræn starfsmannaskipti, Löne- og personalutskottet, fundur vegna innleiðingar tilskipunar Evrópusambandsins um opinberar framkvæmdir, norrænn fundur um ríkisstyrki, fundur um skattlagningu kolvetnisvinnslu, ráðstefa um greiðslumál ríkisstofnana, norrænn vinnuhópur um opinber innkaup, Nordic Facility Management Benchmarking fundur, Skatteaten-skattafundur, norræna tollasamvinnuráðið, þátttaka í afmæli norskra tollyfirvalda, fundur í WCO, fundur með C.F. Möller vegna hönnunarútboðs, ársfundur forstjóra systurstofnana FSR á Norðurlöndum og BIPS-ráðstefna, BIM-ráðstefna um opinberar framkvæmdir, fundir hjá Swedish Match og Harboes um áfengismál, fundir hjá Vinmonopolet, Borealis fundur um áfengismál, CSR-fundur. Fundir um málefni Icesave.
Nýja Sjáland Námsleyfi starfsmanns ráðuneytisins.
Svartfjallaland Í tengslum við opinbera heimsókn forsætisráðherra.
Eistland, Tallinn Ráðstefna um stjórnendaþjálfun og fundur samtaka opinberra starfsmanna Norðurlanda.
Bandaríkin, Washington, New York, Orlando o.fl. borgir Aðalfundur og vorfundur IMF og World Bank, tvísköttunarsamningur við Bandaríkin, Oracle-ráðstefna, fundur vegna framboðs í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, ráðstefna um sjúkrahúsbyggingar, ráðstefna um tölvumál, fundir hjá National Alcohol Beverage Control Association NABCA, heimsráðstefna áfengissala í Seattle, fundir um áfengismál í Vancouver og San Francisco.
Búlgaría Tvísköttunarviðræður.
Grænland Nordic Steering Group.
Þýskaland Fjármálaráðherrafundur Eystrarsaltsríkjanna, samningafundur um loftslagsmál, ferð fjármálaráðherra vegna 50 ára afmælis IPZV, ferð á árlegan fund í eigendahópi norrænu sendiráðanna, ársfundur í samráðshópi Norðurlandanna um fasteignarekstur sendiráðanna, heimsókn til Lingenfelder í Grosskarlbach.
Spánn, Madrid STORK-verkefni um rafræn skilríki, vínferð forstjóra ÁTVR til Rioja.
Mexíkó Samningafundur um loftslagsmál.
Rússland, Moskva Sendinefnd vegna lánafyrirgreiðslu.
Slóvenía Ráðstefna um rafræna stjórnsýslu.
Albanía Tvísköttunarviðræður.
Grikkland, Aþena STORK-verkefni um rafræn skilríki, fundur fjárlagastjóra Norðurlanda og fjárlagastjóra OECD.
Tæland, Bangkok Samningafundur um loftslagsmál.
Litháen Löne- og peronalutskottet.
Lettland Fundur fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Katar Tvísköttunarviðræður.
Tyrkland Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins IMF.
Ítalía, Feneyjar o.fl. staðir Ráðherraráðstefna um opinbera stjórnsýslu, ársfundur um opinberar framkvæmdir alþjóðlegu verkefnastjórnunarsamtakanna, vínsmökkunarferð forstjóra ÁTVR.
Liechtenstein Fundur EFTA Ecomomic Committee.
Pólland, Varsjá Vinnufundur um opinber innkaup.
Ungverjaland Árlegur fundur Evrópusvæðis hjá WCO, fundir um tóbaksmál.
Tékkland Árlegur fundur um tollamál.
Ástralía, Sydney TWN-fundur um opinberar framkvæmdir og heimsókn til byggingaryfirvalda í Singapore.
Singapore Heimsókn til byggingaryfirvalda Singapore í sömu ferð og farin var til Ástralíu á fund um opinberar framkvæmdir.
Makedónía Ráðstefna Evrópuráðsins um kynjaða hagstjórn, fundur WCO.


Heildarkostnaður ferðanna með dagpeningum.


2007 2008 2009 2010
Heildarkostnaður – fjármálaráðuneyti 26.430.939 30.074.747 21.098.051 21.926.776
Fjársýsla ríkisins 584.344 354.569 0 0
Ríkisskattstjóri 125.704 295.366 366.770 1.213.439
Skattrannsóknarstjóri ríkisins 0 0 0 179.000
Yfirskattanefnd 0 193.130 211.680 0
Tollstjóri 1.684.726 1.330.657 1.592.042 1.499.823
Ríkiskaup 827.907 850.671 494.824 736.371
Framkvæmdasýsla ríkisins 1.185.080 1.978.535 1.486.968 1.140.313
Fasteignir ríkissjóðs 413.722 88.053 0 0
Bankasýsla ríkisins 0 0 0 408.354
ÁTVR 2.356.243 3.734.862 3.749.880 4.099.898