Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 634. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1704  —  634. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um kröfur um eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörgum fjármálafyrirtækjum hefur Fjármálaeftirlitið veitt undanþágu frá kröfum um eiginfjárhlutfall frá árinu 2007?
     2.      Hversu lengi hafa þau fjármálafyrirtæki starfað á undanþágu frá eftirlitinu sem hafa farið í þrot eða Fjármálaeftirlitið tekið yfir á sömu árum?


    Óskað var eftir því að Fjármálaeftirlitið tæki saman svör við fyrirspurninni. Fjármálaeftirlitið telur að fyrirspurnin varði frest til þess að auka eiginfjárgrunn að lágmarki skv. 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki, sbr. 4. mgr. 86. gr. sömu laga, enda er ekki um að ræða heimild til að veita undanþágu eins og fyrirspurnin er orðuð. Eru eftirfarandi svör Fjármálaeftirlitsins í samræmi við framanritað:
    Leit í kerfum Fjármálaeftirlitsins leiddi í ljós að 20 fjármálafyrirtæki hafa fengið frest til lengri eða skemmri tíma skv. 4. mgr. 86. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
    Samkvæmt 4. mgr. 86. gr. laga um fjármálafyrirtæki er heimilt að veita að hámarki 12 mánaða frest. Í ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði er að finna upplýsingar um fresti sem Fjármálaeftirlitið hefur veitt viðkomandi fjármálafyrirtækjum til að auka við eiginfjárgrunn sinn að lágmarki skv. 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Ákvarðanirnar er að finna á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins undir hlekknum: Ákvarðanir – sérstakar aðstæður.