Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 847. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1706  —  847. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um fjölda innbrota og hópa erlendra afbrotamanna.

    Aflað var upplýsinga frá embætti ríkislögreglustjóra.

     1.      Hversu mörg innbrot voru framin hér á landi á árunum 2009 og 2010 og það sem af er árinu 2011?
    Tilkynnt innbrot til lögreglu voru 3.524 árið 2009, 2.866 árið 2010 (bráðabirgðatölur) og 599 á tímabilinu janúar til apríl 2011 (bráðabirgðatölur).

     2.      Hversu mörg innbrot voru framin hérlendis árin 1999 og 2000?
    Tilkynnt innbrot til lögreglu voru 2.556 árið 1999 og 2.407 árið 2000.

     3.      Er ástæða til að ætla að hópar erlendra afbrotamanna stundi skipuleg innbrot á Íslandi eða hafi gert það á síðastliðnum tveimur árum? Ef svo er, hefur verið lagt mat á hversu margir slíkir hópar stunda nú afbrot eða hafa gert á undanförnum tveimur árum?
    Eins og sjá má af framangreindum tölum hefur innbrotum fjölgað á síðustu tíu árum. Jafnframt er ljóst af mati greiningardeildar ríkislögreglustjóra að skipulögð glæpastarfsemi hefur færst í vöxt á Íslandi og eru þar á ferðinni bæði innlendir og erlendir glæpahópar. Flæði á milli hópa er mikið og afbrotamenn virðast starfa saman þegar tækifæri til að hagnast gefst. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarfjölda kærðra einstaklinga hefur aukist og er það í takti við þá þróun sem hefur orðið á starfsemi skipulagðra glæpasamtaka á Íslandi. Á höfuðborgarsvæðinu voru einstaklingar með erlent ríkisfang um 5% kærðra fyrir innbrot árið 2005, árið 2007 var sambærilegt hlutfall tæplega 12% og tæplega 17% árið 2009. Árið 2010 lækkaði þetta hlutfall og var 11% samkvæmt bráðabirgðatölum.