Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 660. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1741  —  660. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur um kærunefnd jafnréttismála.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Stendur ráðherra með kærunefnd jafnréttismála vegna úrskurða hennar eða er ætlunin að skipta um nefndarmenn og skipa nýja?

    Ákvæði um kærunefnd jafnréttismála hafa verið í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla allt frá árinu 1991.
    Við endurskoðun laganna á árinu 2008 var gerð sú breyting að allir nefndarmenn skyldu skipaðir samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar og jafnframt var kveðið á um að úrskurðir nefndarinnar væru bindandi gagnvart málsaðilum, en heimilt er að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla. Með fyrrgreindum breytingum á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var kærunefnd jafnréttismála gerð sjálfstæðari og úrskurðum hennar gefið aukið vægi.
    Megintilgangur þess að fela sjálfstæðri úrskurðarnefnd kærumál vegna meintra brota á lögunum er að meðferð slíkra mála sé hlutlæg, fagleg og skilvirk og þannig verði betur tryggt að farið sé að ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
    Kærunefndin fjallar um meint brot einkafyrirtækja, félagasamtaka og opinberra stofnana og er því mikilvægt að nefndin sé sjálfstæð og óháð hinu pólitíska valdi.
    Það er á valdi aðila máls hvort úrskurðir kærunefndarinnar séu bornir undir dómstóla. Sé það ekki gert eru úrskurðirnir bindandi fyrir málsaðila og eru engar áætlanir um að breyta því. Í tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum, sem velferðarráðherra lagði fram á Alþingi í nóvember sl., er m.a. lagt til að gerð verði úttekt á túlkun jafnréttislaga í álitum kærunefndar jafnréttismála.
    Varðandi spurningu um hvort ætlunin sé að skipta um nefndarmenn og skipa nýja má benda á að allir fulltrúar í kærunefndinni eru tilnefndir af Hæstarétti og það er því ekki á valdi ráðherra að skipta um nefndarmenn. Tilnefningar bárust frá Hæstarétti og ný kærunefnd var skipuð frá 1. maí sl. í samræmi við tilnefningar Hæstaréttar.