Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 513. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1779 — 513. mál.
forsætisráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar um styrki og lánveitingar til íslensks atvinnulífs.
1. Hverjar eru þær nefndir og ráð sem úthluta styrkjum til íslensks atvinnulífs og hver var kostnaðurinn við rekstur þeirra árið 2010?
Ekki eru starfandi nefndir og ráð sem úthluta styrkjum til íslensks atvinnulífs á vegum forsætisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis, fjármálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, utanríkisráðuneytis og umhverfisráðuneytis. Í eftirfarandi yfirliti er að finna upplýsingar um þær nefndir og ráð sem úthlutuðu styrkjum árið 2010 og heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og innanríkisráðuneyti. Fjármunir sem sérstaklega eru skilgreindir á fjárlögum frá Alþingi til ákveðinna verkefna, undirstofnana, sjálfstæðra stofnana eða sjóða á vegum stofnana eru ekki tilgreindir í yfirlitinu. Efni fyrirspurnarinnar var afmarkað með þeim hætti að einungis eru veittar upplýsingar um nefndir og ráð sem heyra beint undir ráðuneyti og taka sjálfstæðar ákvarðanir um úthlutun fjármuna. Eru nefndir og ráð sem heyra undir undirstofnanir því undanskilin.
2. Hversu miklum fjármunum var úthlutað í formi styrkja og lánveitinga árið 2010?
Á eftirfarandi yfirliti er að finna heildarfjárhæðir styrkja og lánveitinga sem hver nefnd eða ráð um sig úthlutaði á árinu 2010. Með vísan til 1. tölul. fyrirspurnarinnar er hér aðeins um að ræða úthlutanir á vegum þeirra nefnda og ráða sem tilgreindar eru samkvæmt afmörkun í þeim lið.
3. Hversu miklum fjármunum var úthlutað til stofnana og fyrirtækja í eigu hins opinbera árið 2010?
Á eftirfarandi yfirliti er að finna tilgreiningu á því hve stór hluti úthlutaðra fjármuna nefnda og ráða, skv. 1. tölul. og með hliðsjón af afmörkun í svari við 2. tölul., rann til opinberra stofnana og fyrirtækja. Þar eru meðtalin fyrirtæki og opinberar stofnanir á sveitarstjórnarstigi.
4. Telur ráðherra að nægjanleg yfirsýn sé við núverandi fyrirkomulag eða mætti gera kerfið markvissara?
Á vegum ráðuneytisins hefur verið unnið að því að greina fyrirkomulag þjónustu við allar greinar atvinnulífs innan stjórnkerfisins og þá ekki síst innan Stjórnarráðsins. Það er mat ráðherra að mikilvægt sé að samræma þjónustu við allar atvinnugreinar eftir því sem kostur er, m.a. til að tryggja jafnræði meðal þeirra. Ekki er síður mikilvægt að ráðuneytin og stjórnsýslan í heild endurspegli þróun og stöðu einstakra atvinnugreina á hverjum tíma. Stofnun eins atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis gæti verið mikilvægur þáttur í slíkri endurskipulagningu.
Árétta ber að forsætisráðuneytið hefur aðeins tekið að sér að safna saman svörum annarra ráðuneyta og eru þau birt í svarinu óbreytt. Forsætisráðuneytið hefur með öðrum orðum ekki endurskoðað svörin enda hefur það ekki neinar forsendur til þess og getur því ekki borið ábyrgð á því þótt síðar komi í ljós einhverjar villur í svörum annarra ráðuneyta.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1779 — 513. mál.
Svar

Styrkir og lánveitingar til íslensks atvinnulífs
.
| Nefndir og ráð undir ráðuneytunum sem veita lán eða úthluta styrkjum til íslensks atvinnulífs: | Rekstrarkostnaður viðkomandi nefndar/ ráðs á árinu 2010, kr.: | Úthlutun viðkomandi nefndar/ráðs á árinu 2010 og er ekki tilgreint á fjárlögum, kr. |
Þar af úthlutun til stofnana og fyrirtækja í eigu hins opinbera, ekki skilgreint á fjárlögum, kr.: | ||
| Styrkur: | Lánveiting: | Styrkur: | Lánveiting: | ||
| Mennta- og menningarmálaráðuneytið | Ríki og sveitarfélög: | ||||
| 02 319-118 Stjórn þróunarsjóðs námsgagna | 400.000 | 126.000.000 | 5.000.000 | ||
| 02 319-126 Verkefnasjóður skólasamninga | 29.700.000 | 29.700.000 | |||
| 02 720-134 Sprotasjóður | 535.000 | 46.400.000 | 46.400.000 | ||
| 02 918-110 Safnasjóður/Safnaráð | 822.000 | 86.500.000 | 42.800.000 | ||
| 02 978-101 Launasjóður listamanna / stjórn | 4.950.000 | 365.000.000 | |||
| 02 979-610 Húsafriðunarsjóður | 3.200.000 | 140.900.000 | |||
| 02 981-110 Kvikmyndasjóðir | 3.590.000 | 452.000.000 | |||
| 02 982-122 Áhugaleikfélög | 850.000 | 20.000.000 | |||
| 02 982-118 Bókmenntasjóður | 1.190.000 | 28.630.000 | 16.860.000 | ||
| 02 982-124 Leiklistarráð/starfsemi atvinnuleikhópa | 743.600 | 64.156.400 | |||
| 02 982-125 Tónlistarsjóður/Tónlistarráð | 650.000 | 45.250.000 | |||
| 02 983-154 Fornleifasjóður | 594.300 | 18.500.000 | 7.900.000 | ||
| 02 988-119 Æskulýðssjóður | 525.000 | 6.975.000 | |||
| 02 989-116 Íþóttasjóður/íþróttanefnd | 574.900 | 14.626.000 | |||
| 02 236 101 Rannsóknarsjóður | 14.418.471 | 273.002.000 | 216.904.000 | ||
| 02 299-115 Nýsköpunarsjóður | 1.650.000 | 116.000.000 | 88.000.000 | ||
| Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti | |||||
| AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi | 16.964.425 | 324.190.000 | 229.370.000 | ||
| Verkefnasjóður sjávarútvegsins, samkeppnisdeild | 1.902.888 | 99.940.000 | 65.200.000 | ||
| Framleiðnisjóður landbúnaðarins | 21.386.918 | 174.820.000 | 44.160.000 | ||
| Fjárlagaliður 04-190-1.34 Eldi sjávardýra | 19.100.000 | 12.500.000 | |||
| Innanríkisráðuneytið | |||||
| Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar | enginn | 138.700.000 | 35.600.000 | ||
| Iðnaðarráðuneytið | |||||
| Stjórn Tækniþróunarsjóðs | 27.680.306 | 756.000.000 | 113.400.000 | ||
| Stjórn Átaks til atvinnusköpunar | 96.990.000 | ||||
| Orkuráð vegna Orkusjóðs | 11.495.295 | 26.898.482 | 4.700.000 | ||