Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 865. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1816  —  865. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur um aðbúnað eldri borgara á hjúkrunarheimilum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hyggst ráðherra bregðast við niðurstöðum nýlegrar könnunar um aðbúnað eldri borgara á hjúkrunarheimilum?

    Kallað var eftir niðurstöðum könnunarinnar og brugðist var við niðurstöðum hennar með auknu eftirliti og eftirfylgni með þeim eftirlitsúrræðum sem fyrir hendi eru í samstarfi við landlæknisembættið, sem hefur eftirlitsskyldu með heilbrigðisþjónustunni í landinu. Stjórnendur hvers hjúkrunarheimilis bera síðan ábyrgð á þjónustunni sem þar er veitt gagnvart ráðuneytinu og skjólstæðingum sínum.
    Í könnuninni sem vísað er til í fyrirspurninni er hjúkrunarheimilum skipt upp í flokka út frá tilteknum gæðavísum í svokölluðu RAI-mati. RAI er mælitæki sem notað er til að meta hjúkrunarþarfir og heilsufar íbúa á hjúkrunarheimilum en það er skammstöfun fyrir enska heitið Resident Assessment Instrument sem á íslensku hefur verið nefnt Raunverulegur aðbúnaður íbúa.
    Fræðimaðurinn, sem stóð að þessari könnun, setti fram íslensk gæðaviðmið fyrir RAI- gæðavísa. Gæðavísar gefa vísbendingar um það sem vel er gert eða betur má fara. Einnig má nota þá til að mæla árangur eða setja af stað umbótaverkefni. Í greiningunni á hjúkrunarheimilunum var notuð greining á gæðavísum frá árinu 2009. Eins og gefur að skilja segir niðurstaða þeirrar greiningar því ekki endilega hvernig staðan er á hjúkrunarheimilunum í dag. Niðurstöðum könnunarinnar verður því m.a. fylgt eftir með því að fá einnig greiningu á gæðavísum fyrir árið 2011. Þegar þær niðurstöður liggja fyrir og hægt er að bera þær saman við niðurstöður af gæðavísum frá 2009 er betur hægt að gera sér grein fyrir raunverulegri stöðu hjúkrunarheimilanna. Einnig gefur samanburðurinn tækifæri á því að gera sér betri grein fyrir árangri umbóta.
    Umræða um gæði þjónustu er gagnleg og skapar enn frekari aðstæður til gæðaumbóta þar sem þeirra er þörf. Velferðarráðuneytið mun áfram kappkosta að efla þjónustu við eldri borgara og nýta þau eftirlitsúrræði sem fyrir hendi eru til að tryggja aðbúnað þeirra á hjúkrunarheimilum. Frekari upplýsingar eru væntanlegar í lok árs eða byrjun þess næsta og ráðuneytið mun að sjálfsögðu fylgja því eftir.