Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 899. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1844  —  899. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um fangelsismál.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hefur verið tekin ákvörðun um byggingu nýs fangelsis, og ef svo er, hver tók þá ákvörðun, hver er hún og hverjar eru forsendur hennar?
     2.      Hver er fyrirhuguð staðsetning nýs fangelsis?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður og fjármögnun við framkvæmdina?
     4.      Hver er framkvæmdaáætlun verksins?
     5.      Liggur fyrir rekstraráætlun, og ef svo er, hver er hún?
     6.      Hver er stofnkostnaður og rekstrarkostnaður í samanburði við uppbyggingu á Litla- Hrauni sem og í samanburði við aðra kosti sem nefndir hafa verið?
     7.      Hvað varð um samkeppnishugmynd milli sveitarfélaga um fangelsisþjónustu sem ráðherra hefur kynnt?
     8.      Hver er heildarundirbúningskostnaður ráðuneytisins, þ.m.t. hönnunarkostnaður, sundurliðaður eftir árum?

Skriflegt svar óskast.