Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 781. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1900 — 781. mál.
innanríkisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um framkvæmdir og kostnað við Landeyjahöfn.
1. Hvernig hefur verið staðið að framkvæmdum á varnargarði við ósa Markarfljóts og hvenær er gert ráð fyrir að framkvæmdunum ljúki?
Samið var við Suðurverk hf. um framkvæmdina en það fyrirtæki var aðalverktaki við hafnargerðina. Verkið var unnið í janúar og febrúar á þessu ári og því er lokið. Kostnaður nam um 28 millj. kr.
2. Er hafinn undirbúningur að kaupum á sjálfvirkum dælubúnaði fyrir Landeyjahöfn og ef svo er, hvenær má vænta þess að búnaðurinn verði tekinn í notkun?
Verið er að skoða kosti og galla slíks búnaðar og gera áætlanir um stofn- og rekstrarkostnað. Ákvörðun um kaup hefur ekki verið tekin.
3. Hafa áætlanir Siglingastofnunar um frátafir verið uppfærðar í ljósi reynslu síðasta árs og ef svo, hverjar eru þær?
Enn er ekki komin nægjanleg reynsla af siglingum í Landeyjahöfn til að raunhæft sé að endurskoða þessar áætlanir. Efnisburður síðasta vetur markaðist af miklum framburði Markarfljóts í framhaldi af eldgosi í Eyjafjallajökli og því ekki marktækur til frambúðar. Þá lágu siglingar Herjólfs niðri mánuðum saman síðastliðinn vetur og hafa skipstjórnarmenn því haft litla möguleika á að læra á aðstæður til siglinga sem þarna ríkja.
4. Er gert ráð fyrir að Þorlákshöfn verði varahöfn Herjólfs til frambúðar?
Gera verður ráð fyrir Þorlákshöfn sem varahöfn að minnsta kosti á meðan verið er að komast yfir þær sérstöku aðstæður í náttúrunni sem ríkt hafa frá því að höfnin var tekin í notkun og á meðan ekki hefur verið keypt ferja sem hentar aðstæðum betur en núverandi Herjólfur.
5. Hver var áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar við Landeyjahöfn og hver er hann orðinn, þ.e. kostnaður við höfn, húsnæði og sandgröft?
Áætlaður stofnkostnaður við framkvæmdir til ársloka 2014 er 3.400 millj. kr. (á verðlagi hvers árs) og skiptist þannig: höfn 2.730 millj. kr., hús og lóð 250 millj. kr., stofndýpkun 190 millj. kr. og landgræðsla 230 millj. kr. Áætlaður stofnkostnaður áranna 2012–2014 er að stærstum hluta landgræðsla. Áfallinn heildarkostnaður 1. ágúst 2011 var 3.260 millj. kr. Til viðbótar kemur kostnaður við viðhaldsdýpkun hafnarinnar. Sá kostnaður nam 234 millj. kr. frá hausti 2010 til 1. ágúst 2011.
Eins og staða ríkissjóðs er nú, og öllum er kunn, er ekki hægt að leggja í fjárfestingu vegna kaupa á nýrri ferju að sinni. Reynslan af rekstri Landeyjahafnar og þeim uppákomum sem við höfum mætt á fyrstu rekstrarmánuðum hennar mun hins vegar nýtast vel og hjálpa okkur að átta okkur betur á þeim kröfum sem við þurfum að gera til að mæta sem best samgönguþörfum Vestmannaeyja, bæði í gæðum og öryggi.
Þá má að lokum geta þess að í sumar var skipaður samráðshópur hagsmunaaðila um samgöngur milli lands og Vestmannaeyja. Í hópnum sitja fulltrúar frá innanríkisráðuneyti, Vegagerðinni, Eimskip og Siglingastofnun, auk fulltrúa bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Hópnum er ætlað að vera vettvangur fyrir hagsmunaaðila til að viðra sjónarmið, afla, greina og miðla upplýsingum á milli aðila um málefni hafnarinnar og siglingar um hana. Einnig að upplýsa ráðherra um stöðu mála á hverjum tíma eins og þurfa þykir.
Hópurinn hefur þegar skilað áfangaskýrslu um störf sín.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1900 — 781. mál.
Svar