Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 167. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 285  —  167. mál.




Svar



samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Arndísar Soffíu Sigurðardóttur um vegagerð á áhrifasvæði eldgosanna á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.

     1.      Hversu miklum fjármunum hefur ríkið þegar varið til vegagerðar vegna afleiðinga eldgosanna á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli?
    Kostnaður Vegagerðarinnar við endurbyggingu og lagfæringu vega vegna eldgosanna er fyrst og fremst fólginn í endurbyggingu Hringvegarins við Markarfljót og í minna mæli á Fljótshlíðarvegi, Þórsmerkurvegi og Raufarfellsvegi. Áætlaður heildarkostnaður við þessi verkefni er um 30 millj. kr. Auk þess hefur Vegagerðin veitt sveitarfélaginu Rangárþingi eystra styrk til endurbóta á vegslóða um Fimmvörðuháls. Kostnaður við önnur verkefni, svo sem vegna þátttöku í sáningum til að hefta öskufok á Skógar- og Sólheimasandi og öskuhreinsun af vegum o.fl., er um 15 millj. kr.

     2.      Hvaða vegi er áformað að byggja upp eða lagfæra vegna beinna áhrifa eldgosanna og tengdra afleiðinga, svo sem aukinnar umferðar?
    Lagfæringum á vegum umhverfis Markarfljót er lokið en unnið er að áætlunum um hugsanlega hækkun Hringvegarins við Svaðbælisá ásamt endurbyggingu, færslu og hækkun brúarinnar og breytingum á farvegi árinnar.

     3.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við þau verkefni?
    Verkefnin eru ekki það langt komin í undirbúningi að kostnaður við þau hafi verið metinn en gera má ráð fyrir að hann geti numið á annað hundrað milljóna króna að teknu tilliti til breytinga á farvegum og varnargörðum.

     4.      Hvenær er áformað að verkefnunum ljúki?
    Engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu þessara verkefna.