Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 321. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 547 — 321. mál.
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mikið hefur ráðstöfunarfé ráðherra verið síðastliðin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
2. Hvernig hefur ráðstöfunarfénu verið varið síðastliðin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 547 — 321. mál.
Svar
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mikið hefur ráðstöfunarfé ráðherra verið síðastliðin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
2. Hvernig hefur ráðstöfunarfénu verið varið síðastliðin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
| Ráðstöfunarfé ráðherra 2005 | Þús. kr. |
| Hugvísindastofnun, ráðstefna helguð Brynjólfi Sveinssyni biskupi (loforð frá 2004) | 250 |
| Landlæknir, verkefnið „Þjóð gegn þunglyndi“ (loforð frá 2004) | 250 |
| Nýtt félag fulltrúa ákæruvalds (loforð frá 2004) | 100 |
| Politica – félag stjórnmálafræðinema, útgáfa tímarits (loforð frá 2004) | 80 |
| Leifur Eiríksson, málflutningsfélag. Þátttaka í alþjóðlegri málflutningskeppni | 100 |
| 75 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands | 200 |
| Ferðafélag Fljótsdalshéraðs, átak gegn akstri utan vega | 70 |
| Ferð rannsóknarlögreglumanna á námstefnu sænskra samtaka fíkniefnalögreglumanna | 150 |
| Þorbjörn Hlynur Árnason, sækja ráðstefnuna „Africa Peace Initiative“ | 60 |
| Hvítasunnukirkjan Fíladelfíu, skóli fyrir munaðarlaus í Burkina Faso | 60 |
| Bandalag þýðenda og túlka, þýðingarverðlaun | 150 |
| Ragnheiður Bragadóttir, prófessor við HÍ. Rannsóknir í refsirétti og afbrotafræði | 250 |
| Útgáfa V. bindis lögfræðingatals | 25 |
| Nemendafélag Lögregluskóla ríkisins, náms- og kynnisferð nema | 250 |
| Hilmir Kolbeins, námskeið í Los Angeles | 50 |
| 5 lögreglumenn, manndrápsrannsóknanámskeið í USA | 250 |
| Samtök áhugafólks um spilafíkn | 400 |
| Kjartan Björnsson, varðveisla útvarpsþátta, m.a. viðtöl við lögreglumenn o.fl. | 75 |
| Sigrún Óskarsdóttir, könnun á viðhorfi presta til jafnréttismála í kirkjunni | 200 |
| Skákstarf Hróksins á Litla-Hrauni | 200 |
| V-dags samtökin | 500 |
| Club Lögberg, Norræna málflutningskeppnin í Kaupmannahöfn í júní 2005 | 150 |
| Dr. Kristinn Ólafsson, ráðstefna á Hólum í Hjaltadal | 250 |
| Blað útskriftarnema á Bifröst | 50 |
| Heimsókn heimsstjórnar International Police Association til Íslands | 150 |
| Björgunarsveitin Kjölur, upplýsinga- og varúðarskilti á gönguleið við Esjuna | 140 |
| Prestafélag Íslands, útgáfa á riti um samkynhneigð, trú og kirkju | 100 |
| Haukur Guðlaugsson, kór- og organistanámskeið í Skálholti | 50 |
| Sjálfsbjörg, styrkur fyrir hjálparmenn í ferðir fatlaðra | 150 |
| Útgáfa á greisladisk Lögreglukórs Reykjavíkur | 175 |
| Kvennaráðgjöfin í Reykjavík | 100 |
| Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, minnisvarði í Viðey vegna strands HMCS Skeena | 150 |
| Miyako Þórðarson, kynnisferð til dönsku kirkju heyrnarlausra | 75 |
| Kirkjulistahátíð 2005 | 250 |
| Útgáfa fræðirits stjórnmálafræðinema „Ísl. leiðarinnar“ | 90 |
| Jóhann Eyvindsson, nám í réttarmannfræði í USA | 50 |
| Geir Jón Þórisson, ásamt 3 öðrum, kynnisferð til lögr. Í Tallahessee, USA | 160 |
| Tímaritið Glíman vegna ráðstefnu „Hvað er guðfræði“ | 180 |
| Lögmannafélag Íslands, málþing um sáttameðferð (Mediation) í einkamálum | 100 |
| UNIFEM, alþjóðleg ráðstefna í tilefni Peking+10 og 60 ára afmæli Sþ | 100 |
| Sverrir Guðjónsson, Þorlákstíðir | 250 |
| Tollvarðafélag Íslands, 70 ára afmæli | 150 |
| Konráð Rúnar Friðfinnsson, útgáfa jólablaðsins „Greinin“ | 50 |
| Mads Bryde Andersen, málþing í samvinnu við Háskólann í Reykjavík okt. 2005 | 80 |
| IceMUN, ráðstefna 3.–6. nóvember 2005 | 100 |
| Alþjóðahúsið, útgáfa blaðs tileinkað fræðslu um trúarbrögð | 100 |
| Kvenréttindafélag Íslands vegna ráðstefnu „The Nordic-Baltic Campaign Against ...“ | 150 |
| Samtals | 7.020 |
| Ráðstöfunarfé ráðherra 2006 | Þús. kr. |
| Lögreglufélag Reykjavíkur, útgáfa Lögreglublaðsins í tilefni 70 ára afmælis Lögrf. Rvk | 62 |
| Félag ábyrgra feðra, útgáfa á riti um starf og stefnu félagsins | 100 |
| Þorlákstíðir – útgáfa | 300 |
| Samtök áhugafólks um spilafíkn | 400 |
| Stofnun Sáttar, félags um sáttamiðlun | 250 |
| Fangelsið Kvíabryggju, kaup á píanói | 329 |
| Náms- og kynnisferð til lögreglunnar í Vínarborg | 90 |
| Félag guðfræðinema, útgáfa tímaritsins Orðið | 100 |
| Reykjavíkur Akademían, ráðstefnan „Ímyndir Norðursins“ | 250 |
| Orator, þátttaka í bandarískri laganemaviku og heimsókn til Ohio Northern University | 50 |
| Leifur Eiríksson, málflutningsfélag, þátttaka í alþjóðlegri málflutningskeppni | 100 |
| Fræðsluráðstefna IAI í Boston | 50 |
| Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, rannsókn á klámi og kynbundnu ofbeldi | 300 |
| Náms- og kynnisferð nema Lögregluskóla ríkisins | 96 |
| Lögreglufélag Reykjavíkur, stuðningur við útgáfu unglingabæklings um sakaskrána | 19 |
| Ferð rannsóknarlögreglumanna á námstefnu sænskra fíkniefnalögreglumanna, SNPF | 300 |
| Sýslumannsembættið í Borgarnesi, ferð starfsmanns á notendaráðstefnu um Oracle-kerfið | 110 |
| Tónleikaferð Lögreglukórsins til St. Pétursborgar og Tallinn | 300 |
| Þjálfun lögreglumanna í neyðarakstri og akstri lögregluökutækja | 100 |
| Samtök um kvennaathvarf, rannsóknarstyrkur | 220 |
| Styrkur til rannsókna á „Gagnsemi hamfarakerfa“ | 110 |
| Club Lögberg, þátttaka í Norrænu málflutningskeppninni | 200 |
| Ráðstefna á Hólum, „Saints and Geography“ eða „Kirkjurnar kortlagðar“ | 300 |
| Karmelsystur, Tónlist, Menning | 250 |
| Námskeið um áfallahjálp | 200 |
| Sjálfsbjörg, kostnaður af einum hjálparmanni í ferðir fatlaðra | 150 |
| BISER International, menntunarverkefni kvenna í Bosníu | 150 |
| Íslensk útgáfa af DISC-greiningarviðtali fyrir börn 9–17 ára | 300 |
| Styrkur til farar á „International ICAA Conference on Dependencies“ | 75 |
| Glíman, tímarit um guðfræði og samfélag | 120 |
| Rektor Skálholtsskóla, málþing í Reykjavík: „Vom Mythos zur Metapher“ | 100 |
| Hrókurinn, skákstarf meðal fanga | 250 |
| Litla gula hænan, leikfélag fanga á Litla-Hrauni | 100 |
| Úlfljótur, sérstakur dómstóll laganema, Lögbergsdómur | 100 |
| Ráðstefna um þriðja máttarstólpa Evrópusambandsins, Justice and Home Affairs o.fl. | 250 |
| Kvennaráðgjöfin, ókeypis lögfræði- og félagsráðgjöf fyrir konur | 200 |
| Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum; rekstur heimasíðu | 75 |
| Námsferð lögreglumanna í Kópavogi til lögreglunnar í Hamborg | 120 |
| Legsteinn Gríms Thomsen og Jakobínu Thomsen í Bessastaðakirkjugarði | 354 |
| Líknarfélagið Höndin | 75 |
| Jeremías ehf., framleiðsla á kirkjulegu jólaefni fyrir börn | 150 |
| Ráðstefna í Hallgrímskirkju á vegum Listvinafélags H.kirkju og Stofnunar Árna Magnússonar | 100 |
| Þátttaka í snjóflóðanámskeiði Canadian Avalanche Association | 100 |
| Afmælisráðstefna Kvenréttindafélags Íslands | 100 |
| Námskeið hjá Traincops.com í Orlando, Florida mars 2007 | 250 |
| Rannsóknir v/morða, Bruna o.fl. | 150 |
| Listaháskóli Íslands, námskeið á Litla-Hrauni með þátttöku nemenda úr tónlistardeild LHÍ | 400 |
| Samtals | 8.255 |
| Ráðstöfunarfé ráðherra 2007 | Þús. kr. |
| Tónleikar í kirkjum landsins vegna verkefnisins „Sorgin og lífið“ | 225 |
| Bæklingur með grunnupplýsingum til innflytjenda | 250 |
| Félag ábyrgra feðra, ráðstefna á feðradaginn 12. nóvember 2006 | 100 |
| Listvinafélag Hallgrímskirkju, 25 ára afmæli | 500 |
| Heimsleikar lögreglu og slökkviliðsmanna í Ástralíu í mars 2007 | 90 |
| Orator, norræn laganemavika í Reykjavík | 200 |
| Náms- og kynnisferð til Atlantic City í Bandaríkjunum | 200 |
| Fangavarðafélag Íslands, ráðstefna norræna fangavarðafélagsins | 250 |
| Fangavarðafélag Íslands, fartölva fyrir fagfélag fangavarða | 200 |
| Norrænt prestamót heyrnarlausra | 100 |
| Bæklingur, „Unglingar og sakaskráin“ | 30 |
| Félag yfirlögregluþjóna, námsferð til lögreglunnar í Dublin, Írlandi | 250 |
| Leifur Eiríksson málflutningsfélag, þátttaka í alþjóðlegri málflutningskeppni í Bandaríkjunum | 100 |
| Lögr.m. í ávana- og fíkniefnadeild LRH, námstefna sænskra samtaka fíkniefnalögreglumanna | 200 |
| Kynnisferð lögreglumanna LRH til Danmerkur og Noregs | 100 |
| Sáttamiðlun, undirbúningsnámskeið | 300 |
| Útgáfa Glímunnar 2007 | 200 |
| Samráðshópur um málefni fanga, ráðstefna um nýjar leiðir við afplánun o.fl. | 40 |
| Lögrétta, stofnkostnaður við Lögfræðiþjónustu Lögréttu | 250 |
| Námskeið rannsóknarlögreglumanna í Bretlandi | 40 |
| Skálholtskór, tónleikaferð til Rómar | 100 |
| Biblían á hljóðbók | 100 |
| Námsferð til Public Agency Training Council í Indianapolis, USA | 40 |
| Útgáfa alþjóðlegs ráðstefnurits, vísindalegar greinar um gamlatestamentsfræði | 90 |
| Kynnisferð útskriftarnema Lögregluskóla ríkisins 2006 til Danmerkur | 100 |
| Lögreglusamvera í Skálholtsskóla – tilraunaverkefni | 75 |
| „Skapandi tónlistarmiðlun“ fyrir fanga á Litla-Hrauni | 500 |
| Hátíð að Þingeyrum í september 2007 vegna 130 ára vígsluafmælis kirkjubyggingar o.fl. | 150 |
| Kirkjulistahátíð 2007 | 500 |
| Sjálfsbjörg, hjálparmenn í ferðir fatlaðra | 160 |
| Club Lögberg, norræn málflutningskeppni í Helsinki í júní | 200 |
| Ríkislögreglustjóri, ráðstefna Nordic Network on Psychology and Law (NNPL) | 200 |
| Fyrirkomulag meðlags í nokkrum löndum, Gísli Gíslason | 500 |
| Sýningin FÖR í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og Þjóðarbókhlöðu | 250 |
| Mýrdalshreppur, kaup á klippibúnaði til nota við útköll vegna umferðaróhappa | 200 |
| Sendiráð Íslands í París, kynning á víkingasögu Íslendinga í París | 100 |
| Akureyrarbær, uppsetning á minnismerki um þrískiptingu ríkisvaldsins | 200 |
| Max Planck stofnunin, skýrsla um samanburð á refsiréttarreglum | 200 |
| Íslenska kristkirkjan, 10 ára afmæli | 250 |
| Ferð lögreglumanna til New Orleans, Geir Jón Þórisson | 150 |
| FÍR, námstefna í Stykkishólmi um aðferðir/úrræði þar sem tölvutæknin kemur við sögu | 175 |
| Blátt áfram, forvarnaátak gegn kynferðislegu ofbeldi | 250 |
| Jóhann Konráðsson, útskriftarferð nema úr Fangavarðaskóla ríkisins | 200 |
| Guðrún Kristinsdóttir, styrkur vegna bæklings yfir börn um ofbeldi á heimilum | 100 |
| Berglind Eyjólfsdóttir, þátttökustyrkur í NBNP-ráðstefnu í Finnlandi | 300 |
| Félag um foreldrajafnrétti, auglýsing vegna málþings 11. nóvember 2007 | 200 |
| Eiríkur Ragnarsson og Jens Gunnarsson, námskeið Las Vegas ágúst 2008 | 160 |
| Þorlákur Morthens, hljóðdrappering í stóra salinn á Litla-Hrauni | 150 |
| Hrönn Kristinsdóttir, klára myndina „Synir feðranna – örlög Breiðavíkurdrengja“ | 200 |
| Dr. Kristinn Ólason rektor, málþing á vegum Glímunnar o.fl. | 100 |
| Samtals | 9.525 |
| Ráðstöfunarfé ráðherra 2008 | Þús. kr. |
| Hátíðarráðstefna á 100 ára afmæli lagakennslu á Íslandi, Björg Thorarensen | 500 |
| Zontaklúbbur Akureyrar, sýning um Jón Sveinsson – Nonna | 100 |
| FÍR, námstefna þann 26. janúar 2008 | 175 |
| Húnbogi Jóhannsson Andersen, námskeið í Las Vegas í ágúst 2008 | 80 |
| Kjartan E. Kristinsson, námskeið í Las Vegas í ágúst 2008 | 80 |
| Snorri Birgisson og Haukur Bent Sigmarsson, námskeið Daytona Beach, Florida | 160 |
| Gísli I. Þorsteinsson, sýning til heiðurs lögreglum. er voru við störf í Heimaeyjargosinu 1973 | 150 |
| 5 lögreglumenn í ávana- og fíkniefnadeild lögr.stj. Hsv., námstefna í Svíþjóð SNPF | 250 |
| Leifur Eiríksson málflutningsfélag, keppni í USA 6.–12. apríl 2008 | 100 |
| Hrafn Jökulsson vegna starfs skákfélagsins Hróksins á Litla-Hrauni | 250 |
| Lilja Steingrímsdóttir, þrjú jóganámskeið á Litla-Hrauni | 150 |
| Bjarnþóra M. Pálsdóttir, fagráðstefna í London fyrir fagfólk við að meðhöndla fíknisjúkdóma | 75 |
| Díana Ó. Óskarsdóttir, fagráðstefna í London fyrir fagfólk við að meðhöndla fíknisjúkdóma | 75 |
| Lögreglukór Reykjavíkur, kórhátíð á Álandseyjum 23.–26. maí 2008 | 250 |
| Sjálfsbjörg, kostnaður er nemur einum hjálparmanni í ferðir fatlaðra | 165 |
| Rannsókna- og lærdómsferð nema úr Fangavarðaskólanum haustið 2008 | 180 |
| Club Lögberg, þátttaka í Norrænu málflutningskeppninni í Ósló í júní 2008 | 200 |
| Rauði kross Íslands, handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna | 200 |
| Háskóli Íslands, dr. Sigrún Júlíusdóttir, rannsóknarverkefni er kemur að skilnaðarmálum | 500 |
| Dr. Dougles Brotchie, þátttaka Íslendinga í norrænu kirkjutónlistarmóti, Noregi 18.–21. sept. | 200 |
| Biskupsstofa, móttaka í tengslum við kórastefnu kirkjunnar, söngmót kirkjukóra o.fl. | 150 |
| Sólstafir Vestfjörðum, námskeiðahald fyrir lögreglu og aðra embættismenn ríkisins | 200 |
| Róbert Spanó, lagadeild HÍ, útgáfa á ritinu Stjórnarskráin og refsiábyrgð | 300 |
| Haukur Arnþórsson, kynningarefni um hugmynd og verkefni um lögnetföng og þóðarpósthús | 300 |
| Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi, málþing | 150 |
| Glíman, útgáfa tímaritsins 2008 | 100 |
| Orator, Ohio Northern University sótt heim | 100 |
| Félag íslenskra rannsóknarlögreglumanna, námstefna haldin 15. nóvember 2008 | 175 |
| Foreldrahús, styrkur vegna starfa og þjónustu samtakanna við börn og fjölskyldur þeirra | 250 |
| FRÆ – fræðsla og forvarnir, stuðningur við vímuvarnastarf FRÆ | 250 |
| Skálholtsútgáfan, rannsókn á leiguliðaábúð og eflingu stétta sjálfseignarbænda í upphafi 20. aldar | 250 |
| Samtals | 6.065 |
| Ráðstöfunarfé ráðherra 2009 | Þús. kr. |
| Díana Ó. Óskarsdóttir, sótt ráðstefna 6th UK/European Symposium on Addictive Disorders | 50 |
| Orator, lögfræðiaðstoð Orators fyrir árið 2009 | 500 |
| Fimm lögreglumenn v. námstefnu sænskra samtaka fíkniefnalögreglumanna | 250 |
| Margrét Guðjónsdóttir, rekstur Listafélags Langholtskirkju | 200 |
| Bjarnþóra Pálsdóttir, fagráðstefna í London 14.–16. maí 2009 | 50 |
| Elísabet Jóna Jóhannsdóttir, fagráðstefna í London 14.–16. maí 2009 | 50 |
| Slysavarnafélagið Landsbjörg, endurnýjun stjórnstöðvarbíls Flugbjörgunarsveitarinnar | 3.000 |
| Samhæfingar- og stjórnstöð Almannavarna, rekstur stöðvarinnar | 1.000 |
| Orator, norræn laganemavika í Reykjavík | 250 |
| Málflutningsfélagið Leifur Eiríksson, þátttaka laganema í alþj. málflutningskeppni Jessup 2009 | 100 |
| Club Lögberg, Norræn málflutningskeppni í júní 2009 á Íslandi | 200 |
| Félag yfirlögregluþjóna, Geir Jón Þórisson formaður, aðalfundur og málþing félagsins | 150 |
| Eiríkur Valberg rannsóknarlögreglumaður, námstefna sænskra fíkniefnalögrm. í Gautaborg apríl | 50 |
| Einar Guðberg Jónsson, Intern. Police Association, fundur Norðurlandadeilda í maí á Selfossi | 150 |
| Hagsmunasamtök heimilanna, stuðningur við rekstur samtakanna á árinu 2009 | 300 |
| Harpa Oddbjörnsdóttir, fræðsla fyrir starfsfólk þjóðkirkjunnar á Vestfj. um kynferðisofbeldi | 50 |
| Félag sérsveitarmanna, árshátíð | 70 |
| Bókasafn Litla-Hrauns (einnig gefið Lagasafn 2007) | 50 |
| Eiríkur B. Ragnarsson og 3 aðrir, námskeið hjá Intern. Association of Undercover Offi., Orlando | 160 |
| FÍR, námstefna er varðar málefni framhaldsrannsókna lögreglu | 75 |
| Orator, norræn laganemavika í Reykjavík, viðbótarstyrkur | 50 |
| Krían, hagsmunafélag lögreglukvenna, styrkur til rekstursins | 100 |
| Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, kynna boðskap bókarinnar „Á mannamáli“ | 200 |
| Samtals | 7.055 |